Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Síða 48
Beðið eftir að kallinn gefi skipun um að láta drekann fara. Á meðan er tækifærið notað til að blóðga. Garðar Ægisson og Brynjólfur Oddsson. Magnús Hafsteinsson grúfir sig yfir þorskinn. hef nú aldrei prufað það . . . að minnsta kosti ekki með gúmmí- vettlingum! Jarls þáttur af Móafelli Þegar nálgaðist hádegi fór ég að velta því fyrir mér hvað „Jarlinn af Móafelli“ ætlaði sér að hafa í mat. Hann hafði verið úti á dekki allan morguninn og djöflast eins og berserkur í úrgreiðslunni, þannig að ég gat ekki ímyndað mér að hádegisverðurinn yrði upp á marga fiska. Kannski hefði hann hreinlega gleymt að búa til mat- inn. Og þegar klukkan var að verða tólf benti ekkert til þess í eldhús- inu að maður ætti að fá einhvem matarbita. Einu merkin um mat voru tvær baunadósir frá Ora sem stóðu skorðaðar við eldavélina; það yrðu svona fimmtíu baunir á kjaft. Það var kannski ekki hægt að ætlast til þess að Jarlinn hefði mikinn tíma til að elda, þegar hann var úti á dekki allan tímann. Hann rétt skaust inn í borðsal á milli trossa eins og aðrir. Og sá tími nægði varla til að skvetta í sig kaffi úr einni krús, hvað þá að vinna stóra sigra á sviði matar- gerðarlistar. Afli hafði verið þokkalegur í tvær síðustu trossurnar og nú hafði ég sett markið upp í 6 tonn. Það var auðvitað fyrir mestu að maður fengi í soðið þótt enginn væri til þess að sjóða. . . þótt maður fengi kannski ekki annað en grænar baunir í hádegismat. Klukkan var hálf eitt þegar bú- ið var að leggja trossuna og þá var gefið matarhlé. Ég stóð uppi í brú og var ekkert að flýta mér í grænu baunirnar; var orðinn afsvangur og búinn að sætta mig við að halda maganum gangandi á kaffi það sem eftir var dags. Loks drattaðist ég niður, svona rétt til að vera ekki félagsskítur 48 um borð og neita að taka þátt í baunaátinu; ég sá fyrir mér hel- vítis baunimar veltast á diskinum og strákana elta þær með gafflin- um. Eða kannski yrði maður lát- inn borða þær með prjónum? En það voru ekki veltandi baunir sem ég sá þegar ég kom í dyrnar í borðsalnum. Sú sjón sem mætti mér kom mér jafn mikið á óvart og við hefðum fengið sjón- varp í netin. Þama sátu strákamir hlið við hlið og hámuðu í sig feitar og safamiklar lærissneiðar með til- heyrandi meðlæti sem stóð í háum hraukum á borðinu. Það glansaði á brúnaðar kartöflumar eins og nýlesnar ferskjur við Miðjarðar- hafið, sósan var dýrlegur grautur sem mann langaði mest til að stinga sér í.. . og það sem meira var: Baunirnar frá Ora féllu svo snilldarlega inn í umhverfi sitt, að þær líktust einna helst iðjagræn- um túnum mitt í hlíðum Gósen- landsins. „Nei, hvert þó í heitasta!“ varð mér að orði og starði opineygur á kokkinn. „Hvenær hafðirðu tíma til að steikja þetta?“ Greifinn brosti út í annað, sem benti til þess að réttirnir væru ekki nema þrír og hann væri hálf óánægður með afraksturinn. Honum var ekki gefið færi á að svara. „Blessaður vertu, hann þarf ekki nema tíu mínútur til að búa til svona mat. Þú ættir að sjá krásirnar þegar hann hefur góðan tíma til að matbúá!" Þegar ég fór að borða skildi ég það sem Matthías hafði sagt við mig kvöldið áður, þegar talið barst að eldamennsku Jarlsins af Móa- felli: „Ég get bara sagt þér það drengurminn, að kokkamir á Hótel Loftleiðum eru gufur sam- anborið við Jarlinn!“ Mettur og vel á mig kominn stóð ég uppi í brú það sem eftir var dags og fylgdist spenntur með aflanum. Mér hafði tekist að naga allar neglur upp í kviku og var nú byrjaður á skinninu í kringum þær. Fiskiríið gaf mér ýmist tæki- færi til að bölva helvítis tregðunni, eða blessa þá fáu neista sem komu. En ekkert virtist hagga ró Matthíasar. Hann stóð við stjórn- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.