Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 37
Andvarp dagsins kom frá tann- lækninum: „í dag hef ég ekki séð einn kjaft“. * „Pabbi, kennarinn sagði, að sum dýr fengju nýjan pels einu sinni á ári“. „Það er rétt, drengur minn, en þú mátt ekki segja henni mömmu þinni frá því“. * Ef þú vilt sannfærast um hversu ómissandi þú ert, skaltu stinga fingrinum niður í skál með vatni og mæla svo holuna sem myndast þegar þú hefur tekið hann upp aftur. * Óli smiður lét sjaldan smámuni smámuni á sig fá. Eitt sinn kom sýslumaðurinn til hans og tilkynnti honum að föðurbróðir hans í Ame- ríku væri dauður og hefði arfleitt hann að hálfri milljón dollara og einum hundi. Óli sat þegjandi stundarkorn, og spurði svo: „Af hvaða hundakyni skyldi hann vera?“ * Tveir Marzbúar lentu geimskipi sínu í Afríku og voru strax um- kringdir af öpum. Þá sagði annar Marzbúinn við kunningja sinn: „Þeir líta sannarlega ekki svo heimskulega út þessir hérna, mér finnst útvarpsdagskráin hjá þeim ekki sem verst“. * livert skipti, sem við íörum hér framhjá. ^skrar strákurinn af hungrl víkingur Kalli sklfulagningamaður datt of- an af þriggja hæða húsi, og lá á götunni. Fjöldi fólks kom þegar á vettvang. Lögreglumann bar þar að og spurði hvað um væri að vera. í því stóð Kalli upp og sagði vun leið og hann burstaði rykið af fötum sínum: „Það veit ég svei mér ekki, eg er nýkominn hingað“. * Kona kaupmannsins var orðin af- brýðissöm út í kvenmann, sem lagði leið sína í búðina í tíma og ótíma. Kvöld eitt sagði hún við mann sinn: „Ég sá til þín þegar þú varst að klípa hana Sigríði í kinnina og þú kleipst hana hér og þar“. „Ójá“, sagði maðurinn. „Þetta var bara viðskiptaklípa". " * hefur verkað'." Fiskurinn kr.mur sprell lifandi úr dóslnni * Áætlunarbíllinn með leiklistar- fólkið var á skemmtiferð í Dan- mörku og ók framhjá gamalli sveitakirkju. Á tuminum stóð ár- talið 1643. „Hvað þýða þessar tölui’?" spurði ung leikkona. „O, það er símanúmer prestsins", svaraði bílstjórinn. „En praktiskt hjá honum! hróp- aði leikkonan. *■ • „Mamma, þarf ég að fara í skól- ann í dag, mér líður svo illa ?“ „Hvar líður þér illa ?“ „í skólanum". Kr nauðsynlegrt að svona fiskar fái hreint vatn á hverjum degri? * í fangelsinu: ,,Er það brennivínið, sem hefir komið yður hingað?" „Nei, það er vatn“. „Vatn?“ „Já, ég var mjólkurbússtjóri". * Landafræðitími í sovézkum skóla: „Hvað eru áttirnar margar?" „Fjórar". „Skakkt, þær eru þr1ár“. „Þrjár?" „Já, austur, vestur — og Júgó- slavía“. * Hver sagði þetta og hvenær? Æskufólkið er orðið spillt af of miklum þægindum, það er illa vanið og hefur fvrirlitninvu á vfirboður- um sínum. Það er hætt að rísa úr sætum sínum þegar fullorðið fólk kemur inn. Það stendur upp í hár- inu á foreldrum sínum og er sítal- andi þó gestir séu viðstaddir. það hámar í sig matinn og kúgar kenn- ara sína. Þetta er haft eftir gríska heim- spekingnum Sókrates, sem var uppi fyrir 2400 árum. Jríúaktin * Kínverskt spakmæli. Höggvið velgerðir í marmara. — Skrlfið mótgerðir í sand. * Heiðarleiki er ekki spurning um þrjá fjórðu hluta. Bolti með nálar- gati er næstum því heill. 173

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.