Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Page 11
Sigurpáll ungur að árum. óf. Föður hans var litið út og sá að ekki var allt með felldu. Stebbi sat og öskraði, og þegar faðirinn kom út, heyrði hann að Stebbi æpti að Palli hefði dottið í ánna. Faðirinn brá skjótt við, hljóp niður með ánni og dró Sigurpál uppúr, sem þá hafði borizt 40-50 metra niður eftir ánni. Og illa hefði sjálfsagt farið, ef faðir hans hefði ekki komið til hjálpar, því áin endaði í stórgrýttri fjöru. I heimahúsum kenndi faðir Sigurpáls honum ásamt fjórum systkinum hans reikning, skrift og lestur. Síðar er honum svo komið til náms í Ólafsfirði hjá þeim heiðurs hjónum Randver Jónssyni og Margréti Ámadótt- ur. Uppihaldið varð Sigurpáll að greiða með vinnu. Vinnan var í því fólgin að beita eitt bjóð og stokka upp 3 í hverjum róðri og var Sigurpáll reiknaður hálf- drættingur. Tveir karlmenn voru við hvern bát og sáu þeir um aðgerð og söltun á fiskinum, auk þess sem þeir bættu á lóðimar. Bátur sá, sem Sigurpáll var við hét „Óskar“, 4-5 tonna stór. For- maður var Guðmundur Ólafsson, dugnaðarmaður og einn af fyrstu vélbátaformönnum í Ólafsfirði. Eigandi bátsins var Páll Bergs- son, kaupmaður. Við þennan bát VlKINGUR var, auk Sigurpáls, Randver, sem fyrr var nefndur, og gömul kona, móðir formannsins, en hún sá aðallega um söltun aflans, og hafði hálfan hlut á móti Sigur- páli. Þriggja manna áhöfn var á „Óskari“ og var einn af þeim sonur formannsins, Guðmundur að nafni, 16 ára, sem seinna varð fyrsti formaður Sigurpáls á vélbátum, þá 19 ára að aldri, en Sigurpáll 16 ára. Báturinn hét „Garðar,“ 6 tonn, og var með 6 hesta Danvél. Þennan bát áttu þeir feðgar, Guðmundamir, ásamt Árna Jónssyni á Syðri Á. Kaupið yfir vertíðina, sem var 3 mán., var 400 kr. og frítt fæði. Árið eftir ræður Sigurpáll sig á hákarlaskipið „Kristjönu" frá Siglufirði. Skipstjóri var Bjöm Sigurðsson frá Vatnsenda í Héð- insfirði, frændi Sigurpáls, og stýrimaður var Einar frá Ámá. Sigurpáll var ekki mikill að vexti, þegar hann réðist á „Kristjönu“, en vegna frændseminnar var hann ráðinn sem fullgildur. Skráð var á skipið seint í marz og voru áhafnarmeðlimir 12 að tölu. Veiðum var hætt um 12 vikum af sumri, en þá tók hey- skapurinn við hjá bændum. Þeir á „Kristjönu“ fiskuðu vel. Fengu þeir yfir 450 tunnur lifrar yfir vertíðina. Hákarlinn var ekki hirtur, nema þá ef menn hirtu nokkrar beitur í túr. Þá voru borgaðar 50 kr. fyrir lifrartunn- una og varð hlutur Sigurpáls, á „Kristjönu“, 960.00 kr., sem þótti gott' þá. Enginn matsveinn var á skipinu og hafði því hver skip- verji með sér skrínukost að heiman. Þegar komið var til Siglufjarðar, úr hverjum „túr' varð hver maður að fara heim til sín til að sækja mötuna (skrínu- kostinn) fyrir næstu ferð. Það var misjafnlega langt, sem hver og einn varð að fara eftir möt- unni. Sumir fóru sjóleiðina á árabátum en aðrir gangandi yfir fjallvegi eins og t. d. þeir sem áttu heima í Héðinsfirði, Fljóta- menn eða þeir sem voru frá Ulfs- Dölum. Það hefði verið munur, ef Strákavegur hefði verið kom inn þá. Aðalveiðisvæðið, þeirra é „Kristjönu“, var úti af Homi eða í vesturkanti Húnaflóa. Menn voru 6 á vakt og stóðu uppi 6 tíma í einu. Undir hákarla- vaðnum sátu 4, en 2 voru svo- kallaðir lausingjar, og höfðu það verk með höndum að vera að- stoðarmenn vaðmannanna. Þegar hákarlavaðurinn var dreginn inn, með hákarli á, stóðu vaðmenn- irnir sitthvorumegin við vaðinn og drógu hann samtímis inn. Sóknin (öngullinn) var beitt þannig að annar hver krókur var beittur með selspiki, sem var fast við skinnið, en hinn með hrossa- keti vel úldnu. Hrossakjötið mátti ekki vera saltað og sel- spikið ekki þrátt, því að við svo- leiðis óþverra leit hákarlinn ekki. Frá sókninni (önglinum) lá keðja í stein, sem kallaður var vaðsteinn. Ur vaðsteininum kom 2 metrar langur kaðall. Færið var venjulega 60 faðma langt, en styttist í 50 faðma við snún- inginn. Við borðstokkinn var allt- af hafður klár stór og mikill krókur, sem festur var í talíutó. Á þessum krók var hákailinn hífður upp úr sjóskorpunni það hátt, upp á síðu skipsins, að hægt væri að ná úr honum lifrinni. En áður en það skeði hafði verið rekið í hákarlinn hákarladrepi. Skaptið á þessum hákarladrepi var 3 álnir með 14 tommu löngu blaði. Annar lausi maðurinn var með drepinn og rak hann í mænu hákarlsins, sem er aftan við hausinn, en vaðmaðurinn hélt í keðjuna á meðan. Eftir þetta var króknum krækt, eftir kúnstarinn- ar reglum, í hausinn á hákarlin- um þannig, að þegar búið var að hífa hákarlinn upp, snéri kvið- urinn aftur svo betra væri að ná til lifrarinnar. Að þessu loknu var skálinni (löngum hníf) brugðið þannig að skorið var niður við bæði kjaftvik hákarls- ins, og tálknin með, þar til komið var að munnmaga hans, en þá var orðið hægðarleikur að draga lifrina upp úr maga hákarlsins. 299

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.