Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 26
VELSKOLINN
Skólaslit 21. maí 1960.
Vélskólanum í Reykjavík var
sagt upp laugardaginn 21. maí
við athöfn, er fram fór í hátíða-
sal Sjómannaskólans.
í skólaslitaræðu sinni mmntist
skólastjórinn, Gunnar Bjarna-
son, fyrst þriggja nemenda, er
látizt höfðu á skólaárir.u, þeirra
Halldórs Tryggvasonar í 2. bekk
B, Eiríks Steingrímssonar í raf-
magnsdeild A og Óla Hrafns
Ólafssonar í rafmagnsdeild B.
Allir voru þessir menn efnileg
ungmenni og að þeim mikil eft-
irsjá. Var þeim að lokum vottuð
virðing með því að menn risu úr
sætum.
Síðan ræddi skólastjórinn
skólastarfið s.l. vetur. Kvað
hann talsverða bót hafa orðið að
því, að hægt var að nota nýja
vélasalinn nú í vetur, þó ekki
hafi það verið nema að nokkru
leyti enda langt frá því, að hann
sé enn kominn í sæmilegt horf.
Harmaði skólastjórinn mjög, að
ekkert fé fengist til að ganga
frá neinu til fullnustu, og sagði
að það milibilsástand, sem nú
hefur ríkt í nokkur ár torveld-
aði ákaflega allt kennslustarfið.
Taldi hann, að lítils samræmis
gætti milli þeira milljónaverð-
mæta, sem eru í höndum vél-
stjóranna, bæði á sjó og í landi,
og þeirra upphæða, sem fjár-
veitingavaldið telur sig geta af
höndum innt til að mennta þessa
menn og búa þá undir störf
þeirra, sem þar að auki eru beint
eða óbeint í sambandi við aðal-
framleiðslu þjóðarinar. Á þessu
ári er ekkert unnið við fram-
kvæmdir í skólanum. Fyrir þær
kr. 500.000.00 sem á fjárlögum
fyrir árið 1960 voru veittar til
Sjómannaskólans, var gengið í
fyrrasumar frá gólfi og ljósum
og öðru óhjákvæmilegu, svo
hægt væri að koma vélum inn í
nýja vélasalinn, og þar við sit-
ur. Timburhlerar eru fyrir dyr-
um í stað hurða og annað eftir
því, Það þarf engan að undra,
I REYKJAVIK
þótt tækniþróunin sé langt frá
því að vera ör á Islandi.
Á s.l. sumri fór einn kennari
skólans, Andrés Guðjónsson til
Englands og var þar á olíurann-
sóknarstofu hjá Wakefieldfélag-
inu. Olíuverzlun íslands (BP)
sá um þessa för og kostaði
hana, og er skólinn þakklátur
fyrir þessa fyrirgreiðslu. —
Hreinn Pálsson forstjóri átti
þar mestan hlut að. Því miður
er ekki útlit fyrir, að hægt
verði að senda neinn kennara ut-
an í sumar. Við eigum að vísu
heimboð frá ýmsum fyrirtækj-
um, en getum fjárhagsins vegna
ekki þekkst þau. Að því er mik-
ill skaði, því engum er eins
nauðsynlegt að fara utan, helzt
árlega, eins og tæknikennurum,
m. a. til að kynnast öllum nýj-
ungum jafnóðum og þær koma
fram í sínu fagi.
Eitt tæki hefur skólanum
bæzt á þessu ári. Er það raf-
magnstafla fyrir vélasalinn. Hún
var keypt í fyrra, en vegna þess
að fé til vélakaupa hrökk það ár
ekki til, var samið um að greiða
helming nú eftir áramótin síð-
ustu. Seinni greiðslan varð skól-
anum nokkuð dýr, vegna gengis-
breytingarinnar og hækkaðs
tolls. Taflan er smíðuð í Odense
í Danmörku, en firmað sem
gerði hana hefur rafmagnstöflur
fyrir skip og vélskóla að sér-
grein.
Fallizt hefur verið á að ráða
1 fastan kennara í vélfræði að
skólanum í haust. Er þá hug-
myndin að auka verulega kensl-
una, svo hún verði helmingi
meiri næsta vetur heldur en hún
hefur verið. Yfirleitt hefur sú
stefna ráðið, að auka verklegu
kennsluna eins og hægt er, án
þess að slá af bóklegu kennsl-
unni og verður þetta eitt spor í
þá átt.
Við skólann störfuðu í vetur
18 kennarar auk skólastjóra og
þakkaði skólastjóri þeim ánægju-
legt samstarf.
Nemendur skólans voru í
haust 131. Vélstjórar og vél-
stjóraefni voru 123 en rafvirkj-
ar 8. 1 1. bekk voru 40 (2
bekkjardeildir) í 2. bekk 42 (2
bekkir) í rafmagnsdeild vél-
stjóra 41 ((2 bekkir) og 8 í
eldri deild rafvirkja. Yngri
deild rafvirkja starfaði ekki
vegna ónógrar aðsóknar í haust.
2 nemendur í 1. bekk hættu við
nám og 3 létuzt, eins og áður
hefur verið sagt.
Undir próf gengu alls 88 nem-
endur og stóðust það 34 vél-
stjórar í rafmagnsdeild, 39 vél-
stjórar og 8 rafvirkjar. Ágætis-
einkunn hlutu Óskar Pétursson,
vélstj., rafmagnsdeild, 7.07, raf-
virkjarnir Haukur Arinbjamar-
son 7.36 og Ingimar Karlsson
7.31. Átta vélstjórar hlutu ágæt-
iseinkunn þeir Guðlaugur Ket-
ilsson 7.54, Svavar Sveinsson
7.44, Jón Sigurðsson 7.32, Jón
Vilhelmsson 7.13, Kristmann
Gunnarsson 7.13, Brynjólfur
Guðmundsson 7.10, Sveinn Sig-
urðsson 7.04 og Gunnar Gutt-
ormsson 7.00.
Hæstu einkunn í eimvéla-
fræði hlaut Svavar Sveinsson
38% (af 40 mögulegum), en
hæstu einkunn í mótorfræði Guð-
laugur Ketilsson 39% (af 40
mögulegum). Beztan árangur úr
vélfræðifögunum samanlagt
hlaut Guðlaugur Ketilsson 100
stig (af 104 mögulegum).
Er skólastjóri hafði afhent
skírteini, árnaði hann nemend-
um allra heilla og kvaðst vona,
að þeir yrðu gæfumenn í starfi,
stétt sinni til sóma og föður-
landinu til heilla.
Síðan afhenti hann bókaverð-
laun þeim Óskari Péturssyni úr
rafmagnsdeild vélstjóra, Hauk
Arinbjarnarsyni úr rafmagns-
deild rafvirkja og Guðlaugi Ket-
ilssyni og Svavari Sveinssyni úr
vélstjóradeild.
Þegar skólastjóri hafði lokið
máli sínu, kvaddi sér hljóðs Ey-
þór Þórðarson úr hópi 10 ára
vélstjóra, sem þarna voru mætt-
ir. Árnaði hann skólanum allra
heilla og tilkynnti, að þeir fé-
VÍKINGUR
162