Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Page 17
Þessa síðustu daga virðast eng- ar fleytur koma til greina á voru landi nema skuttogarar, sem virð- ast nú vonum síðar vera orðnir allvinsælir í hinni sífellt harðn- andi veiðitækni á hinum svo- nefnda bolfiski (sem er nokkuð nýtt orð í voru máli). Þessi gerð skipa hefur marga kosti fram yf- ir hina eldri gerð, sem hefur gálgana og trollið á báðum síðum, og þó einkum alla aðstöðu til vinnu um borð. Hvort þessi skip hafi meiri möguleika til aflafanga er annað mál, en þau eru sem sé óumdeilanlega talin heppilegri og líklegri til frambúðar en hinir edri síðutogarar, sem þóttu góðir til síns brúks áður fyrr og allt til þessa dags. Það má segja, að allt hefur sinn meðgöngutíma - skuttogar- amir eins og annað, og einkenni- lega hljótt hefur verið um aðild íslendinga í byrjunarsögu þeirra, en það mun vera staðreynd, að fyrsta teikning og reyndar full- komið líkan með öllum tækjum til þess að kasta trolli, draga það inn og vinna aflann undir þilfari er íslenzk hugmynd og höfundur hennar Andrés Gunnarsson, vél- stjóri, til skamms tíma í Áburðar- verksmiðju ríkisins í Gufunesi. Andrés hefur gengið með hug- mynd um skuttogara síðastliðin 30 ár. Árið 1944 var hann vél- stjóri á Patreksfirði. Þá tók hann sér ársfrí frá störfum til þess að vinna að þessum hugðarefnum sínum, sem sannarlega voru ekki þá komin á dagskrá hjá skipa- smíðastöðvum í heiminum. Hann smíðaði fullkomið módel, eins og fyrr segir, sýndi það hinni ríkis- skipuðu nefnd, sem hin svokall- aða nýsköpunarstjórn skipaði til þess að „hanna“ hina nýju tog- ara, sem síðar hlutu nafnið ný- VlKINGUR Skuttogarar eftir Guðfinn Þorbjörnsson sköpunartogarar. (Ég hef ein- hvern tíma minnzt á þessi gömlu og góðu skip í „Víkingi". Þau voru traust og ekkert til þeirra sparað, en hins vegar engin stór stigbreyting frá hinum eldri og verður ekki rætt um þau hér). Þegar Andrés sýndi þessum heiðursmönnum í togaranefnd- inni, sem mestmegnis munu hafa verið gamalreyndir togaraskip- stjórar ásamt hinum gengna heiðursmanni Gísla Jónssyni, eftirlitsmanni og alþingisforseta, módel sitt, mun ekki annað hafa komið til greina en almennur á- hugi fyrir þessari róttæku breyt- ingu og talið sjálfsagt að taka hana til athugunar og fram- kvæmda þegar bygging skipanna yrði hafin. Andrés mun svo - hvattur af öllum þessum heiðursmönnum - hafa sótt um einkaleyfi, farið í það minnsta tvær ferðir til Eng- lands og framlengt atvinnufrí sitt og þar með misst sínar at- vinnutekjur. Þá var þetta módel á sýningu í Listamannaskálanum 1946 eða fyrstu daga hennar þar. En það mun hafa verið fjarlægt eða gert ósýnilegt á sýningu þess- ari fljótlega eftir opnun hennar. Þá gerðist það samtímis, að ýmsir erlendir og innlendir ráðamenn misstu skyndilega áhuga fyrir svo frumlegum hugmyndum um fiskiskip og búnað þeirra og 20— 30 nýsköpunartogarar voru byggðir og fluttir til landsins án þess að þessi nýjung væri reynd í einu þeirra. Nú, 30—35 árum síðar eru þessi skip, sem byggð eru eftir hinni frumlegu teikningu og mód- eli Andrésar Gunnarssonar smíð- uð á færibandi um allan heim og eftir sótt af íslendingum sem öðrum, en því er vandlega haldið leyndu, að þetta er íslenzk upp- finning og hún jafnvel óvenju- lega vel sett fram. Þetta er staðreynd, og ósköp venjuleg. Þeir, sem hugsa, leggja vinnu og fé til þess að breyta ein- hverju í atvinnuháttum vorum, eru þaggaðir niður, en hugmynd- ir þeirra síðar notaðar af erlend- um stórfyrirtækjum og umboðs- mönnum þeirra hér blygðunar- laust án þess að virða hinn svo- kallaða „höfundarrétt“ að nokkru. Þetta er gömul og ný staðreynd í vorri iðnaðarsögu. Eg hef aðeins drepið á eitt at- riði í þeirri raunasögu, að vísu nokkuð áberandi tákn hinnar al- gjöru fyrirlitningar, sem á sér stað á góðum hugmyndum, sem koma fram fáeinum árum áður en heppilegt er fyrir hina hugs- andi bisnissmenn, sem verða að sjá sínum hugmyndum borgið áð- ur, að breyta til og þá án þess að greiða fyrir nýjar hugmyndir. Þær eru óalandi í dag - en verða góðar á morgun. Svo virðist líka vera hér. Skuttogari Andrésar var góður 1946, en það mátti bara ekki smíða hann þá. Nú í dag stendur aðeins á mannskap til þess að framleiða hann fyrir oss og aðra, en Andrés Gunnarsson verður að láta sér nægja endur- minningar um tilraunir sínar, viðtöl og viðurkenningar framá- manna, sem af einhverjum ástæð- um misstu áhuga á þessum skip- um fyrir 30 árum, og una við sinn ellilífeyri. Þótt hér sé aðeins minnzt á Andrés Gunnarsson, eru margir fleiri í sama báti. Höfundarréttur í iðnaði þekkist ekki enn þá á Islandi. Reykjavík, 27. marz 1972. Guðfinnur Þorbjörnsson. 233

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.