Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1951, Page 6
StÝrimannaskólan um
slitið í 60. sinn
Stýrimannaskólanum var sagt upp í 60. sinn
hinn 14. þ. m. Viðstaddir voru auk kennara,
nemenda og prófdómara nokkrir af eldri nem-
endum skólans, þ. á. m. 40 ára prófsveinar, og
ennfremur einn af 14 fyrstu nemendum skól-
ans, Árni Kristinn Magiiússon skipstjóri, en
aðrir á lífi eru Páli Halldórsson fyrrv. skóla-
stjóri og skipstjórarnir Pétur Ingjaldsson og
Þorsteinn Þorsteinsson. Þá var og viðstaddur
einn af þeim fjórum mönnum, sem fyrstir
kenndu við skólann, Páll Einarsson, fyrrverandi
hæstaréttardómari, sem á þeim tíma var mála-
færzlumaður við landsyfirréttinn. Kenndi hann
sjórétt við skólann veturinn 1891—1892.
Eftir að skólastjóri hafði boðið gesti vel-
komna, flutti hann yfirlit yfir starf skólans á
þessu skólaári. I skólanum voru 137 nemendur
í 8 kennsludeildum, þegar flest var. Kennarar
voru 14, auk þeirra, er kenndu leikíimi, sund og
björgunaræfingar. Burtfararprófi luku að þessu
sinni 19 menn með farmannaprófi og 55 með
fiskimannaprófi. Hæstu einkunn við farmanna-
próf hlaut Pétur S. Sigurðsson, Reykjavík,
7,45, og hæstu einkunn við fiskimannapróf
hlaut Baldvin Þorsteinsson, Akureyri, 7,35.
Að lokinni skýrslu ávarpaði skólastjóri, Frið-
rik Ólafsson, nemendur og afhenti þeim skír-
teini. Einnig afhenti hann fimm nemendum
verðlaun úr Verðlauna- og styrktarsjóði Páls
Halldórssonar skólastjóra. Verðlaun hlutu: Úr
farmannadeild, Jörundur Kristinsson, Pétur S.
Sigurðsson og Sigurður Eyjólfsson. Úr fiski-
mannadeild: Baldvin Þorsteinsson og Páll M.
Jónsson.
Þá rakti skólastjóri sögu skólans og gat þeirra
manna, sem mest hafa við þá sögu komið, skóla-
stjóranna Markúsar Fr. Bjarnasonar og Páls
Halldórssonar og kennaranna Magnúsar Magn-
ússonar, Guðmundar Kristjánssonar og Einars
Jónssonar. Markús var fyrsti skólastjóri sjó-
mannaskólans, svo sem kunnugt er. Var skip-
aður í það embætti, er skólinn tók til starfa
1891 og stýrði skólanum af hinum mesta skör-
ungsskap til dauðadags, árið 1900. Varð Páll
Ilalldórsson skólastjóri að Markúsi látnum og
hafði stjórn skólans með höndum um 37 ára
skeið. Árið 1937 tók Friðrik V. Ólafsson við
stjórn skólans og hefur haft hana með hönd-
um síðan.
Stýrimannaskólinn hefur útskrifað 1828
stýrimenn frá byrjun, 1605 í sjálfum skólan-
um, 223 á námskeiðum skólans utan Reykja-
víkur. Þar af hafa 470 lokið farmannaprófi.
Guðbjartur Ólafsson hafnsögumaður hafði
orð fyrir 40 ára prófsveinum, ávarpaði hina
nýju stýrimenn og árnaði þeim heilla. Því næst
afhenti hann skólanum vandaðan gyro-sextant
að gjöf frá þeim skólafélögunum. Voru þeir alls
10, er prófi luku frá sjómannaskólanum vorið
1911. Fjórir eru eftir á lífi, og voru þrír þeirra
viðstaddir skólauppsögn nú.
Ennfremur afhenti Guðbjartur skólastjóra
3000 kr. frá skipstjórafélaginu Öldinni, en Guð-
bjartur er formaður félagsins, og eru þessir
peningar vísir að sjóði, sem verja á til þess að
reisa á lóð Sjómannaskólans standmynd af
Markúsi F. Bjarnasyni, fyrsta forstöðumanni
stýrimannaskólans. Fyrirhugað er, að sjóður
þessi verði efldur með framlögum frá nemend-
um, eldri og yngri, og einnig með merkjasölu
á næstu árum.
#
Hér fara á eftir nöfn og einkunnir prófsveina:
Farmannsprófsnemendur:
1. Aðalsteinn Kristjánsson, Reykjavík.. 6,46
2. Atli Helgason, Reykjavík ............6,60
3. Benedikt Guðbjartsson, Reykjavík.... 5,39
4. Bernódus Kristjánsson, Vestm.eyjum 6,60
5. Bjarni Runólfsson, Reykjavík ....... 6,29
6. Guðmundur Guðmundsson, Reykjavík 6,62
7. Guðmundur Kristinsson, Reykjavík.. 5,85
8. Guðm. Margeir Sigurðsson, Reykjavík 5,57
9. Hannes Hafstein, Húsavík............ 7,04
152
V í K I N □ U R