Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Side 23
I
broddi með nýjungar fyrir sjáv-
arútveg, hvort sem um er að
ræða þrif í fiskvinnslu eða per-
sónulegt hreinlæti starfsfólks
hennar, og nýjustu dæmi
sanna að svo er enn.
Á sjávarútvegssýningunni
1990 mun Efnaverksmiðjan
Sjöfn leggja sérstaka áherslu á
nýjung við þrif í matvæla-
vinnslu, sem nefnist hreingern-
ing með litvísi. Hér er á ferðinni
aðferð, sem eykur öryggi hrein-
lætis verulega, og byggist á
því, að ákveðnu litarefni er bætt
í hreingerningavökvann. Þetta
litarefni hefur þann eiginleika,
að það binst lífrænum óhrein-
indum og litar þau, þannig að
úrgangur sem einhverra hluta
vegna dylst mannlegu auga
verður greinilegur. Með sam-
viskusamlegum vinnubrögðum
má með þessari aðferð ná áður
óþekktum gæðum á sviði
hreinlætis og um leið auknum
gæðum afurða að öðru
óbreyttu.
Fyrirtækið Cleansolve Int-
ernational í Danmörku hefur
sótt um alþjóðlegt einkaleyfi á
hreingerningum með litvísi
(profylaktisk rengöring) og veitt
Sjöfn einkarétt á framleiðslu og
dreifingu viðkomandi hreinlæt-
isvara á íslandi, Grænlandi og í
Færeyjum. Undanfarna mán-
uði hefur Sjöfn staðið fyrir
kynningum á hinni nýju aðferð
vítt og breitt um landið bæði í
einstökum fyrirtækjum og jafn-
framt með hópkynningum, þar
sem ýmsum fyrirtækjum er
boðið til þátttöku samtímis.
Vægt til orða tekið hafa þessar
kynningar vakið áhuga og at-
hygli þátttakenda, og margir
hafa nú þegar tekið að nýta sér
hina nýju tækni með góðum ár-
angri.
Eins og oft vill verða þegar
nýjungar eru á ferðinni kemur
mönnum ýmislegt á óvart við
fyrstu kynni. Svo er einnig um
hreingerningarmeð litvísi. Nær
undantekningarlaust hafa
menn staðið agndofa and-
spænis hinum rauðu flötum
sem koma í Ijós, þegar t.d.
hreingerningarefninu Vísi er
úðað yfir fleti sem „áttu“ að vera
hreinir. Sannleikurinn er sá, að
mjög mikið af ósýnilegum og/
eða ekki viðurkenndum óhrein-
indum er fyrir hendi í fisk-
vinnsluhúsum, jafnvel þeim
sem njóta starfsfólks er leggur
sig verulega fram við að halda
umhverfinu hreinu. Það er því
ekki laust við að ákveðinn
beygur læðist að starfsfólki
gagnvart hreingerningu með
litvísi, en hann er þó fullkom-
lega ástæðulaus. Að vísu þarf
heilmikla vinnu til að þrífa allt
það sem í Ijós kemur með litvísi
og þar sem oft er um gömul,
erfið óhreinindi að ræða er
nauðsynlegt að grípa til öflugs
hreinsiefnis eins og t.d. Afvísis.
Þeir sem á annað borð hafa
áhuga á að auka verðmæti af-
urða sinna láta slíkt þó ekki
aftra sér og ganga fagnandi til
verks, enda ná þeir 100%
hreinlæti, ef vel er að verki
staðið.
í stærri húsum er skynsam-
legt að taka hreingerningu með
litvísi í notkun í þrepum, þ.e.
byrja á því að þrífa hluta af hús-
næðinu t.d. fyrstu vikuna og
svo afganginn koll af kolli þar til
allt er orðið hreint. Þetta getur
tekið nokkrar vikur allt eftir
stærð viðkomandi húsnæðis.
Nauðsynlegt er að nota hrein-
gerningarefni með litvísi við
hvern þvott til þess að viðhalda
fengnum gæðum hreinlætis,
sem fást þá með því að fjar-
lægja alla rauða bletti sam-
viskusamlega.
Alla þá sem áhuga hafa á að
kynna sér nánar hreingerning-
arefni með litvísi eða aðrar vör-
ur frá Sjöfn bjóðum við vel-
komna í bás okkar númer D 44
á meðan sjávarútvegssýningin
stendur yfir.
EFNAVERKSMIÐJAN
SJÖFN -
Chemical plant Sjöfn
The chemical plant Sjöfn
was established in Akureyri
in 1932. Originally the main
products were soap, candles
and shoe polish, just to men-
tion a few. Sjöfn has contin-
ued to develop the hygiene
and cosmetic side of the pro-
duction, but many changes
have occured over the years,
the biggest of which is the
addition of the paint depart-
ment. Today Sjöfn„s paint
production represents two
thirds of their annual turn
over.
It can be said that Sjöfn
can provide all necessities
for painting whether for the
fishing industry or others,
Polytex, Útitex, Rex ship
paint, Metenginegloss, E-21
gloss etc. These are all well
known names in the fish in-
dustry and outside of it.
Icelanders are not the only
ones who have had the ben-
efit of Sjöfn„s paint as many
liters have been exported
and beautify both ships and
houses in countries like So-
viet Union, Ireland, Faroe Is-
lands and Greenland.
Sjöfn has given special at-
tention to the development
and production of cleaning
agents for the fish industry,
which'is not surprising when
one considers the impor-
tance of this industry to lce-
land. Over the years Sjöfn
has been a forerunner in new
innovations for the fishing in-
dustry, regarding both the
cleaning of the fish process-
ing plants and the personal
hygiene of their employees.
VÍKINGUR 23