Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Blaðsíða 41
þessu fyrir 10 árum var alveg óhemju þorskur á grunnslóð aust- ur í Þistilfirði. Þá voru menn með þorsknótina á þessu. Ég man eftir því að ég fann svo stóra lóðningu þarna í dýpinu, sem næturnar náðu ekki í, að það hefði þurft margar nætur til að ná utan um hana . . . þetta var eins og stærsta síldartorfa. En þetta var eintómur þorskur drengur minn! Alveg óhemju andskotans magn! Þarna fyrir utan línuna var breski togaraflotinn eins og hann lagði sig. Á þessum tíma var álitið að þorskstofninn væri kominn niður í það allra lægsta sem hægt væri að hugsa sér. Én svo skeður það bara, að þegar búið er að loka þessu svæði, því var lokað út í 200 mílur austur úr Langanesi og norður úr Hraunhafnartanga, þá skeður það bara að fiskigengd fer ört minnkandi á grunnslóðir. Það er nú ekkert annað. Á undanförnum árum höfum við aftur á móti haft þokkalegan netafisk hér á Vesturkantinum, þar sem togurunum hefur þó verið hleypt upp á 12 mílur. Þeir hafa verið að toga innan um netatross- urnar okkar og það hefur gengið alveg áfallalaust.“ — Hver er skýringin á þessu? „Þetta er dálítið merkilegt. Ég held að skýringin sé einfaldlega sú að fiskurinn liggi í djúpköntunum á friðuðu svæðunum. Þar er nóg æti og eilífur drottins friður. Mér virðist þetta vera mjög einfalt. Þegar opnað var þama inn á 40 mílur í haust þá gerist það að fiskigengd óx á grunnslóðum og varð meiri en hún hefur verið í langan tíma. Ég man til dæmis eftir því þegar við vorum á trollinu á Snæfellinu, þá var andskotast á fiskinum á Sléttugrunninu og hann eltur með línunni . . . bókstaflega rekinn innfyrir handa smábátunum. Þessvegna tel ég það engum til góðs að ákveðin svæði séu friðuð í VÍKINGUR of langan tíma. Það þarf að hrófla við þessu alltaf annað slagið . . . hreint og klárlega að plægja svæðin upp eins og tún eða akur. Það hefur til dæmis átt að moka upp kola á snurvoðasvæðum sem hafa verið friðuð í áratugi. En þá fæst bara ekkert nema dót, bara ónýtt rusl! Þetta gerðist f.yrir sunnan Langanes. Það komu fiskifræðingar til að kanna þetta og mér var sagt að þeir hefðu hvergi nokkurstaðar getað fyllt blikkfötu af ætum kola. Það litla sem fékkst voru bara smákvikindi sem voru eins og undirbollar á stærð. Ég er ekki að segja að það eigi að opna svæði alveg upp í fjöru og leyfa skipunum að vera þar allt árið, síður en svo. En alveg skil- yrðislaust að opna í einhvern ákveðinn tíma og ekki láta líða of langt á milli.“ Um endurnýjun fiski- skipaflotans Þegar hér er komið sögu er farið að glitta í ljós framundan á stjór. Það er Gjögurviti. Myrkrið grúfir ennþá yfir öllu. Það er kominn norðan kaldi með éljagangi. Frostið er 8 gráður. Hver dropi sem frussast yfir bátinn frýs og hleðst uan á rekkverk og stög. Tölurnar á sjávarmælinum rokka á milli núll og einnar gráðu. Það verður hrollur í einhverjum þegar fyrsta baujan verður tekin. Tal okkar Matthíasar berst nú að hinum margumrædda togara sem kenndur hefur verið við Þórshöfn, og þeirri útþenslu sem er í fiskiskipaflotanum, þrátt fyrir yfirlýsingar ráðamanna um það að flotinn megi ekki stækka. „Það er eitt í þessu sem við verðum að gæta að, en mér sýnist að ekki sé gert, þrátt fyrir reynslu undangenginna ára,“ sagði Matt- hías og hreyfði sjálfstýinguna um nokkur strik. „Einn góðan veður- dag vöknum við upp við það að allur fiskiskipaflotinn þarfnast endurnýjunar. í stað þess að endurnýja flotann jöfnum hönd- um, er verið að gera upp gamla kláfa og reyna að tjasla í handónýt skip. Maður hefur séð fyrirmynd- ina að þessu í Slippstöðinni á 41 „Jöklaliðið“ í mat. Frá vinstri: Magnús Hafsteinsson, Garðar Ægisson, Svavar Marín- osson og Sigurbjörn Bencdiktsson, öðru nafni „Jarlinn af Móafelli“. Það ereins og hann hugsi: Það vatnar eitthvað í þetta hjá mér ... svolítið estragon eða kannski ögn af Herbes du Provenqe ... ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.