Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Page 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1972, Page 35
ir 66 nemendur í 1. stig skólans. 8 hættu námi; 58 gengu undir próf; 50 stóðust prófið, þar af 36 með framhaldseinkunn. I 2. stigi hófu 82 nám, 5 hættu námi, 77 gengu undir próf, 68 stóðust prófið, þar af 49 með framhalds- einkunn. í 3. stigi hófu 65 nám, 1 hætti, 64 gengu undir próf, 62 stóðust prófið, þar af 49 með framhaldseinkunn. í 4. stigi hófu 33 nám og gengu allir undir próf og stóðust allir prófið. í upphafi þessa skólaárs voru nemendur Vélskóla íslands sem hér segir: í Reykjavík 246 á Akureyri 27 og í Vestmannaeyjum 27________ Samtals 298 nem. Fjöldi útskrifaðra vélstjóra er þessi: h->\ ' r | 1 <J a> Xfl W | í> í p 3 P P Samtals «—i. 1 S3 a> 2. V) C—1. p 3 úr 1. stigi 50 16 15 81 úr 2. stigi 68 6 10 84 úr 3. stigi 63 63 úr 4. stigi 33 33 Samtals 214 22 25 261 Samtals hafa því 261 nýir vél- stjórar bætzt í hópinn. Ég mun nú afhenda prófskír- teini. Mér hefur verið falið að af- henda Fjalarbikarinn svonefnda. Hann er gefinn af vélasölufyrir- tækinu Fjalari hf. og er farand- bikar, og er veittur þeim nem- anda, sem nær bezta árangri í 3. stigi í vélfræði. Að þessu sinni hlýtur hann Jón Bjarnason úr Kópavogi. Þá hefur þýzka sendiráðið gef- ið bókaverðlaun, sem veitast fyr- ir góðan árangur í þýzkunámi. VlKINGUR Þessir hljóta verðlaun: Páll Kristinsson úr 3. stigi, Sigurður B. Þórðarson úr 3. stigi, Árni Guðmundsson úr 4. stigi, Freysteinn Bjarnason úr 4. stigi. Danska sendiráðið hefur gefið bókaverðlaun, sem veitast fyrir góðan árangur í dönskunámi. Þessir hljóta verðlaun: Pétur Yngvason úr 1. stigi, Sveinn Ríkarðsson úr 2. stigi. Ameríska sendiráðið hefur gefið bókaverðlaun, sem veitast fyrir góðan árangur í enskunámi. Þessir hljóta þau verðlaun: Kári Stefánsson úr 1. stigi, Ólafur Sigurðarson úr 2. stigi, Ámundi J. Játvarðsson úr 2. stigi, Valgeir Hallvarðsson úr 2. stigi, Ingi Ólason úr 2. stigi, Þór Jóhannsson úr 3. stigi, Kristinn Helgason úr 4. stigi. Kæru nemendur, ég óska ykkur innilega til hamingju með þenn- an árangur. Eg vona, að þessi tímamót í lífi ykkir verði minnis- stæð. Ég óska ykkur þess, að þið verðið hamingjusamir í starfi, og skóla ykkar til sóma. Skortur á dvalarheimilum fyrir aldraða er að verða mikið vandamál Á Dvalarheimili aldraðra sjómanna, Hrafnistu, munu nú dvelja 450 vistmenn. Nýlega hafa 18 íbúðir, svonefndir hjónagarðar, verið teknar í notkun. Með byggingu þessara hjónagarða má segja, að lóð Hrafnistu sé fullnýtt. Mikil þörf er þvi á að sjá sér út annan stað til frekari útvíkkunar, en skortur á heim- ilum fyrir aldraða er að verða mjög alvarlegt vandamál hér á landi. Það var á sínum tíma mikið þrekvirki að koma upp stofnun sem þessari og þökk sé þeim, er unnu baki brotnu til að koma hugmyndinni í veruleika. Sem betur fer eru nú ýmsar aðrar stéttir að vakna til meðvitundar um nauð- syn stórátaka á þessu sviði, t. d. eru iðnaðarsamtökin og félög Lionsmanna með stór átök í huga til að leysa úr þessu sívaxandi vandamáli. 251

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.