Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Qupperneq 39
HVAÐ ER NETFLOTUR?
Eftir Sigfús Magnússon. ^
Ég hef skýrt netflöt þannig.
1. Netflötur er net með fullopna
möskva.
2. Möskvi er fullopinn, þegar
langskurður möskvans er
sama og þverskurður sama og
stórhlið.
3. Þegar fullopnir möskvar eru
sannanlega til staðar í öllu
netinu þá er netið flötur eða
fullunnið net.
4. Reikningur fyrir netflöt,
heyrir undir rétthyrndan þrí-
hyrning.
Menn telja mig alvarlega geð-
bilaðan fyrir þessi skrif mín í
Víkinginn. Til þess að geðjast
lesendum, vil ég viðurkenna, að
ég er ekki alls kostar laus við
þessa veiklun, ég hef skapgalla,
sem heyrir undir geðtruflun, ég
er ákaflega bráður, t. d. þegar
mér finnst kominn tími til þess,
að senda bréf í Víkinginn, byrjar
það venjulega með því, að ég fer
að hugsa um þessa dæmalausu
smán, sem net hefur orðið fyrir,
vegna vísindamennsku lærðra
manna, að enginn þeirra hefur
tekið eftir því að net, eitt allra
efna, hefur ekki átt reiknanleg-
an flöt og ég verð strax ösku-
vondur og fer að skrifa bullandi
skammir. Þá gengur mér sæmi-
lega að koma orðum á blað.
En líklega er það vegna leti,
að ég nenni ekki að vera reiður
nema stutta stund í einu, svo þeg-
ar ég átta mig á því, að ég hef
verið í kasti, þá tek ég blaðið og
sting því ofaní skúffu. Það er
hvort eð er ekkert aðkallandi að
senda bréf í Víkinginn.
Svo eftir viku eða mánuð dett-
ur mér í hug að koma þessu bréfi
saman, þá tek ég blaðið og athuga
VÍKINGUR
Sigfús Magnússon.
hvað ég hef skrifað. Það ber ekki
á öðru, þetta eru rækilegar
skammir og verðskuldaðar.
En hver á að fá allar þessar
ágætu skammir.
Það er lóðið.
Þegar ég er ekki í kasti, er ég
sanngjarn inn við beinið og lík-
lega vilja allir þessir menn, sem
um þessi mál fjalla, gera sitt
bezta, athuga bara ekki, að veið-
arfæragerð úr neti, er þeim al-
gjörlega lokuð bók.
Það er nákvæmlega sama, hvað
þeir hafa lært og hvað gáfaðir
þeir eru á öðrum sviðum.
Þeir kunna ekki að reikna net-
flöt eða vinna hann upp og þessi
vanþekking fer með vísindin og
uppfinningarnar útí veður og
vind. Svo reyti ég utan af þessum
skömmum, svo þetta er ekki svip-
ur hjá sjón, þetta sem stendur í
Víkingnum, hjá því sem fór í
ruslafötuna.
Ég hef verið spurður að því,
hvað eiginlega ég meini, með þess-
um skrifum. Menn skilja hvorki
upp eða niður í því, sem ég er að
segja. Þá er það fyrst, og ég hef
sagt það áður, ég er að reyna að
vekja umtal um þessi bréf.
Það verður varla sagt, að ég
hafi reynt að gera mig vinsælan
með þessum skrifum.
Ég hef haft orð á mörgum
fræðilegum niðurstöðum í neta-
gerð sem menn skilja hvorki upp
eða niður í, sem engin von er til,
þegar á það er litið en engum
hefur komið til hugar að þekking
á netfleti er aðaluppistaðan í
verkfræðilegri netagerð.
Ég hef í öll þessi ár mikið rætt
um netfleti, sem ég hef kallað
fullunnið net og hvernig allt
bendir til þess að veiðarfæri sem
eru dregin, svo sem vörpur og
einnig snurpunætur, séu unnar
þannig að þær myndi rétta fleti.
Ég get ekki dregið til baka
neitt af því, sem ég hef sagt í Vík-
ingnum og látið það vera sem
ósagt væri.
Ég er að segja furðulega hluti,
sem líklega eiga sér enga hlið-
stæðu í veraldarsögunni, um há-
lærða menn, sem eru með margs-
konar ágizkanir og tilburði, sem
þeir kalla vísindalegar tilraunir
í veiðarfæragerð úr neti, en vita
ekkert að hverju þeir eru að leita.
Koma aldrei að sjálfu úrlausnar-
efninu, sem er verkfræðileg neta-
gerð og er netflötur frumatriði
fræðanna.
f síðasta bréfi réðist ég með
nokkurri frekju á hr. skipaskoð-
unarstjóra Hjálmar Bárðarson,
vegna nótarteikningar hans í
Morgunblaðinu. Það var ekki
vegna þess að þessi teikning væri
neitt frábrugðin öðrum netteikn-
ingum, heldur vegna þess að
þarna kom fram óvéfengjanlegur
netflötur, framsettur af listfengi
af þjóðkunnum manni. Þegar
dúkur er lagður á gólf, klæðir
dúkurinn jafnstóran flöt og hann
myndar sjálfur.
355