Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1960, Page 17
10,000 tonn í veiðiferð ekkert einsdæmi Borgin Murmansk er tæplega hálfrar aldar gömul. Árið 1917 voru þar aðeins 3.000 íbúar. Nú er þetta nýtízku stórborg, ein mesta hafnarborg Sovétríkj- anna. Murmansk er höfuðborg fisk- iðnaðarins. Þar hefur stærsti fiskveiðifloti Sovétríkjanna að- setur. Þaðan halda skipin til veiða í Barentshafi og Norður- Atlantshafi. Unnið er þarna allan sólar- hringinn. Landað er síldartunn- um, frystum þorski og karfa, og síðan eru veiðarfæri tekin um borð áður en haldið er aftur á veiðar. Anatoly Semenov skipstjóri á verksmiðjutogaranum „Gogol“ er vel þekktur í Murmansk. — Hann hefur starfað í mörg ár á fiskiflotanum. Semenov var áður skipstjóri á „Orochen", þegar það landaði eitt sinn 10.000 lest- um af fiski úr einni veiðiferð og hnekkti þar með öllum fyrri aflametum. Fyrir þetta afrek hlaut Semenov skipstjóri Lenin- orðuna. En nú hafa margar skipshafnir slegið þetta met. Á „Gogol“ er 100 manna á- höfn. Frystitæki eru í skipinu, og er þar hægt að frysta 30 tonn af fiski á sólarhring. Þá er í skip- inu tæki til niðursuðu, lýsis- bræðslu og mjölvinnslu. VÍKINGUR 153

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.