Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Side 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1963, Side 23
vitundarlauss manns. Þar eð aðeins á að anda frá sér, þarf ekki að óttast það, að þurfa að soga að sér neitt, sem ógeðfellt er. Vilji maður ekki beint snerta sjúklinginn, nægir að breiða hreinan klút á milli. Við öndunarbjörgun þarf eng- in tæki af neinu tagi, en til eru þó gúmmíblöðrur, svokallaðir Rubenpokar, með loftopi, til að setja yfir vit hins meðvitundar- lausa. Með því að þrýsta á blöðr- una í réttu hlutfalli við öndun manns, er unnt að þrýsta lofti niður í sjúklinginn sem um munn-við-munn aðferð væri að ræða. Væri einkum hentugt að nota slíkt tæki, ef til væri, þeg- ar færa þarf sjúklinginn til eða bera hann á börum. Munn- við- munn aðferðin er þó ætíð það tryggasta og bezta og er ekkert, sem tekur henni fram. YfirburSir öndunarbjörg- unarinnar eru fyrst og fremst þessir. 1. Engin sérstök tæki eru nauð- synleg. 2. Öndunaraðferðin vinnur bezt við flestar aðstæður. Hana er unnt að framkvæma án þess að hreyfa hinn meðvitundar- lausa til og meðan haldið er á honum í höndunum. 3. Björgunarmaðurinn er þann- ig á augabragði kominn í björgunarstöðu gagnvart sjúklingnum. 4. Björgunarmaðurinn getur með þessu móti komið súr- efni í lungu hins líflausa líkama fljótar og öruggar en með nokkurri annarri að- ferð, sem þekkist. •5. Björgunarmaðurinn þarf ekk- ert á sig að leggja annað en eðlilega öndun til að lífga þann, sem í dáinu er og hefur frjálsar báðar hendur til að hagræða og halda öndunar- rásinni opinni. ▼ÍKINGUB Sá meðvitundarlausi er lagður á bakið og höfuð hans sveigt aftur til að opna öndunarrásina. Hakan og tungan eru teygð fram, til að opna öndunarrásina betur. Byrjað er þegar að blása til að koma lofti í lungu þess meðvitundar- lausa. Takið munninn frá til að draga andann og hald- ið svo áfram að blása með jöfnu millibili meðan ein- hver von er til að geta lífgað manneskjuna. 6. Björgunarmaðurinn getur sjálfur skammtað blástur- inn eftir því hvort í hlut á, fullorðinn eða barn, og sér og finnur, þegar lífgunartil- raunin ber árangur. 7. Börn og unglingar geta þann- ig bjargað þeim, sem eldri eru og stærri, engu síður en jafnöldrum sínum. S. Björgunarmaðurinn . getur haldið björgunartilraunum áfram klukkustundum saman, án þess að reyna á sig um of. Leiðrétting Nokkrar meinlegar villur hafa slæðzt inn í greinina „Aldur dýra“, í 1. tbl. Víkingsins: Á bls. 9, í skýringum við mynd- irnar stendur: „hornaklauf“ les: hornalilaup. Á bls. 13: Rottualdur „39 ára gömul“ les: 39 mánaða. Á sömu bls.: I myndaseríunni stend- ur 11 við skýringarmynd fílsins, en á að vera 77 og táknar þá hámarks- aldur hans. 47

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.