Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Blaðsíða 24
Uppsögn Stýrimannaskólans Stýrimannaskólanum var sagt upp þriðjudaginn 10. maí s.l. í 69. sinn. Friðrik Ólafsson skólastjóri gat þess í upphafi ræðu sinnar, að 21 ísl. sjómaður hefði látizt af slys- förum á þeim tíma, sem liðinn er af þessu skólaári, þar af tveir af fyrrverandi nemendum skólans. Við- staddir minntust hinna látnu sjó- manna með því að rísa úr sætum. Þá skýrði skólastjóri í stuttu máli frá störfum skólans á liðnu skóla- ári. 82 nýir nemendur komu í stýri- mannaskólann auk 47 manna, sem lásu undir hið minna fiskimanna- próf á námskeiðum skólans á Akur- eyri og í Vestmannaeyujm. Nemend- ur frá fyrra ári og eldri voru 47, svo að samtals voru 129 nemendur í stýrimannaskólanum í vetur, þegar flest var. Kennarar voru samtals 14, þar af 8 stundakennarar, auk þeirra, sem kenndu leikfimi, sund, björgun- aræfingar og meðferð talstöðva og dýptarmæla, en sú kennsla fór að mestu fram utan skólans. Samtals brautskráði skólinn 121 stýrimann á þessu skólaári, 79 með hinu minna fiskimannaprófi, þar af 15 á Akureyri, 28 í Vestmannaeyj- um og 36 í Reykjavík. Ennfremur 33 með fiskimannaprófi og 9 með farmannaprófi. Hæstu einkunnir við farmannapróf hlaut Guðmundur Ás- ^ötnmálmng S tré- og jArmklp, lesfamálnmg, ulAni>or<)smÁlni rv^ HARPA HF. geirsson, Seltjarnarnesi, 7.39. Hæstu einkunn við fiskimannapróf hlaut Gunnar Arason, Dalvík, 7.55, og hæstu einkunn við hið minna fiski- mannapróf hlaut Pálmi Stefánsson, Hafnarfirði, 7.46. Þá gat skólastjóri þess, að skól- anum hefði borizt vegleg gjöf á s.l. vetri. Er það forkunnarvel gert lík- an af kútter með rá og reiða, eins og þeir gerðust hér kringum alda- mótin síðustu. Líkanið gerði Jón Leví gullsmiður í réttum hlutföll- um, og til verksins munu hafa farið um 1300 vinnustundir. Kútterinn hefur lengi verið í eign Jónasar Hvannbergs kaupmanns, sem færði stýrimannaskólanum hann að gjöf um s.l. áramót. Skólastjóri færði gefandanum, Jónasi Hvannberg, sem sjálfur er gamall sjómaður, alúðar- þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf og velvild í garð skólans. Að skýrslu sinni lokinni ávarpaði skólastjóri nemendur og afhenti þeim skírteini. Hvatti hann nemend- ur til að vanda sem bezt störf sín á sjó og landi, ekki sízt meðferð afla og annars, sem þeir hefðu und- ir höndum, þakkaði þeim samveruna í skólanum og árnaði þeim heilla. Loks afhenti hann 4 nemendum: Einari Hálfdánssyni, Bolungarvík, Guðmundi Ásgeirssyni, Gunnari Arasyni og Reyni Guðmundssyni, Reykjavík, verðlaun úr verðlauna- og styrktarsjóði Páls Halldórssonar skólastójra. Farmenn: 1. Bjarnar Kristjánsson. Stkh. 2. Elías Kristjánsson, Rvík 3. Finnbogi Kjeld, Innri-Njarðv. 4. Guðmundur Ásgeirsson, Seltj.n. 5. Markús Alexandersson, Rvík 6. Ólafur Vilbergsson, Eyrarb. 7. Reynir Guðmundsson, Rvík 8. Þorvaldur Axelsson, Rvík 9. Örn Ingimundarson, Rvik. Fiskimenn: 1. Einar Hálfdánsson, Bolungarv. 2. Einar Kjartansson, Neskaupst. 3. Finnbogi Jakobsson, Bolungarv. 4. Gísli Gíslason, Neskaupst. 5. Guðmundur Arason, Sigluf. 6. Guðmundur Ulugason. Hafnarf. 7. Guðm. B. Sigurgeirsson, Bol.v. 8. Gunnar Arason, Dalvík 9. Gústav Sófusson, Garðahr. 10. Hilmar Harðarson, Akranesi 11. Högni Sigurðsson, Hafnarf. 12. Hörður Smári Hákonars., Rvík 13. Ingólfur Þ. Falsson, Keflavik 14. Jón G. Kristinsson, Rvík 15. Jón Þór Kristjánsson, Rvík 16. Jónas P. Jónsson, Reyðarf. 17. Kristján Kristjánsson, Hafnarf. 18. Kristján Pétursson, Grundarf. 19. Kristófer Reykdal Magnússon, Vestm.eyjum 20. Óli T. Magnússon, Rvík 21. Pétur Jóhannsson, Bíldudal 22. Sigurður Jónsson, Kópavogi 23. Símon Ellertsson, Akureyri 24. Snæbjörn Árnason, Rvík 25. Stefán B. Bragason, Akureyri 26. Sverrir Eðvaldsson, Akureyri 27. Stefán Borg Reumert, Hafnarf. 28. Þórarinn A. Guðjónsson, Rvík 29. Þórarinn K. Sófusson, Garðahr. 30. Þórir Dagbjartsson, Seyðisf. 31. Þorleifur Dagbjartss, Seyðisf. 32. önundur Kristjánsson, Raufarh. 33. Örn Hjörleifsson, Akranesi. Hið minna fiskimannapróf: 1. Alfreð Kristjánsson, Akranesi 2. Bairni Þórarinsson, Eyrarb. 3. Emil Jónsson, Rvík 4. Einar Jóhannsson, Rvík 5. Eiríkur Halldórsson, Húsavik 6. Gísli Marísson, Rvík 7. Guðbarjtur Gunnarsson, Hafn.f. 8. Guðbjörn Þorsteinsson, Rvík 9. Guðlaugur Óskarsson, Grindav. 10. Guðmundur Bergsson, Rvík 11. Guðmundur Æ. Ólason, RVík 12. Gunnar Vilmundarson, Vestm. 13. Halldór S. Karlsson, Akranesi 14. Haukur Guðjónsson, Grindavík 15. Helgi Símonarson, Rvík 16. Hörður Stefánsson, Rvík 17. Jóhann Guðbrandsson, Sandg. 18. Jón Ó. ívarsson, Skagaströnd 19. Jón H. Jörundsson, Keflavík 20. Jónatan Sveinsson, Ólafsvík 81. Karl Emilsson, Djúpavogi 22. Karl Símonarson, Grindavík 23. Konráð Ragnarsson, Ólafsvík 24. Kristmundur Halldórss., Ólafsv. 25. Ólafur Haraldss., Gerðum Garði 26. Ólafur R. Sigurðsson, Grindav. 27. Olgeir S. Ingimundarson, Akran. 28. Óli Bogason, Skagaströnd 29. Páll Gunnarsson, Reyðarfirði 30. Páll G. Lárusson, Sandgerði 31. Pálmi Stefánsson, Hafnarfirði 32. Sígurður Bjarnason, Bíldudal 33. Sigurður Gunnarsson, Hafnarf. 34. Sigurður K. S. Margeirsson, Sandgerði 35. Sigurður R. Steingrfmss., Rvík 36. Svanur Jónsson, Rvík. V ÍKING U R 160

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.