Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Page 21
FRÁ APN
Þá eru rannsóknir á dreifingu
dýrasvifs í höfunum mjög mikils-
verðar. Þessar örsmáu lífverur
eru aðalfæða mikils meirihluta
sjávarbúa auk þess sem bein
nytjun þeirra er varla langt und-
an. Einnig á þessu sviði getur
geimtæknin veitt mikilsverða að-
stoð.
Geimtækni getur einnig aukið
verulega þekkingu okkar á heims-
höfunum yfirleitt, varpað ljósi á
orsakir hreyfinga sjávarins og
fullkomnað kortlagningu varð-
andi árvissar breytingar á hita-
stigi, straumum o. s. frv. Sama
máli gegnir um rannsóknir á
efnabreytingum og saltmagni
sjávarins. Sumra slíkra upplýs-
inga mætti afla með tækjum í
gerfihnöttunum sjálfum, og
sumra með n. k. „baujum“, þ. e.
sjálfvirkum athugunarstöðvum,
er sendu upplýsingar sínar með
merkjum til gervitungla.
Takist að koma slíku athugana-
kerfi á fót, ætti það ekki aðeins
að geta stóraukið aflamagn, held-
ur einnig auðveldað fiskivernd og
viðhald stofnanna. Tilraunir í
þessa átt voru athuganir, sem á-
höfnin á Sojuz-9 gerði á hafinu.
Últrahljóð í þágu
sæfarenda
Eins og allir vita geta jafnvel
nýtízku stálrisar og glæstustu
hraðbátar glatað ganghæfni sinni
vegna sjávardýra, sem setjast að
utan á þeim og vaxa þar. Á þenn-
an hátt flytjast einnig mörg
sjávardýr með skipum til nýrra
hafsvæða og vinna óbætanlegt
tjón því dýralífi, sem áður var
þar fyrir.
Lindýrið rapana, ræningi frá
Kyrrahafi, hefur komizt allt til
Svartahafs og þannig lagt ag
baki nær tíu þús. kílómetra.
VlKINGUR
Annað lindýr, mitilaster, hefur
ruðzt inn á Kaspíahaf.
Ásuguskepnur þessar valda til-
finnanlegu tjóni bæði í sjó og
fersku vatni. Tvö-þrjú vaxtarlög
leggjast á hafnargarða, bryggju-
stólpa og botn skipa. Á einu ári
getur þannig myndazt 20 sm
þykkt lag, og þyngd þess á einn
fermetra getur orðið allt að 100
kg.
1 Krasnovodskflóa á austur-
strönd Kaspíahafs lagðist 40 kg.
þungi af mitilaster á hvern fer-
metra á bryggjustólpum og skip-
um í lægi á þriggja mánaða tíma
aðeins, og á skipum í Svartahafs-
siglingum - allt að 10 kg. Þau
skip, sem sjaldnar voru í flóan-
um eða lögðust oft upp í ármynni
til að landa fiski, urðu ekki eins
hart úti, en sluppu þó ekki alveg.
Þessi „hrúðrun" getur stundum
þyngt skip meira en 100 tonn. 1
stað hins rennilega skipsskrokks
er komin ólöguleg skeljadyngja
undir sjólínu, sem dregur úr
hraða skipsins um 20% eða
meira. Eldsneytisneyzla vex um
40%, vélarnar erfiða og skipið
mjakast áfram eins og snigill. Á
löngum siglingum getur tíma-
tapið numið sólarhringum og
jafnvel vikum.
Þessi flökkudýr sjávarins eru
harðgerð og gædd miklum aðlög-
unarhæfileikum.
Frá ómunatíð hafa sæfarendur
og vísindamenn leitað ráða til að
glíma við öll þau lindýr, skeljar
og vatnaj urtir, sem, gera vilja
skipsskrokka að sínum heimahög-
um.
Kavaljovskí-stofnun Úkrainsku
Vísindaakademíunnar hefur nú í
nokkur ár stundað rannsóknir á
þessu sviði, en fyrstu athuganim-
ar voru gerðar í Sevastopol fyrir
röskum 30 árum.
Rannsóknir á framgangi
hrúðrunar og vama gegn henni
byggjast aðallega á tveim skyld-
um greinum, efnafræði og eðlis-
fræði.
Fram að þessu hefur algeng-
asta vörnin verið „efnafræðileg",
þ. e. málning, sem inniheldur
eitruð efni fyrir lirfumar. En nú
eru að koma til sögunnar „eðlis-
fræðileg" ráð.
Við Sjóverkfræðistofnunina í
Odessa hefur verið smíðað últra-
hljóðbylgjutæki til að verja skip
gegn hrúðrun, og er nú verið að
reyna nokkur slík á Svartahafs-
flotanum.
Tæki þetta samanstendur af
tveim litlum rofum (annar til
vara), sjálfvirkri tækjablokk og
átta geislurum, sem festir eru á
skipssíðurnar. Það er allt og
sumt. Orkueyðsla er lítil, 1-2
kílóvött á klst.
Fyrsta reynslutækið var sett í
gufuskipið „Khirurg Vishnev-
ski“ árið 1965, og hefur því verið
í notkun í rösk sex ár. Hverjar
eru niðurstöðumar?
Áður varð að taka skipið í
slipp ekki sjaldnar en einu sinni
á ári. Eftir að það hafði verið
hreinsað og búið hljóðbylgjutæki,
var það 17 mánuði í siglingum.
Að þeim tíma liðnum kom dálítil
hrúðrun í ljós við skoðun, og staf-
aði hún af því, að tækið hafði
ekki verið sett í gang fyrr en
skipið hafði haft 56 daga útivist.
Sextán mánuðum síðar fór fram
önnur skoðun, og reyndist skipið
þá hreint,
Var nú ákveðið að búa þrjú
skip í viðbót tæki þessu, Mille-
rovo, Bratslav og Nékrasov. Hið
fyrstnefnda hefur nú ársreynslu
að baki, og ekki hefur orðið vart
við að neitt drægi úr gangi skips-
ins. Khimrg Vishnevski hefur
ekki farið í slipp í þrjú ár, og
sáralítið hefur dregið úr hraða,
eða tvisvar til þrisvar sinnum
minna en hjá skipum þeim, sem
ekki eru búin últrahljóðbylgju-
tækinu. R. Manúsov.
237