Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1971, Side 39
koma á sameiginlegum fundi
allra yfirmanna á fiskiskipum
við Eyjafjörð og voru margvís-
legar ástæður fyrir því. Fund-
urinn var vel sóttur og voru að-
komumenn: formaður félagsins,
forseti F.F.S.I., sem staddur var
á Akureyri við eftirlit með við-
gerð á m.s. Heklu auk undir-
ritaðs. Mörg málefni voru rædd
á fundinum, sem snertu sjómenn
svo sem landhelgismálið, trygg-
ingarmálin, frádráttur þegar
landað er erlendis, kauptrygging
og frítt fæði. Fleiri mál voru
rædd svo sem öryggismál. Ing-
ólfur S .Ingólfsson ásamt mér fór-
um til Dalvíkur og var reynt að
hafa tal af mönnum þó ekki væri
um fundi að ræða. Til Ölafsfjarð-
ar fórum við einnig þó ekki yrði
árangur sem erfiði. Á fimmtu-
dag 9. september var haldinn
fundur á Neskaupstað með skip-
stjórnarmönnum. Rædd voru
flest hin sömu mál og á Akur-
eyri. Á föstudag var haldið af
stað áleiðis til Hornafjarðar en
fundur hafði verið auglýstur þar
síðdegis á laugardegi. Rætt var
við þá menn, sem til náðist á suð-
urfjörðunum.
Fundur hófst á Höfn í Horna-
firði kl. 16.00 með skipstjómar-
mönnum og voru mörg mál sjó-
manna rædd. Þegar þessum fund-
arhöldum lauk var eftirfarandi
fréttatilkynning send blöðum,
útvarpi og sjónvarpi.
„Aö undanfömu hafa verið
haldnir fundir norðanlands og
austan á vegum Skipstjóraf élags-
ins Öldunnar og Vélstjórafélags
íslands. Auk kjaramala voru
fjölmörg mál önnur á dagskrá
fundanna, þar á meóal slysa-
tryggingamál sjómanna, öryggis-
mál skipa og áhafna og landhelg-
ismáliö.
Varöandi kjaramál sjómanna
var samþykkt að krefjast veru-
legrar hækkunnar á kauptrygg-
ingu ásamt fríu fæöi fyrir báta-
sjómenn.
Einnig var samþykkt a8 krefj-
ast stórfelldar hækkunar á
slysatryggingu og þess, að þegar
VÍKINGUR
verói hafist handa um raunhæf-
ar aðgerðir til aö draga úr hinum
Wöu slysum um borö í fiskiskip-
um, og er búiö aö senda þær
samþykktir til viökomandi aö-
ila.“
Eins og fyrr var getið, urðu
miklar umræður um öryggisbún-
að skipa og komu athyglisverðar
ábendingar fram, t. d. varðandi
umbúnað og frágang gúmbjörg-
unarbáta, frágang á lestaropum
og frágang og staðsetningu
slökkvi og lensidæla, sem nú er
skylt að hafa í hverju fiskiskipi.
Ennfremur kom í ljós að við
Eyjafjörð hefur verið notað
kælivatn frá vél sem ísingar-
vari. Var vatnið látið renna um
slöngu til að hindra ísingu, og
hefur þetta gefið góða raun.
Á öllum fundunum voru sam-
þykktar ályktanir í landhelgis-
málinu og voru stjórnvöld hvött
til að hvika ekki frá ákvörðun
um útfærslu landhelginnar í 50
sjómílur.
Á fundinum kom eindregið
fram nauðsyn á endurnýjun
fiskiskipaflotans.
Almenn ánægja ríkti með fisk-
verðshækkun þá, sem orðið hefur
að undanförnu og töldu menn að
aðgerðir sj ávarútvegsráðherra
væri spor í rétta átt, þó enn
hafi ekki verið réttur hlutur
þeirra manna, sem erlendis
landa.
Að endingu þykir mer rétt að
geta um samþykkt, sem stjóm
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Islands gerði á fundi sín-
um 28. febrúar 1971, fer tillagan
hér á eftir eins og hún var sam-
þykkt.
„Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands hefur lengi bar-
ist fyrir stækkun (landhelginnar)
fiskveiöilögsögunnar viö ísland.
Þaö \telur aö nú sé oröiö aö-
kallandi aö færa fiskveiöilögsög-
una úr 12 sjómílum út í aö
minnsta kosti 50 sjómílur allt í
kring um landiö og tryggja þar
meö landsmönnum einkarétt á
fiskveiöum á landgrunnssvæöinu.
Félags
mála
opnan
Eins og kunnugt er hefur allri
tækni viö fiskveiöar fleygt fram
hin síöari árin. Ný og stærri skip
stunda nú veiöamar meö stækk-
andi veiöarfærum, jafnhliöa hin-
um fullkomnu fiskileitartækjum.
Þaö er því brýnni þörf en
nokkru sinni áöur til þess, aö
fslendingar gæti sinna dýrmætu
fiskimiöa fyrir ofveiöi og taki
á ótvíræðan hátt stjóm á fisk-
veiöum á miöunum viö landiö.
Stjóm Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands telur aö
alltof lengi hafi dregist aö fram-
kvæma til fulls landgrunnslögin
frá 19U8, en í þeim var lýst yfir
aö viö íslendingar heföum 'um-
ráöarétf yfir öUu landgrunns-
svæöinu viö landiö. Stjórn Far-
manna- og fiskimannasambands
íslands skorar á Alþingi þaö er
nú situr aö ákveöa nú þegar
stækkun fiskveiöilögsögunnar og
væntir þess aö cdlir landsmenn
séu einhuga um slíka ákvöröun.“
Tillaga þessi var send öllum
þingflokkum, Alþingi og öllum
fjölmiðlum um allt land.
Ekki verður þessi þáttur
lengri að sinni, en fróðlegt væri
að fá línu frá mönnum utan af
landsbyggðinni og raunar vel-
þegnar hvaðan sem þær berast
um kjaramálin og önnur áhuga-
mál sjómanna.
Samningum farmanna hefur
verið sagt upp, annarra en skip-
stjóra, nokkrum öðrum samning-
um hefur einnig verið sagt upp
eftir því sem þeir bera ákvæði
um.
Ingólfur Stefánsson
827