Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Page 27
Nemandi getur hafið nám í 1. stigi 17 ára
gamall og komizt í 2. stig, ef hann nær fram-
haldseinkunn. I 2. stigi hefja vélvirkjasveinar
vélstjóranámið.
Þegar þessi breyting varð á skólanum, var hafin
smíðakennsla, þannig að smíðar eru kennndar í
öllum stigum. Vélvirkjar eru undanþegnir smíða-
kennslunni.
Að loknu prófi úr 4. stigi þurfa nemendur að
fara í tveggja ára vélvirkjanám, og að því loknu
ganga þeir undir sveinspróf í vélvirkjun. Þá fyrst
hafa þeir öðlast full réttindi.
Þeir þurfa ekki að fara í Iðnskóla, því á með-
an þeir fara í öll stig skólans, læra þeir allt það,
sem vélvirkjum er kennt í Iðnskóla, svo sem teikn-
ingu, efnisfræði, tækjafræði, málmfræði o. fl. Hin
síðari ár var einnig hafin kennsla í stýritækni og
sjálfvirkni. 1 sambandi við sameiningu mótornám-
skeiðanna og Vélskólans ey rétt að rifja upp þró-
un þeirra mála.
Þegar Vélskólinn var stofnaður, var skipakost-
ur landsmanna þannig, að þau voru stór á þeirra
tíma mælikvarða, og nemendur Vélskólans fóru á
þau skip sem vélstjórar. Þá var bátaflotinn frekar
smáar fleytur með litlum mótorum. Algengastir
voru hinir svokölluðu glóðarhausmótorar. Það
þurfti að veita mönnum, er gættu þessara
véla einhverja fræðslu um meðferð þeirra. Fiski-
félag Islands, sá um þessa fræðslu og held ég að
fyrstur manna, er að þessu vann, hafi verið ól-
afur Sveinsson, síðar skipaskoðunarstjóri. Fleiri
ágætir menn störfuðu að þessu, m. a. Þórður Run-
ólfsson, er var nemandi frá Vélstjóraskólanum í
Reykjavík og lærði síðan tæknifræði í Þýzkalandi
og varð síðar öryggismálastjóri ríkisins. ólafur
Sveinsson samdi kennslubók í mótorfræði, sem
fyrst var notuð. Þórður Runólfsson samdi einnig
kennslubók, er lengi var notuð. Þórður hefur ver-
ið stundakennari við þennan skóla í fjölda mörg
ár, og við erum svo heppnir að njóta starfskrafta
hans ennþá, og vona ég, að svo megi verða áfram,
og býð ég hann sérstaklega velkominn til starfa
að þessu sinni.
Sá maður, sem lengst starfaði að þessum málum
hjá Fiskifélagi íslands, var Þorsteinn Loftsson.
Mikið starf lá eftir hann, þegar hann lézt. Hann
var vel menntaður í sinni grein og afburða kenn-
ari. Hann gaf út kennslubók í mótorfræði, sem
við notum ennþá við 1. stigið. Ég var svo lán-
samur að kynnast Þorsteini. Kennsluferil minn
hóf ég hjá honum, þá ungur að árum, nýútskrif-
aður frá Vélskólanum.
Vélskólinn er fullsetinn í vetur. Neita varð
u.þ.b. 30 nemendum inngöngu í 1. stig vegna
húsnæðisskorts og tækjaleysis.
I skólanum verða 12 bekkjardeildir, en kennslu-
stofur eru aðeins 9, svo að við verðum að kenna
áfram í anddyri skólans. Ég hygg, að aðsókn að
skólanum hafi aldrei verið meiri en nú.
I 1. stigi verða 3 deildir, alls um 70 nemendur.
I 2. stigi verða 4 deildir, þaraf ein með vél-
virkjum, alls um 90 nemendur.
I 3. stigi verða 3 deildir, þaraf ein sveinadeild,
alls um 70 nemendur.
I 4. stigi verða 2 deildir, önnur sveinadeild,
alls 40 nemendur.
1 Reykjavík verða því um 270 nemendur í vetur.
I Akureyrardeildinni verða 1. og 2. stig, alls
um 35 nemendur.
í Vestmannaeyjadeildinni verða 1. og 2. stig,
alls um 30 nemendur.
Setning deildanna á Akureyri og í Vestmanna-
eyjum fer einnig fram í dag. Forstöðumaður á
Akureyri er Bjöm Kristinsson, en í Vestmanna-
eyjum Jón Einarsson.
I Vélskóla íslands verða því alls um 335 nem-
endur í vetur.
Það hefur ekki verið skemmtilegt starf hjá mér,
meðan á undirbúningi skólans stóð, að þurfa að
neita svo mörgum nemendum um skólavist, vit-
andi það, að vöntun er á vélstjórum á skip lands-
manna, að þurfa að neita svo mörgum piltum
um skólavist, er hjálpa vilja við þjóðarbúið með
því að fara út á sjó og draga björg í bú, svo að
við getum haldið áfram að lifa mannsæmandi lífi
í þessu landi.
Sú breyting verður á kennaraliðinu, að nýir
kennarar verða: véltæknifræðingur, raftæknifræð-
ingur, rafvirki og tveir smíðakennarar. Þessir
menn verða ráðnir alveg næstu daga, en umsókn-
arfrestur um þessar stöður rennur út í dag. Marg-
ir ágætir menn hafa sótt um þessar stöður. Nýr
lausráðinn kennari í vetur verður Atli Marinós-
son vélstjóri. Ég býð eldri kennara og þá nýju
velkomna til starfa.
Yfirstjóm skólans er í höndum menntamála-
ráðuneytisins. Þar hef ég mætt miklum skilningi
og velvilja í málefnum skólans. Að skólanum
koma nú 5 fastráðnir kennarar, eins og ég sagði
áðan, 2 tæknifræðingar, kennari í verklegri raf-
magnsfræði, svo og 2 fastráðnir smíðakennarar.
Undanfarin ár hefur það háð starfsemi skól-
ans, hve erfitt hefur verið að fá kennara í raf-
magnsfræði. Með skilningi menntamálaráðuneytis-
ins á þessu, tókst það.
Við Vélskólamenn lítum vonglaðir til framtíðar-
innar. Mikil aðsókn er að skólanum og aukinn
skilningur ráðamanna á hlutverki hans.
Alveg nú á næstunni verður hafizt handa um
smíði viðbótarskólahúss; veittar voru 7 milljónir
til framkvæmda á þessu ári, og von er á fjár-
veitingu á fjárlögum næsta árs. Mjög er aðkall-
andi, að skólinn eignist aukinn tækjakost í stýri-
tækni, vélfræði, rafmagnsfræði, og smíðatæki, og
jafnframt að eiga þess kost að geta sent kennara
315
VlKINGUE