Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Side 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Side 36
Það má segja að hafnarmann- virki bæði á Hauganesi og Litla— Árskógssandi séu ófullnægjandi. Á árum áður var mikið rætt um það að koma upp einni góðri höfn fyrir báða staðina, en menn gátu ekki komið sér saman um á hvor- um staðnum hún átti að vera. Þessvegna komst þessi hugmynd Gamla góða merkið Ptretorn Merki stígvélanna sem sjó- menn þekkja vegna gæð- anna. Fáanleg: Með eða án trésóla. Með eða án karfahlífar Stígvélin sem sérstaklega eru framleidd með þarfir sjómanna fyrir augum. EINKAUMBOÐ JÓN BERGSSON H/F LANGHOLTSVEGI 82 REYKJAVÍK SÍMI36579 Þau eru mörg handtökin við þorskinn áður en hann er settur í pottinn eða á pönnuna suður í Grikklandi. Hér eru Sólrúnarmenn á kafi i aðgerð. Lengst til hægri er Gunn- laugur Konráðsson, en hann er umboðsmaður Víkings á Litla-Árskógssandi og nágrenni. aldrei lengra en á umræðustigið. Þó hefði sú þróun verið ákaflega æskileg í stað þess að hafa tvær ófullkomnar hafnir innan sama hrepps. Á Litla-Árskógssandi gerir fyrirtækið G.Ben s/f út tvo báta, Sæþór og Arnþór. Svavar Guðmundsson, sem er einn af eigendum fyrirtækisins og sér um fiskverkunina, tjáði mér að af- koma útgerðarinnar hefði verið all góð á undanförnum árum. Það þakkaði hann fyrst og fremst því að menn verkuðu afla sinn sjálfir og kæmust þannig næst því að fá raunverulegt verð fyrir fiskinn. Hið háa verð sem verið hefur fyrir skreiðina að undanförnu hefur líka haft mikið að segja. „Yfir sumarið hefur verið miklum erfiðleikum bundið fyrir okkur að fá ís,“ sagði Svavar. „Við höfum þurft að fara ýmist út á Dalvík eða inn á Akureyri, það er að segja ef við höfum þá fengið nokkum ís. En nú stendur þetta til bóta. Við höfum fest kaup á ísvél í samvinnu við Sólrúnu, sem er annað útgerðarfyrirtæki hér, og þá verður þetta allt miklu þægi- legra. Á veturna eru bátarnir gerðir út á net, en á sumrin höfum við bæði veitt rækju og verið með netin. Línuveiðar hafa ekki verið stundaðar héðan í mörg ár.“ Engin verslun er á Litla-Ár- skógssandi. En hægt er að panta vörur frá kaupfélaginu á Hauga- nesi sem síðan sendir þær þrisvar í viku. „Ef það er eitthvað sérstakt sem vantar, þá skjótast menn bara til Dalvíkur eða inn á Akureyri,“ sagði Svavar. Um kvöldmatarleytið fóru bát- arnir að koma að. Afli var með tregara móti og hljóðið í köllunum í samræmi við það. „Þetta helvíti er ekki nokkru líkt,“ sagði einn sjómaðurinn við mig um leið og hann losaði úr málinu á bryggjunni. „Einn dag- inn er ágætis afli en svo fæst kannski ekki bein úr sjó næsta dag!“ — Hvernig ætli standi á því? „Standi á því? Spurðu þessa andskota fyrir sunnan, þeir ráða þessu öllu!“ Já, mikill er máttur þeirra fyrir sunnan. Það verður aldrei af þeim skafið! 36 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.