Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 61
Heimsflotinn er í stórhættulegu ástandi. Allt að 40 % skipa
stenst ekki öryggiskröfur. Ef allir fylgdu gildandi öryggiskröfum væri
mikið unnið, en svo er alls ekki að mati Cristian Budchet. Hann tel-
ur t.d. að skipuleggja þurfi sigiingaleiðir í líkingu við það sem gerist
í almennri flugumferð og skipunum yrði þá stýrt inná ákveðnar leiðir
og jafnframt sett á fót kerfi eftirlitsstöðva.
Ennfremur telur Budcher að koma þurfi á evr-
póskri sjólögreglu, sem hefði heimild til að grípa
inní innan 200 sjómílna landhelgi. Þettað gæti að
minnsta kosti leitt til verulegrar minnkunar á hinni
meðvituðu olíudælingu í hafið.
Einungis í lögsögu Frakklands í Miðjarðarhafinu
eiga sér stað, árlega, 130 olíudælingar. Af þessum
lögbrotum eru einungis 10% sem vitnast um.
Sjólögregla, að fyrirmynd USA “coast guards”
mundi breyta hér miklu. Þettað mundi að sjálf-
sögðu krefjast þess að hafnirnar yrðu þannig bún-
ar að skipin gætu tæmt tanka sína á viðunandi
hátt. Nú er það einungis á fjórum stöðum í Miðjarð-
arhafinu, sem þessi aðstaða er fyrir hendi, þ.e.
tveir staðir í Frakklandi, einn í Kairo og einn í
Trieste.
Niðurstaða Cristian Budchet er þessi:
Það verður aldrei hægt að komast hjá því að
taka áhættu. Skip munu alltaf farast. Skipbrot
heyra, líkt og dauðinn, lífinu til.
En það er svo fjöldamargt sem hægt er að gera
til að fækka slysunum og vernda auðæfi hafsins.
Það eina sem til þarf er pólitískur vilji.
Framangreint viðtal er þýtt úr sænska blaöinu “Nautisk Tidskrift"
nr. 6/2000, sem er félagsblað Sveriges Fartygsbefálsförening
(Félags sænskra skipstjórnarmanna)
• Þýðandi: Guðlaugur Gíslason.
Önnumst allar raflagnir og viðgerðir á bátum, skipum og
verksmiðjum. Aratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg
tryggir reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
Segull hf. Fiskislóð 2 til 8. Sími: 551 3099 Fax: 552 6282
VEÐURSÍMINN
902 0600
Símatorg í 2. veröfl., 16,60 kr. á min. (með vsk.)
Veljið síðan:
2 Sjóveðurspá; veðurhorfur næsta sólarhring,
horfur á miðum næstu daga (aðeins að degi
tN)
6 Veðurlýsing frá mönnuðum og sjálfvirkum
veðurathugunarstöðvum. Nýjustu veður-
athugauir eru lesnar sjálfvirkt jafnóðum og
þær berast.
8 Veðurspá og nýjustu veðurathuganir fyrir
spásvæði á landi (sjá kort)
Athugið: í sumum eldri gerðum farsíma er ekki
hægt að velja. Úr slíkum símum má nálgast
sjóveðurspá með því að hringja í 902 0602
Vefsíða Veðurstofunnar:
www.vedur.is
Veðurspá sem SMS-skilaboð:
VIT-þjónusta Landssímans: Veljið
veðurathuganir og veðurspá fyrir einstök
spásvæði á kortinu eða fyrir landið í heild
SMS-þjónusta Tals: Sendið einhver
eftirtalinna skilaboða í símanúmer 1415:
vi is veðurspá fyrir landið
vi hb veðurspá fyrir höfuðborgarsvæðið
vi sk veðurathuganir frá Skálafelli,
Bláfjöllum og Hellisheiði
Sjómannablaðið Víkingur - 61