Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 10
mótefni gegn Stalínisma og það hefur dugað mér alla ævi. Þá sé ég þetta stalínska umhverfi, en fólkið þarna var skínandi gott. Það hélt hins vegar að við værum frá Eistlandi. Vopnaðir verðir voru við landganginn og við skut og stefni og maður fór varlega. Ég man að mig langaði að eiga landgöngupassann minn en þorði ekki annað en afhenda hann svo maður ætti ekki á hættu að verða settur inn. Hvatarkonum þótti Jón seglasaumari orðljótur í Morgunblaðsviðtali, en Bjarni Benediktsson hafði gaman af. gerði þetta mann að einhvers konar manni. Þarna var ég strákur í mótun og maður í bígerð og ég hef búið að þessu alla tíð. Þessir menn sem voru þarna um borð urðu allir vinir mínir. Ég hafði óskaplega aðdáun á kyndurunum sem voru kolsvartir en alltaf jafn hjartagóðir. En þegar við komum til Kaupmannahafnar hafði ég ekki jafngóðan skilning á sambandi þeirra við dönsku stelpurnar sem störfuðu við höfnina. Aftur á móti náði ég mér í aukapening með því að sendast fyrir þá þegar þeir voru hvað mest uppteknir við þetta og komst í Tívólí fyrir vikið. Ég man eftir því að þegar við fórum til Helsingfors fengum við brjálað veður í hálfan annan sólar- hring og skipið hjó mikið á Eystrarsaltinu. Þá stóð Jón Eiríksson skipstjóri vaktina allan sólarhringinn upp í brú og maður lærði af þessum mönnum að axla sína ábyrgð og gera það sem að manni sneri. Svo sigldum við upp Finnska flóa og þar var svo mikið af tundurduflum að við gátum ekki siglt nema á daginn og þá með finnskum og rússneskum lóðsum. Þegar við komum til Leningrad gekk allt ágætlega. Verðirnir leituðu ekki að neinu nema mönnum, var alveg sama um allt annað. Sextán ára gamall fékk ég þarna Guðmundur Dýrfirðingur var alltaf með mér í káetu og ég bar mikla virðingu fyrir þessum velunnara mínum. Svo löngu síðar þegar ég er orðinn blaðamaður og raunar rit- stjóri var ég að skrifa um þann atburð þegar Reykjaborgin var skotin niður og um árásina á Fróða. Þegar ég var að skrifa um þetta þurfti ég að heyja að mér efni og ræða við heimildarmenn. Ég hafði heyrt að maðurinn sem stýrði Fróða til Vestmannaeyja eftir að búið var að drepa vini hans allt í kringum hann og skip- stjórann þar á meðal, væri á lífi og mig langaði til að hitta hann. Ég talaði við þá á skrifstofu Eimskips og bað þá að grafa upp þennan mann. Svo gerist ekkert þar til bankað er hjá mér á skrif- stofu minni í Aðalstræti. Ég fer til dyra og þar stendur Guðmund- ur Dýrfirðingur, glerfínn. Þá var hann bryti að ég held á Reykja- fossi. Ég heilsa honum og hann mér en var mikið til baka og hlé- drægur eins og hann var alltaf. Ég segi: - Jæja, Guðmundur minn. Hvað get ég gert fyrir þig? - Ja, ég var nú beðinn að koma hingað og tala við þig, segir hann. - Nú, segi ég. Er það eitthvað sérstakt? - Nei. Þeir báðu mig bara um það á skrifstofu Eimskips. - Nú? Ég hef ekkert verið að reyna að ná í þig. Ég er bara að leita að manninum sem stóð við stýrið þegar Fróða var siglt til Vestmannaeyja eftir árásina því ég er að skrifa um þennan at- burð. Þá segir þessi hógværi maður sem stendur þarna fyrir framan mig: - Ja, það var nú ég. Ég hafði verið með honum mánuðum saman í herbergi á Brú- arfossi. Hann var góður maður, en ég vissi aldrei að hann væri hetja. Þetta er einhver hógværasti og geðfelldasti maður sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Ég var búinn að vera með stríðshetju í klefa sem allt vildi fyrir mig gera og var frábær maður. Svo settumst við niður á skrifstofu minni og töluðum saman. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem Guðmundur Dýrfirðingur talaði um þennan hetjuskap sinn. Núna er það hins vegar þannig, að menn miklast af öllu og það er ekkert sem blaðrið tekur ekki við og sjaldnast er neitt á því að græða. Þetta hefur verið mér mikið íhugunarefni og þetta hefur alið mig upp. Ég tel það einhverja dýrmætustu eign sem ég hef fengið í lífinu að kynnast sjónum og þeirri hetjulund sem umhverfið bauð upp á. Eg hef laðast að sjómönnum og hef skrifað mörg samtöl við sjómenn. Af þessu fólki lærði ég meðal annars tungutak. Eitt sinn var ég að skemmta mér á barnum í Naustinu. Þar hitti ég kornungan mann sem fór að tala við mig. Hann hafði verið á báti sem kantraði og fór að segja mér frá þessu slysi. Ég var búinn að fá mér í staupinu en hlustaði á manninn. Svo allt í einu vakna ég upp og segi við sjálfan mig: -Hvað er þetta. Ég er að hlusta á mann sem talar einhverja þá fallegustu íslensku sem ég hef heyrt og þetta er ungur sjómaður. Nei, ekki háskólaborgari! Ég hef oft hugsað um þetta atvik og vona að svona sé til enn og verði alltaf til. Ég vona að sjónvarpinu takist ekki að kála þessu líka, en maður veit það ekki. Af þessum mönnum hef ég bæði lært þetta 10 - Sjómannablaðið Víkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.