Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Síða 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Síða 45
Skólaskipið „Kapella“ frá Riga. gott tækifæri til að kynnast sjó- mannsstarfinu. — Framundan Góðrarvonarhöfða lenti skipið í ofsaveðri og varð löngum að halda upp í. í þessu sama veðri fórst seglskipið „Pamir.“ „Tovaristj" missti mikið af seglum, einum bát týndu þeir, og loftnetið rifnaði niður. Það síðast- nefnda var einna alvarlegast, því að loftskeytastöðvarnar í Moskva, Odessa og rannsóknarstöð Rússa í Suður-lshafinu misstu sam- band sitt við skipið. Loftskeyta- stöðvarnar í Melbourne og Dur- ban töldu skipin af. En meðan á þessu stóð hentist skipið til og frá í hinum æðis- gengna sjó. Skipslæknirinn, Ser- gei Anistjeno, komst í þann vanda, meðan á þessum gaura- gang stóð, að þurfa að taka botn- langan úr einum skipsmanna. Til að geta athafnað sig við skurðborðið vegna veltings, varð hann að binda sig fastan viðborð- ið. 17—18 ára gamlir nemendur lögðu sig í hættu við að koma upp loftnetinu á ný. Þetta tókst, en menn geta ímyndað sér að sveifl- urnar, sem þeir fengu hátt uppi í möstrunum hafa ekki verið neitt litlar og betra að vera ekki mjög lofthræddur. Minnsta gerð' seglskólaskipa Rússa. Eftir seinna stríðið fengu Rússar fjöldann allan af tréskip- um. Voru mörg þeirra smíðuð í finnskum skipasmíðastöðvum. — Sum þessara skipa eru nú notuð sem skólaskip og önnur sem haf- rannsóknaskip. Sex skip þrí- mastra eru notuð sem skólaskip fyrir verzlunarflotann, en þau eru „Alfa,“ „Kapella,“ „Kodex,“ „Sirius,“ „Vega“ og „Zapad.“ Fiskiskipaflotinn og herinn nota einnig þessi skip, ýmist sem skólaskip eða til vísindalegra starfa. 1960 og 1961 fengu brezkar hafnir nokkrum sinnum heim- sókn af „Tropik“ og „Meridian,“ þegar þessi skip héldu heim til Rússlands að lokinni ferð um At- lantsháf með sjómannaefni fyrir fiskiflotann. „Krapotkin,“ samskonar skóla- skip fyrir fiskimenn heimsótti Bergen og Gautaborg 1960. Sum þessara seglskipa voru smíðuð í Ábo 1957—1958. Bark- skipin eru 134 feta löng og hafa 500 tonna særými, sem samsvar- ar ca. 335 brt. Þau eru búin kraftmiklum austurþ. hjálpar- vélum og eru með góð siglinga- tæki. Auk þess eru skipin mjög vönduð smíð, þar sem gert er ráð fyrir að þau geti siglt um íshöfn. Stóru barkskipin hafa vistar- verur fyrir 60 menn. Af þeim eru venjulega 40 nemendur á aldrin- um 17—18 ára. Minni seglskipin eru oftast skonnortur og eru venjulega með 300 tonna særými. Meðal þeirra er hafrannsóknaskipið „Zarja.“ (TekiS úr danska Víking). VÍKINGUR 361

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.