Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Síða 13
Setningarræða Jónasar Þorsteinssonar
forseta FFSÍ
28. þing
Farmanna- og
fiskimanna-
sambandsins
Virðulegu gestir, góðir félagar.
Ég bíð ykkur alla velkomna
hingað, er við minnumst 40 ára af-
mælis Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands og setjum 28.
þing þess.
Sérstaklega bíð ég velkomna til
okkar ýmsa af eldri forystumönn-
um sambandsins. Sumir þeirra
stóðu í eldlínunni, er sambandið
var stofnað og í frumbemsku þess.
Á sambandið þeim mikla þökk að
gjalda.
Frá því að síðasta sambandsþing
var haldið í nóvember 1975 hefir
einn af stjórnarmönnum FFSÍ lát-
ist.
Geir Ólafsson loftskeytamaður
andaðist í Reykjavík 3. apríl 1976.
Geir var fæddur 4. október 1905
í Hafnarfirði og var því á sjötug-
asta og fyrsta aldursári, er hann
lézt. Hann ólst upp í Hafnarfirði
og lauk gagnfræðaprófi frá Flens-
borgarskóla 1922 og svo prófi frá
Loftskeytaskólanum 1925. Sama
ár réðist hann sem loftskeyta-
maður til Snæbjarnar Ólafssonar
skipstjóra. Hélst samstarf þeirra í
þau tuttugu ár, sem Geir starfaði á
sjónum, fyrst á botnvörpungnum
Ver og síðan á botnvörpungnum
Tryggva gamla. Árið 1945 hættir
VÍKINGUR
Geir sjómennsku og ræðst þá til
starfa á veðurstofu íslands og
starfar þar sem loftskeytamaður
og síðar deildarstjóri, þar til að
hann varð að láta af embætti því
fyrir aldurssakir um áramótin
1975 og 1976, en starfaði þó áfram
við stofnunina til dauðadags.
Af þessu sjáum við að ekki hafa
vistaskipti verið tíð hjá honum og
segir það okkur kannske meira en
margt annað um manninn Geir
Ólafsson. Geir var dagfarsprúður
maður og hæglátur, en fylgdi fast
Gelr Ólafsson
Jónas Þorstelnsson, forseti FFSÍ setur
28. þingið.
eftir þeim málum er hann lagði
lið.
Hann tók mikinn þátt í félags-
málum. Bæði í málefnum stéttar-
sinnar og var hann mikill áhuga-
maður um málefni Slysavarnafé-
lags íslands og lá aldrei á liði sínu,
þegar á þurfti að halda. Hann átti
lengi sæti í stjórn Félags ísl. loft-
skeytamanna og formaður þess
félags árin 1945—1948. í stjórn og
varastjórn FFSÍ var hann nú síð-
ustu árin og sat mörg þing sam-
takanna. í Sjómannadagsráði
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar var
hann fjölda ára fyrir félag sitt, og
lengi framkvæmdastjóri Sjó-
mannadagsins.
Þau urðu því mörg störfin, sem
Geir Ólafsson vann í félags og
öryggismálum sjómanna.
Fyrir öll þau störf þökkum við
þessum fallna félaga okkar.
Ég bið viðstadda að votta hon-
um virðingu og þakklæti, svo og
397