Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 9
upp í Stardal. Svo þegar ég er 15 til 16 ára á ég ekki annan draum en að komast á sjóinn. Þá hafði ég verið í vegavinnu á Vatnsskarði og það fer alltaf einhver sérstök tilfinning um mig þegar ég keyri veginn um Vatnsskarð, mér finnst ég eiga eitthvað í honum. Þarna bjó ég í tjaldi og talsverð harð- neskja í vinnu. Þá höfðum við engin tengsl við Brussel og það var löglegt að herða sig á þessum árum og verða að manni þó að það sé bannað núna. Matthías: Ef einhver togari eða bátur á eignina á sjómaðurinn hana ekki síður... egar ég var 16 ára bið ég föður minn að kanna hvort hann geti ekki komið mér á sjóinn. Það tekst. Ég er ráðinn messastrákur á Brúarfoss vorið 1946 og þá hefst þessi svokallaða sjó- mennska mín. Daginn áður en ég átti að mæta um borð fékk ég tannpínu og fór til tann- læknis. Tannlæknirinn sagði að ef ég ætlaði á sjóinn dag- inn eftir yrði að drepa taugina og ég geri þá yfirgengilegu bomertu að segja að það sé best að drepa taugina, bara til að komast á sjóinn. En tönn sem taug er drepin í stendur sig ekki eins og aðrar tennur og ég hef alltaf séð eftir þess- ari tönn, en ég sé ekki eftir því að fara á Brúarfoss. Það var varla nokkuð þorp svo lítið við ströndina að við færum ekki þangað að sækja frosinn fisk. Við sigldum til Danmerkur og við fórum til Leningrad með fyrsta farminn af frosnum fiski sem fór til Sovétríkjanna. Ég var í klefa með 2. mat- sveini sem var kallaður Guð- mundur Dýriirðingur. Hann var mér ákaflega góður en ég var alltaf sjóveikur þegar illt var í sjóinn. Ég skrifaði dagbók sem ég á enn og get því alltaf séð hvenær ég var sjóveikur, sé það á rithönd- inni. Þegar verst gegndi kom fyrir að Guðmundur ynni fyrir mig og mér var óskaplega hlýtt til þessa manns. Hann var mikill og góður vinur minn, þrælduglegur og sérstæður í alla staði. Ég var svo sjó- veikur þegar við fórum yfir Norðursjó í brjáluðu veðri að ég var að velta því fyrir mér í Kaupmannahöfn að strjúka af skipinu. Fannst ég ekki geta lagt þetta á mig lengur. Ég sjóaðist ekki og verst gegndi þegar þeir voru að sjóða steinbít. Síðan hef ég aldrei getað borðað soðinn steinbít. Skipið var svo gott sjóskip að það töluðu all- ir um það að maður sjóaðist ekki almennilega vegna þess að mað- ur steig ölduna einhvern veginn með þeim hætti að ég varð bara ringlaður í höfðinu. Ég sjóaðist ekki fyrr en ég fór með togaranum Geir til Bretlands í vondu veðri. Þá sjóaðist ég á fyrstu tveimur dög- unum og fann ekki til eftir það. etta var þrekraun um borð í Brúarfossi. Ég var í yfirmanna- messa, lagði á borð, vaskað upp og gerði annað sem þurfti. Ég var með tvær fötur hjá mér. Kastaði upp í aðra og þvoði hnífapörin og diskana í hinni. Auðvitað kastaði ég líka upp yfir lunn- inguna. Einu sinni voru þeir að smúla dekkið en ég var svo veikur í koju að ég ældi út um kýraugað á dekkið. Þá sprautuðu þeir inn í kojuna og fylltu hana af sjó. Það voru launin fyrir það að kasta upp á dekkið. En ég lagði allt þetta á mig fyrir þetta ævintýri og allt Sjómannablaðiö Víkingur - 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.