Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Qupperneq 25
að magnast?
Stína kohhur
Kvenkokkar þykja hafa ffcfi/.t vel £
starfi til sjós.
Morgunroða hringamund,
hún býr rétti fína.
Hláturmild og hýr í lund,
heitir fröken Stína.
Laufguð eikin brosir blítt
barrtrénu á móti.
Mér verður um hjartað hlýtt,
þó hennar ekki njóti.
„SELJA“
Sindra af silfur-kvendi
sólstafir unaðsfagrir.
Björt mær af bárufaldi
býrð yfir töfrum nægum,
ljóðlegur gjörfuleiki
gerir hana svo prýða.
Til hennar oft ég orðum
yrði, úr Borgarfirði.
Kjaramálin og dýrtíðin eru enn eitt mesta vandamál þjóðar-
innar. Núverandi ríkisstjórn virðist sem og hinar fyrri hafa misst
tökin á þessum grundvallarmálum. Margir okkar trúðum þó því,
að með afnámi dýrtíðarvísitölu myndi vandinn verða viðráðanlegri
og allsherjar lækning geta orðið á verðbólgudraugnum. Nú sýnist
manni óðaverðbólga vera á næsta leyti, og áhyggjur launþega
þyngjast með degi hverjum, þar sem verðlag á nauðsynjavörum
hækkar stöðugt.
Ríkisstjómin hefur látið skipa nefnd til að athuga greiðslugetu
atvinnuveganna. í þá nefnd hefur verið skipað fulltrúum atvinnu-
rekenda og fulltrúum frá Alþýðusambandi íslands. Frá öðrum
stéttasamböndum eru engir fulltrúar og má það að nokkru teljast
undarlegt, þar sem ýmsir telja að núverandi stjórn Alþýðusam-
bands fslands sé ólöglega kjörin.
Engu að síður óskum við nefndinni heilla í störfum og vonum
að sá árangur verði af störfum hennar, að áhyggjum létti af þjóð-
inni við að búa í stöðugum ótta við sívaxandi dýrtíð og minnkandi
kaupgetu gjaldmiðilsins.
G. M. frá Reynlsdal.
Ö. S.
YÍKINGUR
193