Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Qupperneq 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1963, Qupperneq 3
Upphafsár vélvæðingar í Vestmannaeyjum Guðmundur Tómasson. Þorsteinn í Laufási. Mag'nús Hjörleifsson, Beyni. „Marz“ 8.60 toiui. Smíðaður í Danmörku árið 1911. Guðmundur Tómasson Berg- stöðum er fæddur að Gerðum í Landeyjum 24. júní 1886. For- eldrar hans voru Tómas Jóns- son og Þórhildur Ólafsdóttir. Guðmundur byrjaði ungur sjóróðra í Vestmannaeyjum og var svo á fyrstu mótorbátunum t.d. á Ingólfi með Guðjóni á Sandfelli og fleiri bátum. For- mennsku byrjaði Guðmundur 1912 með m.b. „Víking.“ Síðan tók hann „Marz,“ sem hann átti hlut í, og var með hann til ver- tíðarloka árið 1921. Eftir það er Guðmundur með ýmsa báta og er formaður enn í dag. Guðmundur sótti sjó fast alla tíð og hefur verið aflamaður á- gætur. Hann er nú orðinn við aldur og er enn glaður og reifur sem ungur væri. „Unnur“ 10.48 tonn. Smíðuð í Danmörku árið 1911. Þorsteinn Jónsson, Laufási, er fæddur í Gaularáshjáleigu í Landeyjum 14. okt. 1880. For- eldrar: Jón Einarsson og Þór- unn Þorsteinsdóttir. Þriggja ára gamall kom Þor- steinn með foreldrum sínum til Vestmannaeyja og ólst upp með þeim á Vilborgarstöðum. Eftir fermingu réðst Þorsteinn á op- ið skip til Hannesar Lóðs og svo á vertíðarskipið Isak. Þorsteinn byrjaði formennsku um alda- mót á „ísak“ og var með hann til vertíðarloka 1905, en þá kaupir hann annan fyrsta vél- bátinn og var það „Unnur“ 1. Þorsteinn var alls með þrjá báta með þessu nafni. Þorsteinn var formaður til 1940 og var með beztu fiskimönnum Eyj- anna og aflakóngur í tvö skipti. „Ceres“ 10.34 tonn. Smíðaður í Danmörku árið 1911. Magnús Hjörleifsson Reyni var fæddur í Naustahvammi í Norðfirði 5. des. 1891. Foreldr- ar hans voru Hjörleifur Mar- teinsson og Margrét Friðriks- dóttir. Magnús byrjaði ungur sjómennsku á Norðfirði og var þar síðar formaður með m.b. „Hrólf kraka.“ Til Vestmanna- eyja fór Magnús ungur eða um 1910 til sjóróðra en 1912 er Magnús háseti á m.b. „Ceres“ hjá Jóhanni Jónssyni í Brekku. Árið 1914 er Magnús á þeim sama bát en þá er Bjarni Há- varðarson formaður meðbátinn. 1915 tekur Magnús við for- mennsku á „Ceres“ og er með hann til 2. marz 1920, að hann ferst með allri áhöfn við 4 mann í ofviðri suður af Bjarnarey. Magnús var sjósóknari mikill og aflamaður ágætur. VlKINGUB 171

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.