Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 34
H ai jgai les ýjt
Hauganes er staður sem ekki
tekur mikinn tíma af fréttaflutn-
ingi fjölmiðla. Þar eru íbúarnir
ekki að angra landsmenn með því
að auglýsa í útvarpi eftir gulum og
grænum páfagaukum sem flogið
hafa út um gluggann, bröndóttum
köttum sem strokið hafa að heim-
an, eða brúnum minkapelsi sem
tekinn var í misgripum fyrir Ála-
fossúlpu. Þar er mannlíf allt — og
dýralíf — í fastari skorðum en svo
að íbúamir þurfi að básúna slíkt í
gegnum útvarp.
Hauganes á Árskógsströnd er
heldur ekki nefnt á nafn í skipa-
fréttum, veðurfregnum eða öðr-
um lífsnauðsynlegum tilkynning-
um. Það er bara hluti af heildinni.
Kaupfélagsbúðin, sem að sjálf-
sögðu ber merki KEA í barmi,
þarf heldur ekki að eyða aurum
sínum í að auglýsa vörur og taka
þannig þátt í miskunnarlausri
samkeppni um sálirnar. Hver ein-
asti maður á Nesinu veit hvað þar
fæst. Og komi einhver ný vöru-
tegund í búðina er það á allra vit-
orði innan fárra mínútna. Þeir
hlutir sem ekki fást í kaupfélaginu
eru sóttir til Akureyrar; þangað
fara íbúarnir með stuttu millibili,
því ekki tekur það Hauganesbúa
lengri tíma að fara til Akureyrar,
en Breiðhyltinginn niður í miðbæ
Reykjavíkur.
Margur spekingurinn, margur
háskólagenginn borgari, margur
fræðingurinn hefur ekki minnstu
hugmynd um að Hauganes er all-
stórt sjávarpláss sem stendur við
vestanverðan Eyjafjörð. Byggð á
þessum stað er fremur ung; sú
kynslóð sem nú er að hverfa reisti
þar fyrstu húsin. í langan tíma var
lítið byggt. Karlmennimir stund-
uðu sjó og áttu rollur í húsi, kon-
urnar unnu á heimilum sínum og
tóku virkan þátt í lífsbaráttunni,
sem tilheyrir því að stunda sjó og
búskap í senn. Fram á sjöunda
áratuginn var fólksfjölgun á
Hauganesi ákaflega hæg; ungar
stúlkur sóttu atvinnu til fjöl-
mennari staða í nágrenninu,
ílentust þar og fluttu ekki aftur á
æskustöðvarnar. Svipaða sögu var
að segja um karlmennina.
En á síðastliðnum tíu til fimm-
tán árum hefur þróunin breyst.
Ungt fólk vill nú setjast að á
Hauganesi og þar hefur nú verið
byggður mikill fjöldi nýrra
íbúðarhúsa .. . mikill fjöldi á
mælikvarða undangenginna ára.
Þessi fjörkippur helst í hendur við
þá auknu útgerð sem verið hefur
við Eyjafjörð á sama tímabili. í
dag búa á annað hundrað manns
á Hauganesi.
Þarna hefur atvinnulíf alla tíð
Hauganes, ört vaxandi byggð. í baksýn sést Hvalbakur við austanverðan Eyjafjörð.
34
VÍKINGUR