Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Síða 24
SÆPLAST H.F. DALVÍK
þessar eru þekktar sem vand-
aðar og sterkar kúlur, enda eru
þær um borð í allflestum ís-
lenskum skipum. Talsvert hef-
ur verið um útflutning á þessum
kúlum. Hafa þær selst m.a. til
Kanada, Danmerkur, Eng-
lands, Skotlands, Frakklands
og nú síðast til Ástralíu. Fyrir-
hugað er að flytja starfsemi þá
er Plasteinangrun hf. hafði til
Dalvíkur á hausti komanda.
Sæplast hf. hefur alia tíð lagt
kapp á vöruvöndun og há-
marksgæði sinna vara. Þetta
hefur tekist með góðu sam-
starfi við útgerðarmenn, fisk-
verkendur og sjómenn. Sæ-
plast hf. framleiðir því vörur
sem standast kröfur um gæði
og vöruvöndun á fslandi og um
leið víðar.
24 VÍKINGUR
Sæplast hf. hóf starf-
semi sína á Dalvík í
marsmánuði árið
1984.
Það var fyrir tilstuðlan Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar að
nokkrir framtakssamir einstak-
lingar keyptu nafn og tækja-
búnað fyrirtækis sem starfrækt
hafði verið í Garðabæ um
nokkurt skeið.
Á þessu ári eru því liðin 6 ár
frá því Sæplast hf. hóf starf-
semi sína hér á Dalvík.
Á fyrstu árum starfseminnar
var Sæplast í u.þ.b. 300 fer-
metra leiguhúsnæði. Það var
sumarið 1987 að fyrirtækið flutti
í eigið húsnæði, sem er nýtt og
glæsilegt, um 1700 fermetrar.
Um leið voru keyptar nýjar og
fullkomnar vélar til framleiðsl-
unnar. í nýja húsnæðinu er
mjög rúmt um alla framleiðsl-
una og allur aðbúnaður starfs-
fólks til fyrirmyndar.
í upphafi starfseminnar var
framleiðslugetan um 20 ker á
sólarhring, en með nýju vélun-
um er hún nú um 75 ker á sólar-
hring. Sæplast hf. hefur sér-
hæft sig í framleiðslu á vörum
fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu,
aðallega á fiskkerjum og brett-
um. Notkun fiskkerja hefur auk-
ist gífurlega á síðustu árum, og
má segja að allsstaðar þar sem
unnið er við fisk komi fiskker við
sögu. Stór hluti íslenska fiski-
skipaflotans notar nú fiskker
um borð til geymslu á ísfiski.
Eru það skip allt frá stærstu
skuttogurum niður í minnstu
smábáta.
Sæplast hf. hefur frá árinu
1985 unnið markvisst að því að
markaðssetja vörur sínar er-
lendis. Má segja að nokkur ár-
angur hafi náðst því undanfarin
ár hefur útflutningur aukist úr
30% á síðustu árum í um 40%
árið 1989. Stærstu markaðirnir
hafa verið í Kanada, Færeyjum
og Grænlandi, Sjálandi og
Ástralíu. Einnig hefur selst
nokkuðtil Afríku, S-Ameríku og
Saudi-Arabíu.
Nýlega keypti Sæplast hf.
Plasteinangrun hf. á Akureyri.
Plasteinangrun hefur um nokk-
urra ára skeið framleitt m.a.
ICEPLAST trollkúlur. Trollkúlur
SÆPLAST HF.
Sæplast hf. are special-
ised manufacturers of plastic
products for the fishing in-
dustry, primarily fish tubs
and pallets. Over the past
years there has been a
marked increase in the use
of fish tubs. It may be said
that where ever fish is
worked, fish tubs are used. A
large percent of the lcelandic
fishing fleet now use fish
tubs on board to contain iced
fish. This includes ships from
the biggest trawlers to the
smallest fishing boats.
Sæplast hf. has always
taken pride in producing
merchandise of a very high
standard. They have
achieved this by working in
co-operation with the profes-
sional fishermen, boat own-
ers and fish processing
plants. Sæplast therefore,
manufactures products
which meet the high stan-
dards demanded in lceland
and other countries.