Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 33
Um fiskveiðiráð Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands, haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, ítrekar fyrri á- skorun til sjávarútvegsráðherra um að hann beiti sér fyrir stofnun fiskveiðiráðs samanber erindi FFSÍ frá 20. júlí 1999. Greinargerð: í tilgreindu erindi var meðal annars: „Komið verði á fót formlegu fiskveiðiráði fiskifræðinga og fulltrú- um frá Farmanna- og fiskimannasambandi íslands til dæmis 5 frá hvorum, þar sem fjallað verði um niðurstöður úr rannsóknaverkefn- um og drög að tillögum um leyfilegan hámarksafla hlutaðeigandi fisktegunda. Þetta fiskveiðiráð verði ávallt notað til þess að vera faglegur vettvangur skoðanaskipta og til þess að fara yfir helstu for- sendur og gögn áður en Hafrannsóknastofnun leggur fram lögum samkvæmt tillögur um leyfilegan heildarafla fyrir næstu ár eða ver- tíð. Með þessari tillögu vill Farmanna- og fiskimannasamband ís- lands treysta betur samráðsvettvang milli vísindamanna og starf- andi skipstjórnarmanna á fiskiskipum. Hingað til hafa fyrst og fremst farið fram lauslegar samræður milli aðila sem eru allra góðra gjalda verðar. Hins vegar telja samtökin að tími sé kominn til að víkka samstarfið og gera það markvissara þar sem tekið verði í rík- ara mæli mið af fagþekkingu og reynslu skipstjórnarmanna við fisk- veiðar.” Um vigtun uppsjávarafla Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands, haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, skorar á sjáv- arútvegsráðherra að leiða til lykta að gefnar verði út reglur sem tryggja rétta vigt á uppsjávarafla. Meira í þinn hlut? Núna ert það þú sem ákveður! Með því að ganga frá samningi um viðbótarsparnað tekurðu fyrsta skrefið í land ... Harald Holsvik og Reynir Björnsson, Félag ísl. loftskeytamanna Þú bætir kjör þín með því að greiða viðbótarsparnað í Séreignardeild Lífeyrissjóðs sjómanna. Hafðu samband í síma 515 1610 KAUPÞING Lífeyrissjóðnr sjómanna Sjómannablaðið Víkingur - 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.