Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1968, Blaðsíða 49
neyzlu, af fjórum tonnum smjörs
„er aðeins smálest eftir“. Sænska
skipið „Killara“ er mjólkurkýr
samfélagsins. Úr þurrmjólk og
eggjum útbúa Skandinavarnir
nýmjólk.
Þakklátustu neytendur „Ice-
cream“ þess, sem framleitt er um
borð í „Miinsterland" eru skip-
verjarnir á Búlgarska skipinu
„Vassil Levsky“. I meðalhita 40
gráðum, án nokkurrar loftræst-
ingar, voru austantjaldsmennirn-
ir að örmagnast.
Egypzkur skipshandlari sér
um innkaup á ýmsum nauðsynj-
um, og er samkvæmt eigin um-
sögn „að verða auðugur af við-
skiptunum". Bandaríkjamenn-
irnir greiða í gjaldeyri, Pólverj-
arnir verzla lítið.
Vegna gjaldeyrisskorts var
Pólverjunum neitað um viðskipti.
Það sem þeir þurfa til viðurvær-
is er nú sent til þeirra í „Con-
tainers" frá Póllandi. Þýzka
skipshöfnin pantaði sér 1000 car-
ton af Holsteinbjór frá Ham-
borg, þar sem Egyptarnir selja
aðeins austur-þýzka saft.
„Hér verður þó enginn feitur"
segir Prissel skipstjóri með sína
12 manna neyðaráhöfn (venju-
leg: 42 menn) á tvöföldum laun-
um, sem þeir þó greiða tvöfaldan
skatt af. Nóg er fyrir þá að
starfa, vaktaskipti, mála og
skrúbba.
Á breska skipinu hefur GBLA
komið sér upp fótboltasvæði. Net
grípa of háan bolta. Lið frá nær
hverju skipi þreyta kappleiki um
verðlaun hvern miðvikudag. Fyr-
ir skömmu var bezta liðið sent í
land í Ismailia við lið úr Egypzka
hernum, sem mætti þó ekki til
leiks þegar til kom.
I október s.l. á sama tíma og
Olympíuleikarnir stóðu yfir í
Mexico efndi GBLA undir for-
ystu skipverja á pólska skipinu
„Djakarta“ til smá-olympíuleika
í Suez-skurði! Skipverjar á tékk-
neska skipinu „Lennice“ tóku
þátt í sjóskíðakeppni með hrað-
bát sem þeim tilheyrir. Og allar
skipshafnir taka þátt í lífbáta
kappróðrum, til þess að vinna sér
VÍKINGUR
Mriri-i.--
MHIÍJl
Seit dem israelisch-arabischen
Juni-Kriegl967 liegenl5Schifíe
aus acht Nationen im Suez-
Kanal fest
Timsoh-See
Glen- 6116 BRT
4975 BRT
1 462 BRT
Grofier Bittersee
6915 BRT
Bierutv 6674 BRT
Frankreich:
7051 BRT
Grofibritonnien:
10463 BRT
• Melompus-
•Agopenor-
10174 BRT
8511 BRT
7654 BRT
Schweden:
11 005 BRT
Nippon - 10309 BRT
I
Bundesrepublik:
9365 BRT
Nordwind- 8656 BRT
Frá því í júnístyrjöldinni 1967 milli
ísraels og Arabaríkjanna hafa 15 skip 8
þjóða legið föst þarna.
inn Afga-myndavélar sem veittar
eru til verðlauna.
Hamburg-Ameriku línan telur
tjón sitt af legu skips þeirra
þarna nema 450,000 DM á mán-
uði. Suez-skurðar forstjóri Nas-
sers tapar þó verulegar eða um
900—1000 milljónum marka ár-
lega í skipagjöldum. Stórtaparinn
Nasser neitar þó allri hreyfingu
við skurðinn, fyrr en Israelsmenn
hafi yfirgefið austurströndina og
þar með Sinai, en þeir yfirlýsa á
móti að slíkt komi ekki til greina,
fyrr en beinar samningagerðir
hafi tekizt milli deiluaðila.
„Við áætlum" segir Ali Mah-
moud forstjóri skurðarins,“ að
það tæki um þrjá mánuði að
hreinsa skurðinn. Og lauslega
reiknað myndi kostnaðurinn við
að koma skurðinum í siglingahæft
ástand verða um 100 millj.
marka“.
Yfirvöld skurðarins telja ekki
svo mikla hættu á sandburði,
heldur Egyptinn áfram, en bauj-
ur, siglingamerki, flutningabát-
ar, dráttarbátar og flugvélaflök
liggja í skurðinum, hve mikið af
slíku höldum við leyndu. Og Is-
raelsmenn eyðilögðu einnig með
skothríð siglingamerki og stöðv-
ar á strandlengju skurðarins.
Hinum 230 leiðsögumönnum í
skurðinum þar á meðal Þjóðverj-
um, Grikkjum og Pólverjum var
leyft af Egypzku stjórninni að
halda heim til sín, „þar til skurð-
urinn yrði opnaður að nýju“.
Egypzkir leiðsögumenn starfa
hinsvegar við skipaleiðsögn í
hafnarborgunum Aden, Port Su-
dan og Conakry.
Það sem eftir er af botnsköfu-
skipum grafa nú sand úr höfn
Alexandríu og Sýrlenzku hafnar-
borginni Tartu. Jafnvel í Kuweit
reyna hinir gjaldeyrisfátæku
Egyptar að leita eftir slíkum
verkefnum, — því að í þeirra
eigin skurði eru hernaðaraðgerð-
ir enn yfirvofandi.
Með síkældan Gin-Tonic undir
sólseglum á hádekki skipa sinna
verða meðlimir GBLA stundum
áhorfendur að vopnaviðskiptum
milli óvinaaðilanna. Fyrir stuttu
síðan eltu ísraelskar Mirage-
orustuvélar Egypskar Mig-vélar
yfir hafnarsvæði þeirra, í einu
slíku tilfelli kastaði egypsk flug-
vél frá sér vara'-olíutank, sem
féll niður nálægt þýzka skipinu
„Nordwind“. Þjóðverjarnir fisk-
uðu hann upp og ætluðu að búa
sér til bauju úr honum, en
egypzka lögreglan kom fljótlega
og sótti tankinn.
í dagbók Hamborgar skipsins
„Miinsterland“ hefur síðastliðna
15 mánuði verið skráð sama stað-
arákvörðunin: 30'19,4" norður
breidd og 32'21,6" austur lengd.
Hve lengi það verður ennþá
treystir skipstjórinn sér ekki til
að spá um: „ef til vill þrjá mán-
uði, ef til vill þrjú ár.“
(Þýtt úr Spiegel — Halld. J.)
365