Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Blaðsíða 23
sameinast í að hrinda draug þess-
um af höndum okkar.
ísland er gott land og gjöfult, þó
hartbýlt sé á stundum. Við horfum
fram á aukinn afrakstur af okkar
stærstu auðlind, fiskimiðunum og
þá um leið betri tíma, ef tekst að
verulegu leyti að losna við verð-
bólgudrauginn. Sá atvinnuvegur
sem samtök okkar eru tengd
verður hvað harðast fyrir þessari
miklu verðbólgu. Ég vænti þess að
þjóðin sýni sömu samstöðu við
lausn þessa vanda og hún sýndi í
baráttunni fyrir fullum sigri í
landhelgismálinu.
Eitt mál langar mig að minnast
á að lokum sem komið er í algerar
ógöngur, en það er hin takmarka-
lausa veiting yfirvalda á undan-
þágum til skipstjórnar og vél-
stjórnar á íslenskum skipum. Svo
langt er þetta komið í fjarstæð-
unni að mönnum, sem ekkert hafa
lært til þessara starfa fá undan-
þágur, án þess einu sinni sé gengið
fyrir vottorðum, sem skila þarf
með umsókn um skólavist í við-
komandi skólum.
Lengi var vandinn bundinn við
fiskiflotann, en nú hefir hann
færst líka yfir á kaupskipaflotann,
að vísu ekki í svo ríkum mæli og
hjá fiskiflotanum, sem betur fer.
Allt er þetta gert undir því yfir-
skini að ekki megi stoppa flotann.
Mín skoðun er sú að flotinn
mundi ekki stoppa. Málin yrðu
leyst á rökréttan hátt svo réttinda-
menn fengjust. En slíkt gerist ekki
Séð yfir þingsalinn
á meðan yfirvöld afgreiða hömlu-
laust undanþágur til allra er eftir
leita, fyrir aðeins 2000 krónur á
mann. f staðinn er útgerðinni
stöðugt sökkt dýpra og dýpra ofan
í þetta forað, sem erfiðara verður
að losna úr sem lengra er haldið.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
er ekki fullsetinn í vetur og 1.
bekkjardeildir hvergi úti á landi,
eins og verið hefur undanfarin ár.
Hver er ástæðan? Ætli að minnsta
kosti hluta hennar sé ekki að finna
í þessu máli. íslensk þjóð er illa
komin ef svo á að verða að annar
aðalatvinnuvegur hennar á að
vera rekinn með undanþágu-
mönnum í stað þeirra velmennt-
uðu yfirmanna sem flotinn hefur
lengst af verið mannaður.
Nú ætla ég ekki að halda því
fram að sum af okkar lögum og
reglugerðum þurfi ekki endur-
skoðunar við til að samræmast
breyttum tímum og tækni. Vissu-
lega megum við ekki standa í því
frekar en öðru, en það leysir okkur
aldrei frá því að nema þau fræði
sem til þurfa til að geta stjórnað
skipi.
Þessari óheillaþróun þarf að
snúa við hið bráðasta, því verði
hún ekki stöðvuð stöndum við
höllum fæti í kjaramálunum öll-
um.
Það ber að þakka margvíslegan
skilning og stuðning, er Far-
mannasambandið hefur notið hjá
stjórnvöldum ríkis og borgar, fyrr
og síðar.
Frá Farmannasambandinu færi
ég sambandsfélögunum beztu
kveðjur.
Góðir þingfulltrúar.
Ég hefi nú verið forseti sam-
bandsins í tvö ár og þakka ég
samstarfið, sem hefur verið mér
mjög lærdómsríkt og ánægjulegt,
þó á móti hafi blásið á stundum.
Ég hefi tekið þá ákvörðun að
gefa ekki kost á mér til forseta-
kjörs aftur.
28. þing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands er sett.
UROKO
100% NYLON
Ctvegum frá Japan
íyrsta flokks veiðarfæri:
Ufnboðsmenn fyrir:
Mitusi & Co., Ltd.
NYLON þorskanet og
— slöngur,
— þorsknætur,
— herpinætur,
— tauma, -
— kaðla.
HIZEX tauma,
— kaðla,
— bólfæri,
— teinatóg,
— dragnótabálka.
Nylon og Pylen ábót.
Steinavör hf.
Trvggvagötu 4 Reykjavík.
Sími 27755
VÍKINGUR
407