Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Side 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Side 5
Landhelgin ljóð eftir Tryggva Emilsson Aö íslandsströndum hnígur haf er himinlind oss skóp og gaf, sem tár í rúmsins tóm. Þaö haf er brunnur auös og afls, er orkugjafi hins mikla tafls um lífsins dýra dóm. Vér Eylands börn viö ægisskör, meö ævitengsl viÖ djúpsins kjör, þaö haf er lífs vors hlíf. í brimi straums sem stendur laust býr styrkur vor, hiA gullna traust fyrir lands og þjóöar líf. Og þar viö sköpunaflsins önn, sem ein er heilög, frjáls og sönn og lífsins dýra Lofn, í lands vors helgi fiska fjöld skal friöarhöfn á nýrri öld. fyrir djúpsins dýra safn. Er boö af hafi grunntónn gnýr og goöasvörum að oss snýr, um hafsins heiönu bú, að geyma vel hins guttna arfs á gróöamiðum lífs og starfs, sé helgi, traust og trú. En nú í dögun vitum vér oss vamarskyldu að höndum ber viö sjávarlífsins safn, að valda helgi íslands alls, um Unnarslóöir dals og fjalls, í lög vi8 lands vors nafn. Og lands vors nafn vi8 íshöf yzt, meö eylands dirfö í starfi og list, fær dýprí, hreinni hljóm, er frelsi knúin fiskigengd fær fríðarmörkin landi tengd, í hafi helgidóm. A8 nema lög þín Norðurslóð við neistakast frá stjarnaglóð og hvítra boöa brim, er skyldugrein frá þeirri þjóð sem þylur íslands sagnáljóð við þyngstu sjóa þrim. Til hafs vér sækjum björg í bú og blóösins afl fyrír mennt og trú og föng í fólksins önn, því er oss landsins helgi í haf jafn heilög þeim sem lífið gaf, jafn sigurviss og sönn. VÍKINGUR 293

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.