Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 22
Matthías Bjarnason, ráðherra; Birgir fsl. Gunnarsson, borgarstjóri; Haraldur
Steinþórsson, BSRB; Óskar Vigfússon, form. Sjómannasambands fslands.
framhald þess. Því verður ekki í
móti mælt að samtakamátturinn
hefur því miður oft skort hjá sjó-
mannasamtökunum.
Því er það von mín að þeim
auðnist í náinni framtíð að koma
svo fyrir sínum innri málum að
þau geti komið sterk og sameinuð
fram út á við, og haldi fram raun-
hæfri og rökfastri stefnu í málum
sínum. Þá mun allt ganga í hag-
inn.
Við höfum nú unnið algjöran
sigur í landhelgismálinu og innan
tíðar renna út þeir samningar, sem
enn eru í gildi um veiðiheimildir
útlendra skipa á íslandsmiðum,
og erum við þá endanlega lausnir
við erlend veiðiskip af miðunum.
Frekari veiðiheimildir handa
erlendum veiðiskipum koma ekki
til greina á neinum botnlægum
fisktegundum, þegar svo er komið
að okkar eigin veiðifloti er stopp-
aður við veiðarnar um lengri eða
skemmri tíma, til að fyrirbyggja
ofveiði, ásamt ýmsum öðrum ráð-
stöfunum til friðunar fiskistofn-
unum.
Ég efast ekki um að útlendingar
skilja þessa afstöðu okkar meðan
svona er ástatt. Hvað framtíðin
ber í skauti sínu verður tíminn að
leiða í ljós.
Vænti ég þess að þetta þing láti
frá sér fara rökstuddar ályktanir
um nýtingu landhelginnar og
friðunarmál, með hliðsjón af
fenginni reynslu.
Að við höfum valið rétta stefnu
í fiskveiðilögsögumálum er auð-
sætt, því sífellt fleiri þjóðir feta í
slóð okkar íslendinga í þeim efn-
um, og hafa hjá sumum orðið
veruleg sinnaskipti á fáum árum.
Landhelgisgæzlumönnum okk-
ar færum við þakkir fyrir þeirra
stóra hlut að endalokum málsins,
með staðfestu sinni og óbilandi
kjarki við erfiðar aðstæður.
Þótt stríðið um fiskimiðin sé
unnið er annað stríð enn óunnið
og ekki sjáanlegur þar á neinn
endi, þó nokkuð vinnist á öðru
hvoru. Þar á ég við stríðið við
verðbólguna. Á ýmsu hefur geng-
ið, en misjafnlega tekist í þeirri
baráttu. Hvers vegna? Ég held að í
raun sé komið svo að allt of margir
hafi hag, beint eða óbeint af
verðbólgunni og þrátt fyrir allar
formælingar og illt umtal um
verðbólgu hafa íslendingar ekki í
raun viljað takast á við vandann.
Hér er engum einum um að kenna
hvorki orsök eða afleiðingu, held-
ur samtvinnaða keðju orsaka og
afleiðinga. Því verðum við að
Eyjaberg
— fiskverkunarstöð
Vestmannaeyjum
Góð þjónusta
KAUPUM allan fisk
SELJUM ís og beitusíld
Óskum eftir bátum í viðskipti.
Sími í móttöku 98-1242
Sími ífrystideild 98-1243
Sími heima hjá forstjóra 98-1123
406
VÍKINGUR