Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 60
Á hverju ári farast 50 skip sem flytja hættulegan farm. Þetta staðhæfir franski vísindamaðurinn Cristian Budchet. umhverfissprengjur á hafsbotninum Þó að Cristian Budchet sé sagnfræðingur (marinhistoriker) er það samt sem áður nú- tíminn sem hann hefir mestan áhuga á, nán- ar tiltekið sú hætta sem jarðarbúum stafar af ógætilegri umgengni um hafið og auðæfi þess. Ekki síst þáttur hafsins í fæðuöflun fyr- ir heimsbyggðina. Það bráðliggur á að móta umhverfis- stefnu fyrir hafið, segir Budchet. Hann hefir lengi predikað þennan boðskap en meira og minna fyrir daufum eyrum. En síðan í des- ember í fyrra eru þó margir farnir að hlusta. Það var þá sem olíuskipið Erica, frá Möltu, fórst í stormi útaf Bretagneskaga, með þeim afleiðingum að stór svæði af frönsku strand- lengunni sem liggur að Atlantshafinu voru þakin af þykkfljótandi olíu. Síðan þetta átti sér stað hefir málflutningur Cristian Budchet náð eyrum fjölmiðla, bæði dagblaða, útvarps og sjónvarps. Hann segir: Uppþotið kringum Erica einkenndist eiginlega af tómri hræsni. Á einu ári verða höfin að taka á móti 6 miljónum tonna af olíu. Tveir þriðju hlutar koma frá landi, frá iðnaði, landbúnaði o.f.l. “Einungis” 150.000 tonn stafa af sköðum á olíuskipum á hafi úti. Þetta er ekki mikið í sam- anburði við heildina og ekki heldur sem hlutfall af því sem meðvitað er dælt í hafið og á sér stað í sambandi við tankhreinsanir, þ.e.a.s. 1,2 miljónir tonna á ári. Meðvitaða útdælingin er með öðrum orðum átta sinnum meiri en það sem stafar af slysum. Um þetta er ekki mikið rætt. Meðvit- aða útdælingin á sér stað alla daga ársins. Á hinn bóginn eru ekki öll olíuslys sem gerð eru oþinber. Cristian Budchet vitnar í nokkrar af niðurstöðum sínum frá 1996, sem var mjög venjulegt ár hvað slys áhrærir. Þá var stærð heims- flotans 38.000 kauþskiþ yfir 300 tonn. Þetta ár sukku 113 skip. Þar af 14 olíuskip. Þrávirk gerviefni Olíuslys eru alltaf að verða en ef þau eiga sér ekki stað í nálægð okkar þá er allt eins víst að við vitum ekkert af þeim. Næstum sam- tímis og Erica fórst á Atlantshafi varð t.d. álíka slys í Bosporus- sundi. Einnig þar voru atvik þau að skipið brotnaði í miðju. Á vestur- löndum hefir ekki mikið heyrst um þetta slys eða hverjar urðu af- leiðingar þess. Þetta var einfaldlega of langt í burtu. Áfram úr rannsóknum Budchet: Árið 1996 fórst 0,3% af heims- flotanum. Að stærstum hluta voru þetta gömul skip sem, hafði verið illa við haldið - 80% þeirra voru eldri en 15 ára. Því eldri sem skiþin eru þeim mun meiri er hlutur þeirra í slysatíðninni. Af skipum á ald- ursbilinu 20 - 24 ára sekkur 0,8% á hverju ári. Cristian Budchet telur að banna eigi olíuskip sem eldri eru en 15 ára. Hann bendir þó á að það séu samt sem áður ekki olíuslysin sem valda mestum skaðanum eins og að framan segir. Vissulega eru olíuslysin skelfileg og víst eru myndirnar af dauðum fuglum í hrönnum og ónýtum bað- ströndum hræðilegar. En olíuna getur náttúr- an brotið niður. í aðalatriðum má segja að ummerki eftir olíuslys séu horfin eftir tíu ár. Annað er með þrávirku gerviefnin sem náttúran ræður ekki við að brjóta niður. Af þessum efnum stafar aðal hættan, segir Bu- dchet. Annað hvert skip flytur efni í einhverju formi, sem er hættulegt umhverfinu. Þessi skip eru ekki í betra ástandi en önnur. Það eru því 50 skiþ með hættulegan farm sem farast á hverju ári og minnstur hluti þessar slysa eru tilkynnt. Ennþá minna er vitað um gáma sem falla fyrir borð í óveðrum vegna slæms sjóbúnaðar; gáma sem gegn öllum reglum innihalda hættuleg efni. Á hafsbotninum liggjur þannig ótölulegur fjöldi sprengna sem eru stórhættuleg umhverfinu og enginn veit hvenær springa, segir Cristian Budchet. Ljótt dæmi er sagan um júgóslavneska stórflutningaskipið Cavtat, sem fórst í Miðjarðarhafinu árið 1974. Skipið var með stór- an farm af blýi. Það var einungis að þakka staðfestu dómara á ítal- íu, þökk sé honum, að farminum var bjargað. Hefði það ekki verið gert væri stór hluti Miðjarðarhafsins nú dauður. Cristian Budchet gerir sér ekki sérlega glæstar vonir um framtíð- ina hvað þetta varðar. Með sínum bakgrunni sem sagnfræðingur getur hann þó vissulega staðfest að öryggið til sjós hefir aukist verulega. Það er ekki lengur sérstök lífshætta að fara til starfa á sjónum en jafnframt hefir afleiðingin af hverju slysi orðið óendan- lega mikið stærri. Það er staðreynd að u.þ.b. þriðja hvern dag ferst stórt kaupskip og það eru engin teikn á lofti sem auka bjartsýnina á að slysatíðnin minnki, sérstaklega þegar haft er í huga að sjófluttn- ingar aukast um 2,5% á ári. Flotinn í hættulegu ástandi Öll rök hníga að því að öryggiskröfurnar verði auknar. Vissu- lega er það satt að öryggið kostar peninga, segir Budchet, en útgerðir skipanna hafa efni á að standa undir þeim kostnaði. Síðan 1993 hefir útgerðarkostnaður minnkað um 34 prósent. Er hægt að benda á nokkurn annan atvinnuveg sem hefir hag- rætt svo í rekstri að kostnaður hafi minnkað um einn þriðja hluta á sjö árum !! Að hluta til er þessi kostnaðarlækkun vegna fækkunar í á- höfnum skipanna og að öðru leiti vegna sparnaðar í aðbúnaði áhafnanna og útbúnaði skipanna. Christian Budchet 60 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.