Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 64
f síðasta blaði var sagt frá nýj-
um færeyskum skuttogara (tappa-
togara), sem smíðaður hafði verið
fyrir Færeyinga í Frakklandi.
Nýverið rákumst við svo á lýs-
ingu af öðru samskonar skipi, sem
byggt var í Skotlandi, og segir þar
að skipið sé sérstakiega hannað
fyrir veiðar innan 200 mílna land-
helgi Færeyja, og gerð þess sé
rækilega grunduð.
Vegna áhuga margra á þessum
nýja skuttogara birtist greinin hér
í Iauslegri endursögn:
Færeyskur togari
vekur athygli
Einu óvenjulegasta fiskiskipi
sem smíðað hefur verið í Skot-
landi hin síðari ár var nýverið
Vonin hinn fullkomni „tappatogari"
Færeyinga. Hentar svona skip við (s-
land?
hleypt af stokkunum í skoskri
skipasmíðastöð. Það er byggt fyrir
færeyska útgerðarmenn og hlaut
nafnið VON.
Skipið mun verða gert út frá
Þórshöfn.
Vonin er aðeins 87 feta löng og
því einn minnsti skuttogari sem
smíðaður hefur verið, og hann
mun stunda veiðar frá Færeyjum
ásamt nokkrum stærri skuttogur-
um Færeyinga, sem hafa á síðari
árum byggt upp togaraflota sinn
með skuttogurum.
Gerð togarans er rækilega
hugsuð af eigendum, og það haft
að sjónarmiði að skipið sé ódýrt í
rekstri, að það stundi veiðar á
heimamiðum og að öllu sé sem
haganlegast fyrir komið fyrir
áhöfnina, að vinnuskilyrði séu
sem best og að skipið sé sem ör-
uggast fyrir áhöfnina. Auk þess er
lagt upp úr að það sé hentugt til
fiskveiða í botnvörpu.
Eftir 17 daga samningaviðræð-
ur við skipasmíðastöðina voru
undirritaðir samningar um smíði
VÍKINGUR
Ný kynsloð
togara?
Skutrennan og gálgarnir á Voninni
448