Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 35
byggst upp á fiskveiðum. Hauga- nesbúar eru dugmiklir sjómenn sem hafa verkað afla sinn sjálfir, og gera enn. Aftur á móti eru litlir atvinnumöguleikar fyrir kven- fólkið, nema þá í fiskvinnu. Ein- mitt sú staðreynd stendur kannski í vegi fyrir örari uppvexti plássins, ásamt því að skammt er að sækja til stærri staða, svo sem Dalvíkur og Akureyrar. Ekki tekur nema tæpan hálftíma að skjótast til Akureyrar og ennþá styttra er til Dalvíkur. Því má með sanni segja að at- vinnuöryggi sé ekki mikið á Hauganesi fremur en öðrum stöðum sem eiga allt sitt undir fiskveiðum. 1 dag eru gerðir út fjórir bátar sem stunda netaveiðar. Allur afli Að lokinni aðgerð. Bræðurnir Halldór og Níels Gunnarssynir eigendur Níelsar Jóns- sonar EA 106. Lengst til hægri: Jóhann Antonsson landmaður. er verkaður í salt og skreið en lifr- skógssand þar sem lifrarbræðsla ina er farið með út á Litla-Ár- er fyrir hendi. Allur afli er verkaður í salt og skreið líkt og á Hauganesi og taka sjómennirnir þátt í að verka afl- ann eftir að bátarnir eru komnir að landi. Litli-Árskógssandur er einn af örfáum ferjubæjum á landinu, en þangað kemur ferjan frá Hrísey á hverjum degi. Á sjávarkambinum skammt frá bryggjunni stendur mikill og veglegur bílafloti sem er í eigu Hríseyinga. Eyjarskeggjar hafa þann háttinn á, að þeir skilja bíla sína eftir í landi þegar þeir fara út í eyju. Árið 1964 var gert töluvert átak í hafnarframkvæmdum á Sandin- um. Eins og málum er háttað í dag geta þeir fjórir bátar sem þaðan eru gerðir út, legið við hafnar- garðinn. En geri vonskuveður verður oft að fara með bátana í öruggari höfn. Þá er gjaman farið til Dalvíkur. 35 Skammt utan við Hauganes stendur annað sjávarpláss sem á sér mjög svipaða sögu og Hauga- nes. Það er Litli-Árskógssandur eða „Sandurinn“ eins og staður- inn er kallaður í daglegu tali. Þar búa tæplega hundrað manns sem hafa atvinnu af fiskveiðum. Þaðan eru gerðir út fjórir bátar af stærðargráðunni 30 til 60 tonn. Svavar Guðmundsson útgerðarmaður á Litla-Árskógssandi. í baksýn má sjá Hríseyjar- ferjuna Sævar liggja við bryggju. VÍKINGUR Litli-Árskógssandur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.