Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Page 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Page 22
Matthías Bjarnason, ráðherra; Birgir fsl. Gunnarsson, borgarstjóri; Haraldur Steinþórsson, BSRB; Óskar Vigfússon, form. Sjómannasambands fslands. framhald þess. Því verður ekki í móti mælt að samtakamátturinn hefur því miður oft skort hjá sjó- mannasamtökunum. Því er það von mín að þeim auðnist í náinni framtíð að koma svo fyrir sínum innri málum að þau geti komið sterk og sameinuð fram út á við, og haldi fram raun- hæfri og rökfastri stefnu í málum sínum. Þá mun allt ganga í hag- inn. Við höfum nú unnið algjöran sigur í landhelgismálinu og innan tíðar renna út þeir samningar, sem enn eru í gildi um veiðiheimildir útlendra skipa á íslandsmiðum, og erum við þá endanlega lausnir við erlend veiðiskip af miðunum. Frekari veiðiheimildir handa erlendum veiðiskipum koma ekki til greina á neinum botnlægum fisktegundum, þegar svo er komið að okkar eigin veiðifloti er stopp- aður við veiðarnar um lengri eða skemmri tíma, til að fyrirbyggja ofveiði, ásamt ýmsum öðrum ráð- stöfunum til friðunar fiskistofn- unum. Ég efast ekki um að útlendingar skilja þessa afstöðu okkar meðan svona er ástatt. Hvað framtíðin ber í skauti sínu verður tíminn að leiða í ljós. Vænti ég þess að þetta þing láti frá sér fara rökstuddar ályktanir um nýtingu landhelginnar og friðunarmál, með hliðsjón af fenginni reynslu. Að við höfum valið rétta stefnu í fiskveiðilögsögumálum er auð- sætt, því sífellt fleiri þjóðir feta í slóð okkar íslendinga í þeim efn- um, og hafa hjá sumum orðið veruleg sinnaskipti á fáum árum. Landhelgisgæzlumönnum okk- ar færum við þakkir fyrir þeirra stóra hlut að endalokum málsins, með staðfestu sinni og óbilandi kjarki við erfiðar aðstæður. Þótt stríðið um fiskimiðin sé unnið er annað stríð enn óunnið og ekki sjáanlegur þar á neinn endi, þó nokkuð vinnist á öðru hvoru. Þar á ég við stríðið við verðbólguna. Á ýmsu hefur geng- ið, en misjafnlega tekist í þeirri baráttu. Hvers vegna? Ég held að í raun sé komið svo að allt of margir hafi hag, beint eða óbeint af verðbólgunni og þrátt fyrir allar formælingar og illt umtal um verðbólgu hafa íslendingar ekki í raun viljað takast á við vandann. Hér er engum einum um að kenna hvorki orsök eða afleiðingu, held- ur samtvinnaða keðju orsaka og afleiðinga. Því verðum við að Eyjaberg — fiskverkunarstöð Vestmannaeyjum Góð þjónusta KAUPUM allan fisk SELJUM ís og beitusíld Óskum eftir bátum í viðskipti. Sími í móttöku 98-1242 Sími ífrystideild 98-1243 Sími heima hjá forstjóra 98-1123 406 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.