Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 16
Róðraræfing á björgunarbátnum Þorsteini acI lokinni vígslu í maí 1929.
Inn í þessa sögu má skjóta að á stjórnarfundi 7. mars 1929 var
rætt um nauðsyn þess að fá vélknúinn bát sem að öllu leyti væri út-
búinn sem nýtísku björgunarbátur, en þar sem áætlað var að slíkur
bátur myndi ekki fást fyrir minna en 50-60 þúsund krónur, vildi
stjórnin ekki koma fram með tillögur í þessa átt að sinni, fjárhagsins
vegna, en stefnt var að þvi þegar fært þætti. Uppbygging fluglínu-
stöðva þótti mun brýnna verkefni á upp-
hafsárum félagsins.2 Til upplýsingar má
geta að á þessum tíma var liðlega helming-
ur báta breska björgunarbátafélagsins enn
mótorlaus, en Ijóst var þó að vélknúnir bát-
ar voru framtíðin í þessum efnum.
Báturinn sem félagið festi kaup á kom til
landsins 15. april 1929 með Selfossi, einu
af skipum Eimskipafélagsins, og gaf skipa-
félagið flutninginn. Hann var fyrst í stað
hafður í geymslu á athafnasvæði Slippfé-
lagsins í Reykjavík þar eð skýli yfir hann í
Sandgerði var þá ekki enn fullbúið.
Sama dag og báturinn kom til landsins
hlotnaðist Slysavarnafélaginu stórgjöf, en
þá tilkynnti Þorsteinn Þorsteinsson skip-
stjóri, sem kenndur var við hús sitt, Þórs-
hamar í Reykjavík, að hann og kona hans,
Guðrún Brynjólfsdóttir, gæfu Slysavarnafé-
laginu bátinn með öllum fylgibúnaði. Þor-
steinn var þá stjórnarmaður í Slysavarnafé-
laginu og varð síðar forseti þess.
Báturinn var vígður við hátíðlega athöfn
þann 26. maí 1929 að viðstöddum þúsund-
um manna en hann var jafnframt til sýnis
almenningi þennan dag. Athöfnin hófst á
svonefndri Steinbryggju í Reykjavíkurhöfn.
Guðmundur Björnson landlæknir, þv. forseti
Slysavarnafélagsins, flutti ræðu, lýsti bátn-
um og þakkaði gefendum fyrir höfðinglega
gjöf. Frú Guðrún Brynjólfsdóttir
flutti stutta ræðu og gaf bátnum
nafnið Þorsteinn í höfuðið á
eiginmanni sínum. Jón Helga-
son, þáverandi biskup íslands,
flutti sjálfa vígsluræðuna, bless-
aði bátinn og bað fyrir starfsemi
Slysavarnafélagsins. Því má
skjóta hér inn í að það mun
vera siður hjá Englendingum
að láta presta vígja björgunar-
báta. Að lokum ávarpaði Þor-
steinn Þorsteinsson mannfjöld-
ann og greindi frá stefnu og
starfi Slysavarnafélags íslands.3
Að afloknum ræðuhöldum
var bátnum hrundið á flot úr
vagninum þar sem hann stóð á
Steinbryggjunni. Voru 10 ræð-
arar undir árum og auk þeirra
var stjórn Slysavarnafélagsins
með í reynsluferðinni og stóð
Þorsteinn Þorsteinsson við
stýri. Fyrst var róið út að Örfiris-
eyjargarði, en þar voru sett upp
segl og siglt fyrir allhvössum
norðanvindi. Erlend skip í höfn-
inni heilsuðu bátnum með fán-
um sínum þegar hann fór fram-
hjá þeim. “Er það siður enskra sjómanna að votta björgunarbátun-
um og skipshöfnum þeirra virðingu sína og þakklæti, hvar sem þeir
sjá þá, og er það venjulega gert með því að draga þjóðfánann
þrisvar að húni í kveðjuskyni.”4 Ferðin gekk ágætlega og þótti öllum
viðstöddum vel hafa tekist þessi fyrsta för björgunarbátsins.
Blöðin fóru mjög lofsamlegum orðum um starfsemi Slysavarnafé-
lagsins í greinum sem þau birtu um at-
höfnina. Stórhugur var í mönnum og
þetta átak Slysavarnafélagsins hafði
mjög hvetjandi áhrif á fólk um allt land
um að standa sem best að slysavarna-
málum á íslandi.
Vígsludagurinn var jafnframt fjáröflun-
ardagur fyrir starfsemi félagsins. Hann
var fyrsti merkjasöludagurinn í sögu fé-
lagsins, en þá voru merki með mynd af
hinum glæsta farkosti til sölu og kostuðu
1.00 kr, en kr. 1.50 ef þau voru skreytt
með borða.
Björgunarstöðin í Sandgerði var vígð
þann 28. júlí 1929 og þann dag kom
Þorsteinn siglandi til Sandgerðis. Þarna
var Þorsteinn síðan staðsettur næstu
árin. Vegur var nokkru síðar lagður milli
Sandgerðis og Stafness til að hægt væri
að flytja bátinn eftir honum.
1 f Árbók Slysavarnafélags íslands 1929, bls. 72-
80, er nákvæm lýsing á bátnum Þorsteini.
2 Fundargerðabók stjórnar 1928-1938, tundur
28. febrúar 1929, skjalasafn Slysavarnafélagsins,
Eld. 2.
3 Gils Guðmundsson: Slysavarnafélag Islands
tuttugu og fimm ára, bls. 65-66.
4 Árbók Slysavarnafélags fslands 1929, bls. 11
Mannslíf í húfi
Saga Slysavarnafélags íslands
Frá vígslu björgunarbátsins Þorsteins í Reykja-
víkurhöfn 26. maí, að viðstöddu fjölmenni. í
stafni er Guðmundur Björnson, forseti SVFI, að
halda ræðu.
16 - Sjómannablaöiö Víkingur