Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 25
á annað troll. Ég furðaði mig á því hvað það gekk fljótt og vel. Töluverð rækja hefur verið í trollinu í dag og náði ég mér í svolítinn skammt. Svo plataði ég strákana til að ná í meira fyrir mig í næsta holi, en þá tókst ekki betur til en svo að engin rækja kom upp. Svo ég verð bara að bíða og sjá. Við hringdum heim í dag og þar virðist allt vera í himnalagi. Laugardagur 25. júní Dagurinn í dag hefur verið all- góðúr afladagur. En aflinn er ein- tóm grálúða. Heldur er að léttast brúnin á köllunum. Nú er nóg að gera. Ég skrapp augnablik niður í móttökuna í gærkveldi og annan eins óþef af fiski hef ég aldrei fundið! Mér varð hálf bumbult af fýlunni og fann hana lengi eftir að ég kom aftur upp. Veðrið hefur verið ágætt; fyrst þoka, en svo birti til og gekk á með éljum. Undir kvöldið var komið bjart og fallegt veður. Fyrir hádegið sáum við hvala- vöðu. Við nánari athugun reynd- ust þetta vera búrhveli. Þeir voru svo rólegir að þeir hreyfðu sig ekki fyrr en skipið var komið fast að þeim. Þá skvettu þeir sporðunum og hurfu í djúpið. Þetta eru ótrú- lega stórar skepnur og virðast hafa verið þama á grálúðuveiðum eins og við. Sunnudagur 26. júní í nótt var ágætt fiskirí. Nú erum við komin ennþá nær ísnum. Það er gaman að virða fyrir sér hafís- jakana misjafna að stærð og lög- un, og litbrigðin frá hvítu og út í djúpgrænt og dimmblátt. Hægt er að ímynda sér heilan ævintýra- heim ef maður stendur nokkum tíma og skoðar jakana. Þá hef ég verið að fylgjast svo- lítið með múkkanum. Hann er bráðsniðugur við að ná sér í æti. Hann virðist alveg vera orðinn VÍKINGUR háður skipunum með fæðuöflun sína. Þessir fuglar koma fljúgandi og setjast á sjóinn við skipið framanvert. Svo bíða þeir á með- an skipið skríður fram hjá þeim, þar til komið er aftur undir skut þar sem slóginu er kastað. Þar hefst veisla sem stendur langt aft- ur eftir kjölfarinu. En þá taka þeir sig aftur upp og fljúga í stóran sveig fram fyrir skipið. Og svo bíða þeir. Þama eru þeir hundruðum saman sem fara þessa hringferð. Fuglamir virðast vel á sig komnir og sumir eru jafnvel sílspikaðir. í dag fórum við inn í ísinn og hefur verið togað þar frá því um hádegi. Veðrið hefur verið mjög fallegt, logn um allan sjó á milli jakanna, sem sigldu fram hjá líkt og hvítar borgir með grænbláum gluggaflötum. Mjög fallegt fyrir augað, en ekki eins gott fyrir sjó- farendur. Þegar líða tók á kvöldið minnkaði fiskiríið. Þegar trollið var tekið inn um klukkan 23.30, var það alveg rautt af rækju. Strákamir hjálpuðu mér að ná í fulla fötu og svo stóð ég í lengri tíma við að slíta rækjuna. Þama náði ég í um tvö kíló af góðri rækju sem ég setti í frysti. Mánudagur 27. júní Þetta hefur verið mjög rólegur dagur. Þó lifnaði yfir fiskiríinu eftir hádegið, en þá vorum við komin á Strandagrunnshom. Afl- inn var að mestu þorskur, nokkuð góður. Nú eru kassamir að verða búnir en þó fáum við ekki löndun fyrr en á fimmtudag. Þriðjudagur 28. júní Sæmilegt kropp í nótt, en nú eru skipin að fá heldur smærri fisk. Færðum okkur til og fáum þar vænni fisk, en ekki í eins miklu magni og áður. Nú eru allir kassar orðnir fullir og kallinn hamast við að fiska það sem strákarnir kalla montfisk. Miðvikudagur 29. júní Þegar ég vaknaði í morgun vorum við úti af Skagafirði á heimleið. Ég fann strax að skipið hreyfðist öðruvísi en það hafði gert, enda var nú kominn kalda- skratti eins og Dóri kallaði það. En þetta var nú rok að mínu mati. Svona er þetta innfjarðarfólk. Það veit ekkert hvað íslensk veðr- átta er! Mér var nú ekkert sama um þessa breytingu og fann fyrir smá óþægindum. Það var skrýtið að vera á heimleið eftir tólf daga veiðiferð og þá fyrst finna fyrir sjóveiki. Við komum að bryggju á Akureyri klukkan 14.00 með full- fermi. Ég vil þakka öllum þeim, sem voru um borð í b/v Svalbak í þessari veiðiferð, fyrir samveruna og skemmtunina. Ég hafði mikla ánægju af að kynnast starfi þeirra og lífinu um borð. Stjáni fór á sjó með félögum sínum og dró stærðar steinbít. Steinbíturinn var ekki lengi að læsa tönnunum í tærnar á öðrum fæti Stjána. Félagar hans losuðu steinbitinn, en þar sem Stjána leið mjög illa eftir þessa óþægilegu reynslu, var honum skenkt ríflega af sjússum er í land var komið. Eftir drykklanga stund slagaði Stjáni af stað heim. Hann gekk með annan fótinn upp á gang- stéttinni, en hinn ofan í göturenn- unni. „Fjandans steinbíturinn“, tuld- aði hann, „hann hlýtur að hafa bitið mig meira en ég hélt fyrst, báðar lappir voru jafnlangar þegar ég fór á sjóinn. 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.