Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Page 77

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Page 77
Burt með ferjurnar Tillagan sem sigraði. Lestir á stöðugum þeytingi fram og til baka og ferja allt sem fara þarf um göngin. Endurvaktar hugmyndir á seinni árum, um að byggja e.k. brú á milli Frakk- lands og Englands ofan eða neðan sjávar, verða að skoðast íIjósi tækninnar — verið er að koma 21. aldar sniði á samgöngur yfir Ermarsund. Enda þótt sú ákvörðun ríkisstjórna Bretlands og Frakklands að velja tillögu um neðan- jarðarlestargöng geri að engu — að minnsta kosti um stundarsakir — vonir hinna keppendanna, hafa þeir trú á að fá tækifæri til að reyna tillögursínar annars staðarí framtíðinni. Reyndar er breska ríkisstjórnin enn með lang- tímaáætlanir um viðbótarveg yfir sundið. Vinningstillagan — Neðanjarðargöng undir Ermarsund Samsteypan sem hlaut náð fyrir augum bresku og frönsku ríkisstjórnanna gerir ráð fyrir að bora 50 km löng göng á milli Cheriton og Frethun, 40 km undir hafs- botni. Göngin verða fóðruð með annað hvort járn- eöa steinsteypu. Hver aðalgöng verða 7,3 m i þvermál og á milli þeirra viðgerðargöng 4,5 m i þvermál, tengd aðalgöng- unum með 375 m millibili, sem viðgerðar-, loftræsti- og öryggisgöng. Hægt er að tengja brautarteina á mili gangna, þannig aö umferð geti haldið áfram þótt unnið sé viö viðgerö einhversstaöar igöngunum. Sérstakar ferjulestir verða byggðar til að anna mestu flutningunum. Þær munu samanstanda af samtengdri halarófu af þrettán tveggja hæða vögnum undir fólksbila, eða jafn mörgum einnar hæð- ar undir rútur og hjólhýsi. Tvær slikar halarófur munu venjulega fara í einu og gefa þá rúm fyrir annað hvort 200 bila eða 13 rútur eða hjólhýsi og 160 fólksbila. Sérstök vagnastrolla fyrir trukka mun geta borið 25 farartæki í einu. Þetta fyrirkomulag mun gera fært aö flytja meira en 400 farartæki á klukkustund i hvora átt fyrir sig. VÍKINGUR 77

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.