Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Page 1
-5- _ifomannay_ VÍKINGUR * * Z//<ycjancll: (Uarmanna- oef (3iólitnannaSanihaml Ji)*(anill Ritstjórar: Guðm. Jensson áb. og Örn Steinsson. 11.—12. tbl. 1968 blaÉié XXX árgangur. mmmmmmmmrmmimmmmmmmmrmmrmmmmmrmmrmmmmimmfímimmmimmmmm GUÐM. JENSSON: SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 30 ÁRA Vi<5 þessi áramót lýkur þrítug- asta árgangi Víkingsins. Þeir menn, sem áttu hugmynd- ina aM stofnun fyrsta málgagns sjómanna, voru auöugri að hug- sjónum en veraldlegum gæðum. Þegar á fyrsta þingi Farmanna- sambandsins 2.—8. júní 1937 haföi Þorgrímur heitinn Sveins- son skvpstjóri framsögu um mál- ið. Hann vakti athygli á nauðsyn þess, að sjómannastéttin ætti sitt eigiö málgagn, þar sem hún gæti rætt og túlkað sín eigin áhuga- mál, án þess að vera háð duttl- ungum pólitískra flokka. . .Þriggja manna nefnd, sem vann ótrauðlega að því að færa þessa hugsjón til veruleikans, skipuðu þeir Hallgrímur Jónsson vélstj. Guðm. H. Oddsson skipstj. og Henry Hálfdansson, skrif- stofustj. Slysavarnafélags Is- lands. Freistandi væri að telja nöfn nokkurra þeirra, sem unnu af ódrepandi elju og atorku að því að hefja útgáfu blaðsins, en þar eru minnistæðastir Ásgeir heit- inn Sigurðsson skipstj., Grímur heitinn Þorkelsson skipstj., Kon- ráð Gíslason kompásasmiður, Þorsteinn Árnason vélstj., Þor- varður Björnsson yfirhafnsögu- maður, Sigurjón Einarsson skip- stj. og Friðrik heitinn Halldórs- son loftskeytam. Margir fleiri lögðu hönd á plóg- inn og yrði of langt mál aö rekja, en segja má að fjöldi manna úr sjómannastétt hafi með ráðum og dáð stuðlað að því, að Víking- urinn varð að veruleika. Eru þá margir ónefndir, sem vissulega eiga miklar þakkir skildar. Frá upphafi hefur blaðið gegnt tveim hlutverkum í senn; annars- vegar að flytja greinar um á- hugamál sjómannastéttarinnar og fræðandi greinar um málefni sjávarútvegsins, og hinsvegar efni til skemmtilesturs þannig, að hinir fjölmörgu lesendur finndu, sem flestir, eitthvað við sitt hæfi. Hefir hér oft verið úr vöndu að ráða, því takmarkið hefur á- vallt veriS að hafa blaðið sem fjölbreyttast að efni, enda þótt árangurinn hafi að sjálfsögðu stundum verið nokkuð misjafn eins og gengur og gerist. Á okkar mælikvarða mun Vík- ingurinn frá upphafi mega telj- ast þó nokkuð verðmætt blað, sem heldur gildi sínu og er girnilegi til fróðleiks fyrir þá, sem leita vilja fanga um heimildir að ýms- um málum, sem bæði snerta fisk- veiðar, farmennsku og ýms fram- faramál sjávarútvegsins. Mun tæplega ofmælt, að Vík- ingurinn hafi yfirleitt látið sig varða, að meira og minna leyti, öll þau mál, sem fram hafa verið borin sjómannastéttinni og þar með þjóðinni til heilla og fram- fara, og alloft átt þar frumkvæð- ið. Skömmu eftir að Víkingurinn hóf göngu stna, hófst ófriðurinn m. a. á hafinu, sem landslýð og ekki sízt mörgum sjómönnum er ekki úr minni liðinn. Fólk er yfirleitt gleymið á hlut- ina, en þjóðin og ekki sízt sjó- mannastéttin mætti minnast þess, að Víkingurinn studdi öll- um málgögnum fremur málstað hennar eftir mætti á striðstímun- um og vakti athygli alþjóðar á þeirri baráttu, sem hún háði á hafinu. Mun blaðið allgott heim- ildarrit um störf sjómannanna frá þeim tímum. Framhald á bls. 37U. mmmmmrmmrmmmmmrmmmjmmmmímmmmmmmmiMmmmmmmmmíMmmmmw aróœ It h omavi di ar!

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.