Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 11
^jcfnamadaquriHH 1960 Sjómannadagurinn var hátíð- legur haldinn um land allt. I Reykjavík var veður hið bezta, sem sézt hefur lengi, sól og blíða. — Blöktu fánar á skipum í höfninni og húsum í bænum frá því snemma um morguninn. Þátttaka í hátiðahöldunum var mikil og sala merkja dagsins og Sjómannablaðsins gekk vel. Hátíðahöldin hófust með messu í Laugarásbíó. Séra Garð- ar Svavarsson messaði. Kl. 2 hófust útihátíðahöld á Austur- velli. Séra Óskar J. Þorláksson flutti minningaræðu um sjó- menn, sem látizt höfðu á árinu. Nítján sjómenn hafa látizt við störf sín frá síðasta sjómanna- degi og var þeirra minnzt með því að blómsveigur var lagður á gröf óþekkta sjómannsins í Fossvogskirkjugarði. Þá söng Kristinn Hallsson einsöng. Næst fluttu ræður Emil Jóns- son, sjávarútvegsmálaráðherra, Hafsteinn Baldvinsson, skrif- stofustjóri og Egill Hjörvar, vél- stjóri. S j ávarútvegsmálaráðherra kvað veiðiflota landsmanna aldrei hafa bætzt jafnmikill kostur myndarlegra báta búna full- komnum tækjum og sl. ár. Þá væru tveir togarar nýkomnir til landsins og þrír væntanlegir. Þá væri það einnig gleðiefni, að á síðustu vertíð hefði þurft að ráða helmingi færri erlenda menn til starfa á fiskiskipaflot- ann en árið áður. Ráðherrann vék að því, að síðustu ár hefði oft verið hugsað meira um aflamagnið en gæði aflans, en einnig í þessu efni væri orðin breyting til batnaðar. Minnti ræðumaður í því sam- bandi á lög um ferskfiskeftirlit, er samþykkt voru á síðasta bingi. Ræðumaður minntist á hina breyttu skipan, er tekin var upp í vetur, er krónan var skráð á Vf kingur því gengi er ætla mátti að dygði til þess að útflutningsframleiðsl- an gæti staðið undir sér án nokkurra opinberra bóta. Þá ræddi hann nokkuð um land- helgismálið og lét í ljós þá ósk, að Bretar tækju aldrei framar upp vopnaða gæzlu togara í ís- lenzkri landhelgi. Hdfstevm, Baldmnsson vék m. a. í ræðu sinni að launakjör- um sjómanna. Kvað hann að- ferðir við launaútreikninga þeirra meingallaðar og erfitt að halda þeim áfram við þær breyttu aðstæður, er leiddu af efnahagsráðstöfununum. Væri það því ánægjulegt, að sjómenn hefðu á ráðstefnu sinni nýverið lagt eindregið til, að haf- izt yrði handa um endurskoðun þessa launakerfis í samvinnu við útvegsmenn og með gagnkvæm- um skilningi ætti að mega finna farsæla lausn þessa máls. Þá fór ræðumaður nokkrum orðum um þær skemmdir á hrá- efni, sem borið hefði á að und- anförnu, sem brýna nauðsyn bæri til að færa til betri vegar. Egill Hjörvar ræddi um til- gang Sjómannadagsins og hags- muna- og áhugamál sjómanna. Fór hann nokkrum orðum um launakjör sjómanna og nauðsyn þess, að þeir bæru ekki minna úr býtum en þeir, sem ynnu að aflanum í landi. Væru sjó- mannasamtökin vel vakandi fyr- ir öllum breytingum á kjörum félaga sinna. Að lokum sagði Egill, að sjó- menn tækju sér í munn á þess- um degi orð Grettis Ásmunds- sonarog segðu til þeirra, sem stýrðu landinu og þjóðarinnar: ,,Ekki mun skuturinn eftir liggja, ef vel er róið framá“. Henry Hálfdánarson, formað- ur Sjómannaráðs, afhenti því næst heiðursmerki Sjómanna- dagsins. Þau hlutu fimm kunnir heiðursmenn úr sjómannastétt: Auðunn Sæmundsson skipstjóri, Grímur Þorkelsson, skipstjóri, Jóhann Pétursson, skipstjóri, Sigurður Einarsson, timburmað- ur, og Sigurjón Kristjánsson, vélstjóri. Einnig afhenti Henry „Fjalarbikarinn“, sem Guðlaug- ur Ketilsson hlaut að þessu sinni fyrir framúrskarandi náms- árangur í Vélskólanum. Hlaut hann þar 104 stig af 110 mögu- legum. Úrslit í kappróðrinum, sem var mjög fjörugur, urðu sem hér segir: 1. Mb. Guðmundur Þórðarson 2:46.2 mín. 2. Mb. Ásgeir 2:50.4 mín. 3. Bv. Jón forseti 2:50.7 mín. 4. Mb. Hafþór 2:53.0 mín. 5. Ms. Goðafoss 2:53.6 mín. 6. Unglingadeild Slysavarna- félags Islands 2:57.2 mín. 7. Mb. Gísli J. Johnsen 2:57.8 mín. 8. Ameríska olíuskipið Crown block 2:58.8 mín. 9. Mb. Björn Jónsson 3:06.2. 10. Unglingasveit Sjóvinnu- námskeiðs Reykjavíkurbæj- ar 3:07.6 mín. Skipshöfnin á Guðmundi Þórðarsyni fékk lárviðarsveig og lágmyndina Fiskimanninn að launum, en skipshöfnin á Ás- geiri fékk June-Munktellbikar- inn. Forstjóri hinna sænsku verksmiðja, er framleiða m. a. June-Munktell vélarnar, Gustav Östergren, sem gaf bikarinn í upphafi Sjómannadagsins, var nú staddur hér. Afhenti hann skipverjum af Ásgeiri bikarinn og hverjum einstökum í róðrar- sveitinni minjagrip. Eyjólfur Jónsson kom að landi úr Viðeyjarsundi um það leyti, er kappróðurinn var að hefjast, og var vel fagnað af viðstödd- um, sem voru afar margir sem fyrr segir. Sjómannadagurinn á Siglufiröi. Hátíðahöldin á sjómannadag- inn hófust með guðsþjónustu fyrir hádegi. Sjómenn gengu í skrúðgöngu frá hafnarbryggj- 147

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.