Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 14
Speimustillar fyrir rafala Útvegnm kolþrýstispennu- stilla fyrir 110 og 220 volta skiprafala frá Þýzkalandi, og fyrir 32 volta bátarafala frá Norks Jungner A.S. Veltum allar tœknilegar upplýsingar. Smith & Norland h.f. Pósthólf 519 — Símar 11320-21 STÁLSKIP Útvegum frá Austur-Þýzkalandi stálskip í öllum stærðum frá 75—1000 smálestir. Allar nánari upplýsingar gefa Eggert Kristjánsosn Sími 11400. Gunnar Friðriksson Sími 15401. DESA H. F. ÚTGERÐARMENN! Erum ávallt kaupendur að skreið til Nígeríu og- ftalíu. * Greiöurn liœsta verö. G. Helgason & Melsteh h.f. Hafnarstræti 19 — Sími 11644. Síðan komu: Snæfell, Garðar, Gylfi 2., Harðbakur og Gunn- ólfur. Fyrir hádegi á sunnudag var svo sjómannamessa. Séra Birgir Snæbjömsson prédikaði. Eftir hádegi hófst hátíðasam- koma við sundlaugina. Lúðrasveit Akureyrar lék undir stjórn Jakobs Tryggva- sonar, Herbert Jónsson, for- maður Sjómannadagsráðs, setti hátíðina og lýsti dagskrá. Aðal- ræðumaður dagsins var Gils Guðmundsson rithöfundur og flutti hann skörulegt erindi. — Karlakórinn Geysir söng undir stjóm Árna Ingimundarsonar, Hjörtur Gíslason flutti frum- samið kvæði og tveir karlar, þeir Herbert Jónsson og Finnur Daníelsson, ásamt konunum Fríðu Sæmundsdóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur, kepptu í: Nefndu lagið. Konumar sigruðu með yfirburðum. . . . < .. j ..... e Sundkeppnin. f staklcasundi sigraði Kristján Valdimarsson á 40,3 sek. Aðrir keppendur voru: Baldvin Bjamason, Björn Arason, Vern- harður Jónsson og Friðjón Ey- þórsson. Vegalengdin var 35 metrar. I björgunarsundi var Björn Arason hlutskarpastur. Hans tími var 59,4. Næstur varð Vernharður Jónsson, þá Magn- úr Lórenzson, Baldvin Bjarna- son og Kristján Valdimarsson. Bjöm Arason hlaut Atla- stöngina að þessu sinni fyrir hæsta stigatölu í samanlögðum keppnisgreinum ((44 stig). Landmenn og sjómenn kepptu í boðsundi og sigruðu þeir fyrr- nefndu. Verðlaunaafhending fór fram að keppni lokinni. Við sundlaugina var mjög mikill mannfjöldi. Veður var svalt, en þurrt. Merki voru seld á götunum, svo og Sjómanna- blaðið. Dansað var um kvöldið að Hótel KEA og í Alþýðuhús- inu. Framkvæmdastjórar Sjó- mannadagsráðsins voru Kristján Kristjánsson og Eggert Ólafsson og tókst vel. Bj örgunars kútusj óður Breiöafjaröar Yndislegt veður var á sjó- mannadaginn í Stykkishólmi, sól og logn mestan hluta dagsins og fóru hátíðahöldin vel fram. Hóf- ust þau með guðsþjónustu í Stykkishólmskirkju og prófastur sr. Sigurður Ó. Lárusson prédik- aði. Ýmsum íþróttum var keppt í og um kvöldið var samkoma í samkomuhúsinu. Þorleifur Jónsson framkvstj. flutti ræðu dagsins og ýms skemmtiatriði fóru þar fram. Lúðrasveit Stykkishólms lék úti um daginn. Bergsveinn Jónsson hafn- sögumaður flutti skýrslu um söfnun í Björgunarskútusjóð Breiðafjarðar, en hann er for- maður söfnunarnefndar í Stykk- ishólmi. Á söfnunardaginn 1. og 2. apríl var söfnunin í Stykkis- hólmi kr. 21.400.00. Seld minn- ingarspjöld á árinu voru fyrir kr. 685.00. Þá bárust minninga- gjafir frá Hólmurum búsettum í Reykjavík, nemendum Ágústu Ólafsson, sem hér var lengi kennari með ágætum. kr. 2000.00, og börn Ágústar Páls- sonar skipstjóra í Stykkishólmi gáfu kr. 10.000.00 til minningar um liann. Alls hefur sjóðnum borizt á þessu ári í Stykkis- hólmi kr. 34.085.00. Á öðrum stöðum á Nesinu hef- ur söfnunin gengið að óskum en þó misjafnlega. 1 Grundarfirði söfnuðust milli 60 og 70 þúsund. í Ólafsvík um 64 þúsund. I Breiðuvík um 6 þúsund. Á sl. ári söfnuðust í Stykkis- hólmi yfir 30 þús. kr. Þar af minningargjafir frá systrunum Björgu og Þuríði Magnúsdætr- um um hjónin Sigurbjörgu Guð- brandsdóttur og Guðfinn Björns- son frá Galtardal 2 þús. kr. og frá Bergsteini Jónssyni til minn- ingar um foreldra hans og syst- kini 10 þús. 150 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.