Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1981, Page 51
Helstu breytingar á bátakjarasamningi Eins og kunnugt er, tókust samningar um kaup og kjör á bátum 25. febrúar s.l. eftir langt samningsþóf, og höfðu þá launaliðir samninganna verið lausir hjá flestum félög- um síðan í mars 1978, en samningamir í heild lausir síðan 1. nóvember 1978. Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu breytingum á samningunum, en þar sem þess hefur þótt þurfa við til glöggvunar eru teknar heilar greinar samn- ingsins með áorðnum breyt- ingum. Launagreiðslur milli veiðitímabila o.fl.: Á þeim skipum sem stunda úti- leguveiðar með botnvörpu, línu eða netum skulu skipverjar hafa frí við löndun. Á togskipum 160 rúml. og minni skulu skipverjar landa aflanum, hafi veiðiferð tek- ið 3 sólarhringa eða styttri tíma, enda fái þeir þá vinnu greidda með Kr. 80,00 fyrir hverja smálest. Taki veiðiferð lengri tíma en 3 sólarhringa, er þeim heimilt að landa aflanum, enda fái þeir sömu greiðslu. Um tryggingartímabil og uppsagnarfrest: 1. Hver almanaksmánuður er sérstakt kauptryggingartíma- bil. 2. Hefji skip veiðar eftir 15. hvers mánaðar og nái aflahlutur ekki kauptryggingu á næstu mánað- VÍKINGUR armótum, þá skulu þeir dagar teljast með kauptryggingar- tímabili næsta mánaðar á eftir. 3. Á skuttogurum telst hver veiði- ferð sérstakt kauptryggingar- tímabil. Veiðiferð telst hafin er togari leggur úr höfn og henni telst lokið er togari kemur til löndunar og samningsbundnu hafnarfríi er lokið. Að loknu hafnarfríi mega líða 7 dagar án sérstakrar kaupgreiðslu og á vinnuskyldu. Áð þeim tíma liðnum skal greiða kauptrygg- ingu, enda sinni skipverjar samkvæmt beiðni 8 tíma vinnuskyldu á dag við skipið innanborðs og búnað þess. Þurfi skipstjóri eða stýrimaður að vinna við skip eða hafa eft- irlit með því á fyrstu 7 dögum skal greiða honum kaup eftir vinnureikningi, skv. tímakaupi eins og ákveðið er í samningi þessum. 4. Á öllum skipum sem selja afla á erlendum markaði telst hver veiðiferð (söluferð) sérstakt kauptryggingartímabil. 5. Nýtt kauptryggingartímabil tekur ekki gildi, þótt skipt sé um veiðarfæri. 6. Heimilt er að ráðningartími skipverja sé ákveðinn við ráðn- ingu, enda sé það tekið fram við lögskráningu hverju sinni. 7. Stöðvist skip annað en skuttog- ari af öðrum ástæðum en þeim að veður hamli veiðum, skal greiða viðkomandi skipverjum skv. 1. málsgr. 27. greinar fyrir þá daga sem eru umfram 8, miðað við 40 stunda vinnuviku, enda hafi ráðningu eigi verið slitið. Greiðsla þessi kemur til viðbótar við aflahlut, ef um hann er að ræða á viðkomandi kauptryggingartímabili, en fellur niður ef aflahlutur nær ekki kauptryggingu. 8. Sé skip á veiðum þegar nýtt kauptryggingartímabil hefst, skal afli þeirrar veiðiferðar skiptast á milli tímabila á þann hátt, að afla skal skipt jafnt á hvern dag frá því að skipið fór á veiðar, og þar til það kemur úr veiðiferð á ný. Um löndunar- og hafnarfrí: Á öllum skipum er stunda veið- ar með botnvörpu, línu eða netum og eru í útilegu og ísa eða salta aflann um borð og landa innan- lands eða utanlands skuli skip- verjar hafa hafnarfrí í 24 klst. eftir hverja veiðiferð. Sama gildir einnig um skip sem eru á spærlingsveiðum. Eigi er skylt að hafa hafnarfrí í 24 klst. ef veiðiferð tekur skemmri tíma en 5 sólarhringa en hafnarfrí skal þó eigi vera skemmri tími en tekur að skipa upp aflanum og búa skip í næstu veiðiferð. Hafn- arfrí skal þó aldrei vera skemmra en 6 klst. Sé skip á rækjuveiðum fjarri heimahöfn og ísi aflann um borð, og áhöfn ekki komið til heima- hafnar í 3 vikur (21 dag) skal þá veita þeim er samningur þessi tekur til 2 sólarhringa frí í heima- höfn. Útgerðin greiði ferðakostn- að til og frá heimahöfn, og frítaka telst hafin þá komið er til heima- hafnar. Séu veiðar stundaðar um lengri 51

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.