Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Qupperneq 9
fellskrók, sem næst í VNV í 20
mínútur, beygi þá til stb. á NV til
N og færi mig út á fyrstu súlu og
toga undan henni ljósri, þar til
Klofinn á stutt eftir að Helgafelli,
eða sem næst 25 mínútur, færi
mig þá út á tvær súlur vel ljósar
og toga undan þeim þannig, þar
til Klofanum veitir suður af
Helgafelli, beygi þá rólegan
snúning út á þriðju súlu. Þetta er
að verða tveggja tíma tog allt
með hrauni og líklegt að vart
gæti orðið, sérstaklega ef lítið
hefur verið togað þarna. Við híf-
um upp og fáum tvo poka af
þorski.
Nú er haldið áfram að toga og
kasta ég nú inn í SSA og læt Klof-
anum veita suður af Helgafelli.
Það eru 40 fðm. Þegar önnur súla
hverfur, beygi ég til stjb. á SSV
og held þar innáfyrstu súlu, beygi
þá rólegan snúning til Stjb. og
það alla leið upp á NNA. Þegar
önnur Súla er komin fram, held
ég austur, þar til Klofinn er kom-
inn yfir Helgafell. Er þá beygt
til bakborða og látið síga út á
þriðju Súlu og haldið á hana. Áð-
ur en lengra er farið vil ég geta
þess, að þessi snúningur inn í
hraunið, sem ég var að fara, er
kallað að toga inn á suðurslóð
Akurnesinga, og sem þeir að lík-
indum hafa fundið.
Við höldum þá áfram með tog-
ið og togum í ASA á þriðju súl-
unni. Þetta er langklártaf hrauni,
þegar baujan, sem ég kastaði við
fyrra holinu er komin mitt á
milli Vífilfells og Helgafells,
beygi ég inn á hana og toga lang-
leiðina að henni og hífi þar upp
og fáum aftur tvo poka, má vera
að suðurslóðin eigi sinn þátt í því
að svona vel tókst.
Til skýringar á að ég togaði
ekki til baka fyrra holið, þar sem
ég fékk tvo poka er sú, að í henni
Faxabugt er fiskur mjög dulur
eins og gömlu mennirnir kölluðu
það, eða öðru nafni brellinn, sér-
staklega átti það við ef fiskurinn
var stór þorskur, og oftastnær
var það sú tegundin, sem hélt
sig með hrauninu og krikum og
rennum þess, og var það því eins
VÍKINGUR
líklegt hefði ég kastað á sama að
við hefðum ekki fengið kvikindi
aftur. Ég held að hann hafi verið
brellnastur seinni part sumars og
að haustinu til.
Það hefur farið langur tími,
fyrst í baujustússið og síðan að
hafa tvö löng hol og innað Múla-
hrauni verð ég að vera kominn
fyrir sólsetur, og kasta ég því
innum með baujuna á stjb. á 29
fðm., fer á því dýpi fyrir Hval-
fellshornið eins og það er kallað,
og held á Helgafell með austasta
hnúkinn yfir. Þegar komið er
inn á Bláskeggsdal er beygt út í
hraunið til stjb. og hnúkurinn
látinn verða vel suðurhallandi, og
þannig dregið inn eftir á flötu
hrauni, þar til 10 mínútna tog var
eftir í Eyrarfjallið, þá var beygt
til bakborða og hnúkurinn látinn
koma yfir Helgafell og þannig
dregið langleiðina inn múla eða
nánar tiltekið þar til Hakið á
Rennuhálsinum kemur innundan
Akrafjalli. Er þá komið að svo-
nefndum Hámúlakletti, það verð-
ur að vera milli hnúka þegar far-
ið er fyrir hann, sem er 10 mín-
útna tog, og er baujan, sem ég
setti fyrst út við hann að innan-
verðu.
Við erum nú komnir inn Múla
og stutt í sólsetrið. Við hífum því
upp eftir mjög fiskilegt tog og
fáum 3 poka.
Nú verður að hafa snör hand-
tök, því yfirleitt eru það þrjú
næstu hol, sem skapa fiskiríið og
sem setja svip á túrinn. Við köst-
um því út í hraunið að innan-
verðu við Múlaklettinn og bauj-
una og allt teiknar þetta vel. Sól-
in sést um leið og farið er fram-
hjá baujunni og þá um leið farið
yfir hraunkantinn. Það er togað
í 10 mínútur V-N. Þá er haldið NV
þar til baujan kemur í endann á
Eyrarfjalli, þá er togað undan
henni þannig eða á hálfum Rennu-
hálsinum eins og það var kallað
og haldið fyrir Klofabaujuna á
stjórnborða. Þetta er 45 mínútna
tog, þá var beygt vel á stjórn-
borða og baujan látin bera í V-ið
sem er á milli Akrafjalls og
Rennuháls að ofan og undan því.
325