Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Side 43
I rússneska kaupskipaflotanum
eru seglskip sem skólaskip talin
ómissandi við þjálfun sjómanns-
efna í praktiskum greinum.
Sennilega á engin önnur þjóð
jafnmörg seglskip, sem notuð eru
til að þjálfa æskumenn.
Vorið 1967 voru sjö stór segl-
skip í notkun við þjálfun sjó-
mannsefna fyrir kaupskip auk
þriggja stórra vélknúinna skóla-
skipa. Þá hefur rússneski sjóher-
inn yfir allmörgum skólaskipum
að ráða, flest þeirra eru þriggja
mastra skonnortur. Meðal ann-
arra er ,,Kodor“ með 500 tonna
særými. Þetta skip á 9 systur-
skip.
Fram að seinni styrjöldinni
áttu Rússar aðeins eitt segla-
skólaskip. Það hét „Tovaristj,“
smíðað 1892 í Belfast og hlaut þá
nafnið „Lauriston," en kom til
Rússlands árið 1919. Á síðari
hluta annars áratugsins var skip-
ið notað sem skólaskip á Svarta-
hafinu og var þá undir stjórn
hins fræga seglskipastjórnara,
uppeldisfræðings og rithöfundar,
Lumanov að nafni. Öðru hverju
sást skipið einnig í ferðum í
lengri ferðalögum. Skipið fórst
árið 1944.
Eftir seinni heimsstyrjöldina
fengu Rússar ekki færri en fjóra
stórsiglara, sem teknir voru af
öxulveldunum. Meðal þeirra var
ítalski fullriggarinn „Cristoforo
Colombo," sem smíðaður var árið
1928 og dálítið minni en systur-
skipið „Amerigo Vespucci." —
Skipið var staðsett í Svartahaf-
inu og hefur ekki sézt annars-
staðar síðan Rússar tóku við
skipinu árið 1949.
Frá Þýzkalandi fengu Rússar
meðal annars tvö stór fjórmastra
barkskip, sem voru skírð „Sedov“
og „Krusenstern.“ Síðar nefnda
var smíðað árið 1921 í Kiel og
hét þá „Magdaline Vinnen.“
Var skipið þá stærsta seglskip
veraldar eða 3817 brúttótonn.
Síðar var skipið skírt „Kommo-
dore Johnsen“ og var notað sem
skólaskip í vöruflutningum fyrir
Norddeutseher Lloyd. „Sedov,“
sem er 3064 brúttótonn, var smíð-
að eins og „Padue,“ í Weser-
miinde árið 1926 fyrir útgerðar-
fyrirtækið F. Laeisz í Hamborg.
Talið er að báðir þessir stór-
siglarar séu enn í notkun sem
sjóhersskólaskip. Síðast sáust
þau 7. marz árið 1965, þegar þau
sigldu bæði suður á við gegnum
Eyrarsund, knúin áfram af
hj álparvélunum.
Þekktasta skólaskip kaupskipa-
flotans nú er hið þrímastraða
barkskip „Tovaristj II,“ sem áð-
ur hét „Gorch Fock“ með 1350
tonna særými, smíðað 1933 í
Hamborg fyrir þýzka sjóherinn.
Rússneskt skólaskip
a f nýrri gerft'.
VlKINGUR
859