Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Page 33
Um fiskveiðiráð
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, ítrekar fyrri á-
skorun til sjávarútvegsráðherra um að hann beiti sér fyrir stofnun
fiskveiðiráðs samanber erindi FFSÍ frá 20. júlí 1999.
Greinargerð:
í tilgreindu erindi var meðal annars:
„Komið verði á fót formlegu fiskveiðiráði fiskifræðinga og fulltrú-
um frá Farmanna- og fiskimannasambandi íslands til dæmis 5 frá
hvorum, þar sem fjallað verði um niðurstöður úr rannsóknaverkefn-
um og drög að tillögum um leyfilegan hámarksafla hlutaðeigandi
fisktegunda. Þetta fiskveiðiráð verði ávallt notað til þess að vera
faglegur vettvangur skoðanaskipta og til þess að fara yfir helstu for-
sendur og gögn áður en Hafrannsóknastofnun leggur fram lögum
samkvæmt tillögur um leyfilegan heildarafla fyrir næstu ár eða ver-
tíð.
Með þessari tillögu vill Farmanna- og fiskimannasamband ís-
lands treysta betur samráðsvettvang milli vísindamanna og starf-
andi skipstjórnarmanna á fiskiskipum. Hingað til hafa fyrst og
fremst farið fram lauslegar samræður milli aðila sem eru allra góðra
gjalda verðar. Hins vegar telja samtökin að tími sé kominn til að
víkka samstarfið og gera það markvissara þar sem tekið verði í rík-
ara mæli mið af fagþekkingu og reynslu skipstjórnarmanna við fisk-
veiðar.”
Um vigtun uppsjávarafla
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, skorar á sjáv-
arútvegsráðherra að leiða til lykta að gefnar verði út reglur sem
tryggja rétta vigt á uppsjávarafla.
Meira í þinn hlut?
Núna ert það þú sem ákveður!
Með því að ganga frá samningi
um viðbótarsparnað
tekurðu fyrsta skrefið í land ...
Harald Holsvik og Reynir Björnsson, Félag ísl. loftskeytamanna
Þú bætir kjör þín með því að greiða viðbótarsparnað
í Séreignardeild Lífeyrissjóðs sjómanna. Hafðu samband í síma 515 1610
KAUPÞING
Lífeyrissjóðnr
sjómanna
Sjómannablaðið Víkingur - 33