Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 8
Ingólfur Stefánsson: Telja verður að sá árangur, sem á undanförnum árum hefur náðst í hinum ýmsu þáttum slysavarna á sjó sé með ágætum, og vil ég hér sérstaklega geta þess, sem áunnist hefur við að koma í veg fyrir þau tíðu slys sem urðu á bátaflotanum við netadrátt. í skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa frá 1971 kemur fram, að slysatíðni er æði há, og þá ekki hvað síst á netabátunum. Þessi slys eru oftar en ekki af þeim flokki, sem telja má til stórslysa, og eru þeir margir sjómennirnir, sem limlestust svo, að þeir hafa örkuml til lífstíðar eftir að hafa dregist inn á dráttarskífuna. Þess eru nokkur dæmi, að þrjú stórslys af þessu taginu urðu á sama skipinu á einni vertíð, og var ævinlega um rúllu- manninn að ræða. Þeim mönnum verður seint fullþakkað, sem gengu fram fyrir skjöldu til að bægja hættuástand- inu við dráttarskífuna frá. Þeir fé- lagar Einar Ólafsson og Ágúst Guðmundsson útgerðarmenn á m/b Kap urðu fyrir því eins og margir aðrir að stórslys urðu hjá þeim um borð. Þeir vildu ekki sætta sig við það, að slík slys gætu hent aftur og leituðu til Sigmund í Vestmannaeyjum, sem er upp- finningamaður mikill, þótt hann sé sennilega landslýð kunnari sem skopmyndateiknari fyrir Morgun- blaðið, og báðu hann um að gera tillögu að öryggisútbúnaði við dráttarskífuna. Myndin sem hér fylgir á síðunni sýnir hvernig tæki Sigmund lítur út, en telja verður að þessar endurbætur komi í veg fyrir slys eins og þau, sem algeng- ust eru við netadrátt. Nokkurn tíma tók að fá þennan útbúnað samþykktan af Siglingamála- stofnun og Samgönguráðuneytinu og hefðu viðbrögð þessara aðila við þessu bráðnauðsynlega vinnu- verndartæki mátt vera skjótari. Um síðastliðin áramót áttu allir bátar, sem stunda netaveiðar að vera komnir með þennan útbún- að, og er það nú von okkar, að nú verði úr sögunni öll þau miklu slys, sem urðu við netadrátt á ver- tíð. Því nefni ég þetta hér, að víða er enn pottur brotinn í slysavarna- málum sjómanna, og mörg þau atriði, sem færa mætti til betri vegar. Það er þarft verk, sem Vestmannaeyingar hafa þarna unnið, og ætti að vera hvatning öðrum sjósóknurum til að nýta hugvit sitt og annarra til þess að bægja frá hættum á vinnustað sínum, svo fremi sem þess er nokkur kostur. Um slysavarnir á sjó 8 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.