Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Síða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Síða 13
2 krónur fyrir tunnuna. Meira var ekki hægt að greiða, þegar búið var að naga utan af greiðsl- unni handa einkasölunni, enda valt einokunin um koll við lítinn orðstír. Þá var bátunum skammt- að veiðileyfi þannig að bátar und- ir 12 tonnum máttu ekki leggja á land meira en 500 tunnur og bátar yfir 12 tonn 750 tunnur. Árið 1933 tekur Sigurpáll við fonnennsku á 12 tonna bát, sem „Bragi" hét. Var eigandinn Árni Bergsson, kaupmaður, sem einn- ig hafði með póst og síma að gera á Ólafsfirði um árabil. Þennan bát var Sigurpáll með í 5 ár. Fyrstu 2 árin stunduðu þeir aðallega línu- og rekneta- veiðar frá Ólafsfirði og Siglu- firði, eftir því hvort hentaði betur vegna árstíðar. Engar hafnarbætur voru komnar á þess- um stöðum þegar Sigui*páll var með „Braga“. Árið 1935 voru 3 bátar gerðir út í félagi á snurpunót frá Ólafs- firði. Voru þeir í daglegu tali nefndir þrílembingarnir. Bátarn- ir voru „Kári“, 12 tonn, „Gull- foss“, 11 tonn og „Bragi“. Átti einn bátana að vera móðurskip, með megin hluta mannskapar- ins um borð, og draga snurpu- bátana, en hinir áttu að flytja veiðina í land. Hver bátur hafði 6 manna áhöfn, en við veiðamar voru 2 menn um borð í aðstoðar- bátunum, en 16 um borð í móður- skipinu. Það var þvi oft þröngt á þingi um borð í hinu 12 tonna móðurskipi. Þegar legið var við land eða á leiðinni á miðin, var venjulega hver skipshöfn um borð í sínum bát. Næstu 3 árin, 1938-1941, er Sigurpáll á ,,önnu“ 28 tonna bát og „Einari Þveræing“ 14 tonna bát, sem báðir voru í eigu Magn- úsar Gamalíelssonar. Það þótti Sigurpáli lúxus líf, að vera á þessum bátum, samanborið við veruna á þrílembingunum. „Anna“ var gerð út á snurpu veiðar og var nótabassi Ásgeir Frímannsson. Auk þess var svo „Anna“ gerð út á línu og reknet frá Ólafsfirði. VÍKINGUR Fjórðu vetrarvertíðina var „Anna“ leigð og hafði Guðmund- ur á Rafnkelsstöðum bátinn á leigu. Var Garðar Gíslason skip- stjóri á bátnum og fylgdi Sigur- páll bátnum eftir. Vera Sigur- páls á vertíðinni frá Sandgerði var stutt að þessu sinni. Ástæðan fyrir því var sú að hann og ann- ar Ólafsfirðingur, Jón Björns- son, festu kaup á gömlum bát „Gulltopp" ST 25, 48 tonn að stærð. „Gulltoppur" hét áður „Ingimundur gamli“ og var þá varðbátur. Seljandi var Guðjón Finnbogason úr Reykjavík. „Gulltoppur" var á togveiðum í Faxaflóa, þegar kaupin áttu sér stað með fullum mannskap, og var skipstjóri Guðmundur Ing- varsson. Sigurpáll þurfti því ekki annað en að ganga um borð sem einn af áhöfninni. Þetta var 19. janúar 1941. Guðmundur var með bátinn um veturinn, en þá tók Sigurpáll við skipstjórn- inni og var með bátinn á tog- veiðum fyrir norðan. Á meðan þeir félagarair áttu „Gulltopp“ var Sigurpáll lengst af sem stýrimaður um borð. Báturinn var gerður út á fleira en togveið- ar eins og t. d. snurpu, reknet eða annað eftir því hvað hent- aði hverju sinni. Báturinn var aðallega gerður út frá Norður- landi og varð árangurinn af út- gerðinni misjafn, eins og geng- ur. Um togveiðar frá ólafsfirði er það að segja, að það mun hafa verið „Kristjana“, 26 tonna bát- ur, skipstjóri Ásgrímur Sig- urðsson, sem fyrst mun hafa byrjað með troll og snurvoð árið 1939. „Sjöstjarnan“, skipstjóri Jón Sigurpálsson, er svo næst á trolli árið 1940. Eigendur „Sjö- stjörnunnar“ voru 4, þeir Árni Jónsson á Syðriá, Gunnar Bald- vinsson, Sigvaldi Þarleifsson og skipstjórinn. „Sjöstjaman“ var gerð út frá Ólafsfirði í nokkur ár, og gekk útgerðin vel, en var síðan seld til Akureyrar. Á eftir þessum bátum kemur svo „Gull- toppur“, sem þeir félagar áttu í 6 ár. Ur því fara nýsköpunar- bátarnir að koma til Ólafs- fjarðar. Sigurpáll byrjaði að stunda sjó frá Suðurlandi 1938 til ársins 1958. Var það eingöngu við Faxaflóa og þá aðallega á vetrar- vertíðum. Lengst af var Sigur- páll í Sandgerði og Keflavík hjá útgerð Guðmundar á Rafnkels- stöðum og Lofts Loftssonar. Hjá útgerð Lofts var Sigur- páll á „Geir Goða“, skipstjóri Bragi Einarsson, og eina vertíð var hann með Atla Þorbergssyni á „Agli“ frá Ólafsfirði, sem var leigubátur og gerður út frá Sandgerði. Skipstjórar á bátum Guðmund- ar á Rafnkelsstöðum voru, Garð- ar, sonur Guðmundar, og var Sigurpáll lengst með honum á „Mumma". Þorsteinn bróðir Braga, sem áður er nefndur, og var með „Víði“. Seinna tók svo Eggert Gíslason við „Víði“ af Þorsteini. Síðasta veturinn, sem Sigur- páll var á vegum Guðmundar var hann í landi, nokkurs konar ,,reddari“. Hafði hann það verk með höndum að hafa til taks, þegar bátarnir komu að landi, ýmislegt sem þá vanhagaði um, eins og t. d. ef veiðafærin gengu úr sér eða eitthvað af þeim tap- aðist. Þegar hálfur mánuður var eftir af vetrarvertíðinni varð stýrimaðurinn á „Rafnkeli", sem Garðar var með, að hætta og brá Sigurpáll sér í plássið og endaði þar með vertíðina. Eftir að Sigurpáll hættir hjá Guðmundi fer hann á „Stíganda“ frá Ólafsfirði og er þar til árs- ins 1959. Þetta ár hættir hann sem fiskimaður og fer sem há- seti á varðskipið „Albert“ og er þar í 2 ár. Þá axlar Sigurpáll sjóferðarpokann sinn og snýr sér að búskap. Hann kaupir jörðina, Bústaðir í Lýtingastaðahreppi, Skagafirði og er þar við búskap í 7 ár, en snýr sér þá aftur að sjónum og byrjar þá sem háseti á varðskipinu „Óðni“ og síðan á „Þór“, þar sem hann er enn. Helgi Hallvarösson. 301

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.