Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Page 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Page 18
Frá matsveinanámskeiðinu: Sitjandi frá vinstri: Ármann Eyjólfsson skólastjóri, Sigurgeir Jó- hannsson aðalkennari og Helgi Bernódusson kennari. Sitjandi frá vinstri: Haraldur Þórarins- son, Oddur Guðlaugsson, Ólafur Runólfsson, Ole Gaard Jensen, Björn Guðmundsson, Gísli Guð- mundsson, Gísli Guðjónsson og Magnús Sveinsson. mundsson, 8,53. Ingólfur Geirdal, 8,45. Nokkrir nemendur hyggja á framhaldsnám í III. bekk í Rvík. næsta vetur. Aðalprófdómarar við prófið voru vélstjórarnir örn Aanes og Gunnar Ólafsson. Aðstoðar- pródómarar voru Hörður Bjarna- son og Haukur Guðmundsson rafmagnseftirlitsmaður. Aðalkennari Vélskólans auk skólastjórans, Jóns Einarssonar, er Róbert Hafsteinsson. Matsveinanámskeið: Hinn 15. janúar s.l. lauk mat- sveinanámskeiði því, sem hófst hér í Vestmannaeyjum haustið 1969. Á fyrrihluta námskeiðsins voru 15 nemendur og var sá hluti ein- göngu verklegur, og náðu 13 nem- endur framhaldseinkunn. Síðari hluti námskeiðsins hófst 15. sept. s.l. og var kennsla bókleg og verkleg. Bókleg kennsla var í ensku, reikningi og matreiðslu. Nám- skeiðið var haldið á vegum Stýri- mannaskólans í Vestmannaeyj- um og Matsveina- og veitinga- þjónaskóla Islands. Sigurgeir Jóhannsson sá um verklega kennslu í matreiðslu. Fór kennslan fram í eldhúsi mat- stofu ísfélagsins, sem rekið er í sambandi við sameiginlega mat- stofu frystihúsanna hér í bæ. Bókleg kennsla var í Stýri- mannaskólanum. Prófið var verklegt og bókiegt. Prófdómari í verklegri og bók- legri matreiðslu var Magnús Guð- mundsson bryti á Hrafnistu, sem er fastur prófdómari við Mat- sveinaskólann í Reykjavík. I bók- legum greinum var Einar H. Ei- ríksson skattstjóri pródómari. Fullgildu matsveinaprófi luku 7 nemendur og fá þeir samkvæmt lögum um matsveina á kaupskip- um og fiskiskipum réttindi til að vera matsveinar á fiskiskipum og flutningaskipum, sem eru 100 rúmlestir brúttó eða stærri og á farþegaskipum upp að 800 rúm- lestir (T. d. er Herjólfur 495 rúmlestir brúttó). Fyrir þá, sem ætla sér að ná réttindum bryta og ljúka 4 ára námi við Mat- sveina- og veitingaþjónaskólann í Reykjavík, styttir þetta nám- skeið námið um 8 mánuði. Námskeiðið er hið fyrsta sem haldið er utan Reykjavíkur og útskrifar matsveina með fullum réttindum. Hæstu einkunn á námskeiðinu hlaut Ólafur Runólfsson, Fjólu- götu 11. Fékk hann 8 í meðal- einkunn, en í bóklegri matreiðslu fékk hann 10, og í verklegri mat- reiðslu 9,5. Aðrir að einkunn og jafnir voru: Björn Guðmundsson, Kirkjuvegi 88, og Magnús Sveinsson, Hvít- ingavegi 10, með 7,8. Aðrir sem luku prófi voru: Gísli Guðjónsson, Heiðarvegi 49, Haraldur G. Þórarinsson, Mið- stræti 16, Oddur Guðlaugsson, Lyngfelli, og Ole Gaard Jensen. Skólastjóri Matsveinaskólans, Tryggvi Þorfinnsson, og próf- dómari í verklegum. fögum lýstu ánægju sinni með prófið og frammistöðu nemenda. 306 VIKIN GUiR'

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.