Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 33
\ Skuttogari til Siglufjarðar Skuttogarar eða verksmiðju- togarar hafa á undanförnum ár- um verið reyndir af ýmsum þjóð- um og gefið mjög góða raun. Er tilkoma þeirra af flestum talin marka þáttaskil í veiðiaðferðum og miklar vonir bundnar við notkun þeirra. H. f. Útver á Siglufirði hefur nú lagt drög að því að fá einn slíkan togara smíðaðan í Þýzkalandi og hefur framkvæmdastjóri félagsins — Vigfús Friðjónsson útgerðar- maður — gefið eftirfarandi upp- lýsingar um skipið. Vigfús kvaðst hafa fengið teikningar og leitað tilboða hjá þýzku skipasmíðastöðinni Rich- mers Werft í Bremerhaven í 1500 tonna skuttogara, en á skuttogurum og öðrum togurum er sá höfuðmunur, að þar þarf enginn að vinna úti á opnu dekki. Eru tvö dekk á skipinu og trollið tekið inn að aftan- verðu. Þá eru og í skuttogurun- um aðstæður til þess að vinna úr fiskinum á siglingu. í skuttogurum af þeirri gerð, sem Vigfús hefur hug á að kaupa er frystihús, er tekur 65 tonn af fiski, fiskimjölsverk- smiðja og mjölgeymsla fyrir um 100 tonn og einnig ber togarinn 500 tonn af ísuðum fiski. Lengd skipsins er 237 fet og breidd 36 fet. Vélarnar eru um 2000 hest- öfl og ganghraðinn 15 sjómílur á klukkustund. Með þessum ganghraða myndi sigling héðan á Nýfundnalandsmið taka um 3y2 sólarhring og er það um það bil sólarhring styttra Vigfús sagði, að í skipasmíða- stöðinni Richmers Werft væru nú 6 slíkir togarar í smíðum. Tvo þeirra eiga Norðmenn og eru það fyrstu skuttogararnir, sem þeir eignast. Þá eiga Bretar tvo og Þjóðverjar sjálfir tvo. Skip þessi eru byggð með hlið sjón af þeirri reynslu, sem feng- izt hefur af ensku skuttogurun- um Fairtry I og II, sem hafa gefið góða raun. Þeir togarar eru þó nokkru stærri eða um 2000 tonn. Fullbúinn með öllum tækjum á togari af þessari gerð að kosta um 44 millj. íslenzkra króna, en togarar af venjulegri gerð munu kosta um 36—37 millj. Smíði skipsins tekur eitt ár. Vigfús hefur sótt um bæjarábyrgð til bæjarstjórnar Siglufjarðar fyrir um það bil tveim mánuðum en ekki fengið fullnægjandi svar. Sagðist hann ætla að sækja um ríkisábyrgð, ef bæjarábyrgð fengist ekki til togarakaupanna. Á skuttogara eru 29 manna áhöfn og auk þess 15—20 menn, sem vinna við vinnslu fiskjarins. Fer tala þeirra nokkuð eftir því, hvernig vinnslunni er hagað. Vigfús kvaðst hafa í hyggju að lata gera nokkrar breytingar á skipinu frá því sem er á teikn- ingu. Þannig ætlar hann í stað fiskimjölsverksmiðjunnar að láta setja í skipið frysti til þess að frysta fiskúrganginn til dýra- fóðurs, en með því móti má gera hann verðmætari en ella. Þá ætlar hann einnig að láta gera 6 tveggja manna klefa í skipinu handa ungum hjónum, sem kynnu að vilja vinna sam- an á sjónum um nokkurra mán- aða skeið. Vigfús sagði að lokum, að reynsla annarra þjóða hefði leitt það ótvírætt í ljós, að skuttog- arar væru veiðiskip framtíðar- innar. Þeir væru mikið hentugri ep stóru togararnir af gömlu gerðinni og nýttu aflann stórum betur, þegar sótt væri á fjarlæg mið. íslendingum væri brýn nauðsyn að fylgjast vel með þró- un fiskveiðitækninnar og þess vegna ættu þeir nú að afla sér skuttogara. Aðalhluthafarnir í Útver h.í. eru bræðurnir Vigfús og Árni Friðjónssynir á Siglufirði. Sigfús Elíasson: Víðir Bl frá Garði Heillœósk til skipstjórcms Eiggerts Gíslasonar. Logi ljós við stafni, lýsi gæfuknerri, dulið sýn um djúpið blátt. Skíni máttarskjöldur, skarti sævaröldur, bæði dag og dimma nátt. Blessun þess hins Hæsta hljóttu, fleyið glæsta ristir straum um stjörnunátt. Markið skín þér heilagt, hátt. Sigldu djarft í sólarátt, sigra skalt í Drottins nafni. Yfir hverri röst sem rís ríkir máttug gæfudís, alla vegu Víðis jafni. Gulli hafs og silfri safni Segull — kraftur andans — vís. Ví KINGUR 169

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.