Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1977, Side 57
Jón Sigurðsson Vestmannaeyjum:
III Þegarm/b
III Farsællogm/b
III islandfórust
Höfundur þessarar frásagnar er
lesendum Víkings að góðu kunnur
fyrir þætti sína í blaðinu: „Bátar
og formenn í Vestmannaeyjum“. í
þeim þáttum eru geymdar gagn-
merkar heimildir um þá formenn í
Eyjum, sem fastast sóttu sjóinn og
lögðu grunninn að velgengni íbú-
anna, með dugnaði og aflasæld, en
margir guldu líf sitt fyrir.
Þess munu fá eða engin dæmi,
að tvær skipshafnir, sem störfuðu
á einum og sama báti, hafi farist á
sömu vertíð. Atburðir þessir áttu
sér þó stað á vetrarvertíðinni í
Vestmannaeyjum árið 1912.
Greinarhöfundur segir frá báð-
um þessum slysum og einnig þriðja
slysinu, sem skeði skömmu fyrir
árslok 1911.
ritstj.
M/b „FARSÆLL“
Árið 1908 voru vélbátar í Vest-
mannaeyjum orðnir yfir 30 tals-
ins. Svo ört hafði þeim fjölgað, frá
því að vélbátar fóru að koma
hingað til lands. Allir voru þessir
bátar um 7 smálestir að stærð og
höfðu 8 hestafla vélar. Heldur
þóttu þessir bátar litlir til sjósókn-
ar og ganghraði þeirra lítill, svo að
menn fóru að fá sér bæði stærri og
gangmeiri báta.
VlKINGUR
Haustið 1908 keyptu þeir sér
vélbát, Högni Sigurðsson í Bald-
urshaga, Jón Einarsson í Hrauni,
Magnús ísleifsson í London,
Ágúst Ámason í Baldurshaga og
Helgi Jónsson í Jaðri. Átti Helgi
að vera formaður með bátinn.
Helgi var sonur Jóns Árnasonar,
dannebrogsmanns í Þorlákshöfn.
Þessi bátur þeirra félaga hét
„Farsæll“. Hann var um 8 smá-
lestir að stærð og óvenju gang-
mikill, enda hafði hann tveggja
strokka Dan-vél.
Helgi var með „Farsæl“ tvær
vertíðir, þ.e.a.s. vertíðirnar 1909
og 1910, og gengu aflabrögð illa
hjá honum báðar þessar vertíðir.
Um vorið 1910 kom milli-
landaskipið „Ceres“ til Vest-
mannaeyja og lagðist á ytri höfn-
ina. Vélbáturinn „Gústaf" annað-
ist flutninga milli skips og lands.
Margt manna fór um borð í
„Ceres“, svo sem títt var þegar
millilandaskip komu. Meðal
þeirra, sem um borð fóru, var
Helgi Jónsson, og var hann þá
klæddur sínum venjulegu hvers-
dagsfötum. Um kvöldið þegar
„Ceres“ fór af höfninni, fóru allir,
sem í land ætluðu, niður í „Gúst-
af“, sem skyldi flytja fólkið í land.
En er „Ceres“ létti akkerum sáu
þeir á „Gústaf“ hvar Helgi stóð
uppi á brúarvæng á „Ceres“.
Hafði hann skipt um föt, og stóð
þarna „uppábúinn“. Síðan lét
„Ceres“ í haf, og sigldi Helgi með
skipinu til Englands. Það var ekki
fyrr en löngu seinna að fréttir
bárust um það að Helgi væri í
Glasgow.
Eigendur „Farsæls“ vildu nú fá
afsal fyrir eignarhluta Helga í
bátnum og skrifuðu honum bréf
þar um. Hann svaraði þeim með
þessu stutta og laggóða bréfi:
„Farið þið með allt til andskot-
ans.“ Önnur svör fengu þeir ekki
við málaleitan sinni.
Eigi að síður seldu eigendur
„Farsæls" eignarhluta Helga, og
var kaupandinn Sigurður Einars-
son frá Stóru-Mörk undir Eyja-
fjöllum, og var jafnframt ákveðið
að hann skyldi verða vélamaður á
bátnum. Átti Sigurður heima í
Hrauni, hjá Jóni Einarssyni.
Nú vantaði formann fyrir
„Farsæl“. Fengu þeir til þess
Bergstein Bergsteinsson á Tjörn-
um. Var hann með bátinn á ver-
tíðinni 1911 og aflaði hann svo vel
að „Farsæll“ varð hæstur allra
báta með aflamagn. Var nú Berg-
steinn ráðinn áfram til for-
mennsku á bátnum á vertíðinni
1912.
Hinn 27. desember 1911 var
441